Jökull


Jökull - 01.06.2000, Síða 77

Jökull - 01.06.2000, Síða 77
Skýrsla stjórnar JÖRFI1998 bunki þessi er ekki það mikill að hann hafi umtalsverð áhrif á stærð Grímsvatna. Þá var hæð ísstíflunnar landmæld, einkum yfir vatnsrásinni, og ísskrið inn að rásinni mælt svo að meta megi hver fljótt Grímsvötn ná fyrri getu til þess að halda í sér bræðsluvatni. Mikilvægt er að fylgjast með því við hvaða vatnshæð hlaup geta hafist við nú- verandi aðstæður meðan ísstíflan er að gróa saman eft- ir að hún laskaðist í hlaupinu 1996. Æskilegt væri að kanna síðar hvort hlaupið hafi rofið gjúfur í botn undir stíflunni. í júní var boruð hola með heitu vatni gegnum ís- hellu Grímsvatnavatna og komið fyrir nemum sem mæla hitastig vatns en það ræður miklu um vöxt rennslis í Grímsvatnahlaupum. Var það mannfrekt og erfitt verk sem að miklu leyti var unnið af sjálfboða- liðum Jöklarannsóknafélagsins. II. Mælingar á vatnshæð og uppsetning tækjabún- aðar til sjálfvirkrar skráningar á vatnshæð Gríms- vatna. Vatnshæð í Grímsvötnum mældist 1369 m y. s. hinn 19. júní og hafði þá risið um 7 m á sjö vikum og virtist hækka um 1 cm á sólarhring meðan á leiðangri stóð. Mikilvægt er að fylgjast stöðugt með vatnshæð Grímsvatna þegar dregur að hlaupi og meðan á því stendur er gagnlegt að vita hve mikið vatn er eftir í Grímsvötnum. Þar sem mælingar á hæð Grímsvatna eru erfiðar vegna veðurs er unnið að því að koma upp sjálfvirkum mælingum og senda niðurstöður til byggða. Eftir að borað hafði verið gegnum íshelluna var komið fyrir nemum sem mæla þrýsting á botni Vatnanna, sem er beinn mælikvarði á vatnshæð. Að auki er gert ráð fyrir búnaði til nákvæmra hæðarmæl- inga sem nýtir gervitungl til staðsetninga (DGPS). I ágúst var aftur farið í Grímsvötn og unnið að frekari undirbúningi að uppsetningu tækjabúnaðar til send- ingar mæligagna frá Grímsvötnum sem eru í smíðum. Umsjón með þessum tækjabúnaði hefur Finnur Páls- son, verkfræðingur við Raunvísindastofnun. III. Könnun á eldstöðvum, áhrifum gossins á jök- ulinn og myndun móbergsfjalls inni í jökli. Könnun á eldstöðvunum hefur staðið yfir frá því gosi lauk. Fylgst hefur verið með stærð og lögun sigdældar og gjár, innstreymi íss með DGPS-mælingum á færslu stika, hitastigi og efnasamsetningu vatns og gosefna og unnið að þyngdarmælingum til þess að kanna ræt- ur eldstöðvanna. íssbráðnun hefur verið metin með því að mæla stærð og rúmtak sigdælda með radarhæðarmælum úr flugvélum og GPS mælingum á jörðu niðri í maí, júní og ágúst. I júní voru settar upp stikur til að mæla ísskr- ið inn að gosstöðvunum og þær endurmældar í ágúst. I júní voru gerðar íssjármælingar eins og fært þótti vegna jökulsprungna. I maí fóru fram segulmæling- ar úr þyrlu en þyngdarmælingar á gosstöðvunum og umhverfis þær voru gerðar í maí og júní. Þá voru gos- stöðvarnar kannaðar ájörðu niðri í júnímánuði. Sigdældirnar umhverfis gosgjána hafa haldið áfram að víkka og áhrifasvæði gossins í jöklinum þar með að stækka. Dregið hefur úr bráðnun vegna kæl- ingar gosefna og er bræðslan nú rúmu ári eftir gos tal- in svipuð og af völdum jarðhita í Grímsvötnum. Ein- hver aukinn jarðhiti í Grímsvötnum gæti hafa fylgt í kjölfar gossins. Þá kom í ljós í sumar að mikil bráðnun varð næst gosstöðvunum vegna ösku á yfirborði hans. Orsök þessa er að askan gleypir mestan hluta sólgeisl- unar en snjór endurkastar miklum hluta hennar. Vegna þessarar miklu bráðnunar á yfirborði fylltist gosgjáin af vatni þegar leið á sumarið. í júní tókst að fara með íssjá niður í gosgjána og í sigketilinn yfir nyrðri hluta gosstöðvanna. Frumniður- stöður staðfesta að fjall hefur hlaðist upp undir jökl- inum eftir endilangri gossprungunni. Nyrst, þar sem ísþykkt var 750 m fyrir gosið, rís fjallið um 150 m hærra en botninn fyrir gosið. Syðst á sprungunni hef- ur hlaðist upp allt að 200 m hátt fjall. Um miðjuna, þar sem gosið náði upp úr jöklinum, er nú fjall sem nær upp í 1550 m hæð yfir sjó. Upphleðsla í gosinu á þess- um stað er 300-350 m. Kollur hins nýja móbergsfjalls gægðist upp úr ísnum niðri í gosgjánni. Við vettvangs- könnun voru tekin sýni úr fjallinu og hitastig í gjósk- unni sem myndar fjallið reyndist um 70°C á 60-80 cm dýpi. Þar fer nú fram ummyndun gjóskunnar í mó- berg. Syðri hluti gossprungunnar liggur ofan á hrygg sem myndaðist í gosi 1938. Hefur hryggurinn hækkað svo að hann rís nú um 500 m yfir botn en var hæst um 200 m yfir honum fyrir gosið. Haldi gosvirknin áfram gæti myndast þarna sker í jöklinum. JÖKULL No. 48 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.