Jökull


Jökull - 01.06.2000, Qupperneq 68

Jökull - 01.06.2000, Qupperneq 68
Oddur Sigurðsson Hofsjökull Blágnípujökull - Þriðji viðkomustaður ofannefndra félaga var Blágnípujökull í suðvestanverðum Hofs- jökli. Jökullinn klofnar um Blágnípu og eru merkin við sporðinn austan gnípunnar. Efstu drög jökulsins eru í 1750 m y.s. undir suður barmi öskjunnar sem er hulin ís í kolli jökulsins og sporðurinn endar í um 750 m y.s. og fellur því um 1000 m. Þar fundust merki Jóns Eyþórssonar ekki en síðasta mæling Jóns á þess- um stað var 1941. Sátujökull - Braga Skúlasyni fannst erfitt að ákvarða nákvæmlega hvar jökuljaðarinn lá inn af Eyfirðinga- hólum vegna þess hve hann er aurborinn. Þar hop- ar jökullinn ört um þessar mundir og er sléttur og sprungulaus. Síðan snemma á 9. áratugnum hefur legið skafl yfir sporði Sátujökuls inn af Lambahrauni (vestara). Mæling þar hefur því verið skráð í samræmi við það að ekki hefur verið unnt að mæla í raunverulegan jök- ulsporð. I því góðæri sem verið hefur að undanförnu hefur skafl þessi rýrnað og leifar hans eru að mestu orðnar að ís. Hér með segjum við því skaflinn sé hinn raunverulegi jaðar jökulsins og hefur hann þá gengið fram um 14 m síðan 1982. Múlajökull - Leifur Jónsson telur jökulinn nær bílfær- an svo sléttur er hann. Lítil bleyta var í Múlum þrátt fyrir vætusamt sumar. Ishellirinn við Hjartafell er nán- ast horfinn. Mýrdalsjökull Sólheimajökull - Einar Gunnlaugsson hefur nú tekið við af Val Jóhannessyni sem búinn er að sinna þessu verki af trúmennsku í þrjá áratugi. Að þessu sinni var bætt við merkjum fyrir vestan Jökulsá. Ekki var unnt að sjá jökuljaðarinn í mælilínu á Jökulhaus og var því tekin önnur samsíða til bráða- birgða. Vatnajökull Skeiðarárjökull - Hannes Jónsson telur að vestanverð- ur jökullinn muni styttast verulega á næstu árum. Hluti af hopinu sem mældist við miðjan jökulinn orsakað- ist af því að nokkuð brotnaði af jöklinum í hlaupinu í nóvember 1996. Bragi Þórarinsson gat þess á mælingablaði að jök- ullinn hafi lækkað verulega við mælilínur. Vatn, sem runnið hafi í Sæluhússvatn síðan jökullinn gekk fram 1991, er nú farið að renna vestur með jaðrinum í Gígjukvísl. Ekki er að vita hve langt er í að Skeiðará fari sömu leið en jökullinn þarf ekki að hopa mikið til að svo fari. Ekki varð komist í austasta merkið við Skeiðarár- jökul að þessu sinni því stóra hlaupið í fyrra haust tók slóðina þangað. Guðlaugi Gunnarssyni sýnist Skaftafellsjökull nú vera farinn að minnka aftur eftir snarpan framgang, en jöklarnir þar suður af bráðna í samræmi við hlýtt sumar. Helgi Björnsson frá Kvískerjum segir í bréfi: „Það sýnist koma fram á útliti jöklanna hér, að í sumar hef- ur leikið um þá óvenju hlý og stöðug hafátt. Breiða- merkurjökull sýnist t.d. hafa lækkað til muna og hef- ur „gönguleiðin“upp með Máfabyggðarönd ekki verið svona slétt og lítið sprungin eftir að við bræður byrj- uðum að fara þar um miðja öldina. Og þó að jaðarinn á mælingastaðnum næst Breiðamerkurfjalli hafi lítið breyst er annað að sjá jaðarinn sem snýr að Fjallinu. Þar hafa í sumar myndast miklar geilar á tveimur stöð- um og eftir þeim rennur Deildará á sléttum aurum, en til hliðar eru þverhníptir íshamrar æði háir og tilkomu- miklir. Á einum stað hefur myndast íshellir, um 50 m langur og 20 m breiður, með sléttu þaki. Var mjög fal- legur blámi þar inni, enda er jökullinn að mestu tær. Svipuð útkoma sést á Fjallsjökli, einkum um- hverfis Fjallsárlónið, því að það hefur stækkað en jök- ulbrúnin lækkað þar um kring. Líkt er að sjá Hrútár- og Kvíárjökul, en eins og kunnugt er, bera þeir meira með sér af sandi og grjóti en hinir skriðjöklarnir. Það verður svo að þykku lagi á sporðum þeirra, sem ver þá fyrir bráðnun. Þetta sýnist mér koma vel í ljós í tíðarfari eins og verið hefur í sumar. Svo eru það árnar sem frá þeim renna. Rennsli þeirra hefur verið mikið í sumar. Svo hafa þær Hrútá og Kvíá báðar breytt um útfall og eðlilega flutt mikinn framburð, bæði undan jökli og grafið úr gömlum far- vegum. Kvíá hefur komið með töluvert af mjög ljós- um líparítsteinum, sem varla hafa sést áður þar. Eins er við Hrútá. Þar er áberandi gerð af grjóti sem ég hef varla séð áður. Breiðá hefur líka verið iðin við grjót- burð, sem hún skilar vestur í Breiðárlón.“ 66 JÖKULL No. 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.