Jökull - 01.11.1998, Qupperneq 79
Jarðfræðafélag íslands
Skýrsla formanns fyrir starfsárið 1995-1996
TILLÖGUR FORMANNS
Formaður lagði til að Hreggviður Norðdahl yrði
fundarstjóri og Guðrún Larsen fundarritari.
STJÓRNARSTARF OG FRÉTTABRÉF
Haldnir voru 7 stjómarfundir og gefin út 7 Frétta-
bréf. Flestir fræðslufundir vom kynntir í Fréttabréfinu,
en að auki vom sendar út auglýsingar á helstu stofnanir
nokkrum dögum fyrir hvern fund. Fyrir hönd JFI sótti
Magnús Tumi Guðmundsson fund formanna
jarðfræðafélaga víða um heim á vegum AGU síðastliðið
sumar. Þetta er þáttur í því að efla tengsl JFI við önnur
félög jarðvísindamanna.
FRÆÐSLUFUNDIR
Haldnir vom 6 fræðslufundir (með jólafundinum) á
vegum félagsins. Milli 250 og 300 manns hafa mætt á
fræðslufundi JFI, en þeir voru þessir:
1. Eysteinn Janssen og Hans Christian Larsen
töluðu um ODP leiðangra (162 og 163) 4.
september.
2. Armann Höskuldsson talaði um hraungos undir
jökli 18. október.
3. Aslaug Geirsdóttir talaði um PALE verkefnið á
Islandi 15. nóvember.
4. (Jólafundur) Bryndís Brandsdóttir, Olafur
Flóvenz, Guðmundur Pálmason, Einar Kjart-
ansson, Ingi Bjarnason og Axel Björnsson
töluðu um skorpuþykkt á Islandi 13. desember.
5. Þóra Ámadóttir talaði um jarðskorpuhreyfingar á
Nýja Sjálandi 3. janúar.
6. Þorsteinn Sæmundsson talaði um jökulhörfun og
sjávarstöðubreytingar í Vopnafirði 13. mars.
RÁÐSTEFNA UM GRJÓTJÖKLA OG
BERGHLAUP OG V ORRÁÐSTEFNAN
Fyrri ráðstefnan var haldin 24. febrúar í Odda. Þar
flutm erindi Hreggviður Norðdahl, Tómas Jóhannesson,
Ágúst Guðmundsson (eldri), Halldór G. Pétursson, Ámi
Hjartarson og Haukur Jóhannesson. Um 50 manns
mættu á ráðstefnuna, sem telst gott þar sem hún var
haldin á laugardegi.
Vorráðstefnan var haldin í Odda 3. apríl. Hún var
ekki bundin við ákveðið þema heldur opin fyrir erindi og
veggspjöld um hvaðeina af vettvangi jarðfræða. Flutt
vom 13 erindi og sýnd 17 veggspjöld. Um 100 manns
mættu á ráðstefnuna. Ágrip erinda og veggspjalda vom
gefin út í ráðstefnuriti. Eftir að ráðstefnunni lauk var hald-
ið hóf í Tæknigarði í tilefni af 30 ára afmæli félagsins.
Þar flutti Sveinbjöm Bjömsson ræðu og rakti fmmbýl-
ingsár jarðfræðinnar hér á landi, auk þess sem félaginu
barst vegleg blómakarfa að gjöf frá Elsu Vilmundar-
dóttur og Hrefnu Kristmannsdóttur í tilefni afmælisins.
Alls mættu 400-500 manns á ráðstefnur og fundi á
vegurn félagsins á þessu starfsári. Til stóð að R.S.J. Sparks
kæmi hingað til lands og flytti tvo fyrirlestra á vegum
Sigurðarsjóðs í lok apríl eða maí. Hann féllst á boðið en
vegna eldgossins í Montserrat og fleiri verkefna varð
hann að fresta komu sinni fram í október í haust. Vona ég
að nýja stjómin endumýji boðið til Sparks.
J ARÐFRÆÐAFÉLAGÍÐ OG
ORKUSTOFNUN
Mál Orkustofnunar hafa mjög verið í brennidepli
nú síðustu mánuðina. Þessi mál hafa oft verið rædd á
fundum stjómar JFÍ. Formaður JFI og Hreinn Haralds-
son áttu fund með iðnaðarráðherra 28. desember sl. þar
sem málefni Orkustofnunar voru rædd ítarlega. Sú
nefnd iðnaðarráðherra (undir forystu Sveins Þorgríms-
sonar) sem fjallar um framtíð Orkustofnunar sendi frá
sér bráðabirgðatillögur 13. desember sl. JFÍ skipaði
óformlega nefnd til að gera athugasemdir við fram-
JÖKULL, No. 46, 1998
77