Jökull - 01.06.2000, Blaðsíða 74
Við afhendingu fyrstu vélsleða Raunvísindastofnunar. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Magnús Már Magnús-
son, Helgi Björnsson, Sigurður Þórarinsson, Marteinn Sverrisson, Páll Theodórsson, gefandinn, Eggert V.
Briem, Þorbjöm Sigurgeirsson og Leó Kristjánsson.
Elsti og yngstu þátttakendurnir í Jónsmessu-
ferð Raunvísindastofnunar, sumarið 1982.
Eggert hafði mikinn áhuga á framfömm og yndi
af fræðilegri íhugun. Hann hélt þrautseigju sinni og
forvitni til hinstu stundar, var opinn fyrir nýjum hug-
myndum en gagnrýninn og róttækur á þann hátt að
hann vildi efast um viðteknar skoðanir. Hann var fá-
orður í samræðum, oft glettinn og góðlátlega stríðinn,
svaraði gjarnan með spurningum, brosi og glampa í
auga. Hann var hæverskur en fastur fyrir þættist hann
sannfærður. Hann var hafinn yfir kapphlaup um efnis-
leg gæði og með taóskri nægjusemi, hugarró og vel-
vilja bætti hann mannlíf hvar sem hann fór.
Af ofantöldu má ljóst vera, að rannsóknastarfsemi
á ýmsum mikilvægum sviðum raunvísinda á íslandi á
Eggert V. Briem mikið að þakka. Eggert stofnaði sjóð
af eigum sínum, sem ætlaður er til að styrkja rann-
sóknir í jarð- og líffræðum. Þannig mun þessi lítilláti
höfðingsmaður væntanlega enn um ókomin ár verða
stoð og stytta öflunar nýrrar vísindaþekkingar á nátt-
úru Islands.
Leó Kristjánsson
Helgi Björnsson
Bryndís Brandsdóttir
72 JÖKULL No. 48