Jökull


Jökull - 01.06.2000, Side 72

Jökull - 01.06.2000, Side 72
Minningarorð Eggert V. Briem (18. ágúst 1895 - 14. maí 1996) Eggert Vilhjálmur Briem, prestssonur úr Skagafirði, átti langt og afar sérstakt lífshlaup. Ungur fór hann í vélfræðinám til Þýskalands, en hélt síðan til Banda- ríkjanna 1914 og starfaði þar m.a. í hinni þekktu raftækjaverksmiðju Hjartar Þórðarsonar í Chicago. Eftir það var hann á íslandi í nokkur ár við ýmis störf, fyrst vörubílaakstur austur á fjörðum. Um 1920 birt- ust eftir Eggert nokkrar tímaritsgreinar, s.s. í Sindra um smáiðnað á íslandi, og í Búnaðarritinu varðandi vélanotkun í landbúnaði. Þá hélt hann aftur til Banda- ríkjanna, tók þar flugvirkjapróf og síðar atvinnuflug- mannspróf 1930, fyrstur íslendinga. Um árabil vann hann í verksmiðjum í Bandaríkjunum, og fékk þar einkaleyfi á aðferðum m.a. varðandi saumavélar, sem hann hafði síðan tekjur af. Jafnframt var Eggert mik- ill áhugamaður um raunvísindi, ekki síst um afstæðis- kenningu Einsteins sem hann taldi að vissu leyti ófull- komna. Vrkur þá sögunni að Þorbimi Sigurgeirssyni pró- fessor. Þorbjörn hafði meðal annars stundað rann- sóknir í kjarneðlisfræði við Kaupmannahafnarhá- skóla, og kannað geimgeisla við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum. Eftir heimkomu til íslands 1947 sneri hann sér í vaxandi mæli að jarðvísindum, og vöktu niðurstöður hans þar athygli á alþjóðavettvangi. Þor- björn kom á fót Eðlisfræðistofnun Háskólans í árs- 70 JÖKULL No. 48

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.