Jökull - 01.06.2000, Síða 83
/
Jarðfræðafélag Islands
Skýrsla formanns fyrir starfsárið 1997-1998
INNGANGUR
Á liðnu starfsári voru haldnir níu stjórnarfundir og
gefin út sjö fréttabréf.
Félagið gekkst fyrir þremur ráðstefnum. Sú fyrsta
var hálfsdagsráðstefna um kvikuhólf, þá gekkst félag-
ið ásamt Kirkjubæjarstofu fyrir ráðstefnu á Krikju-
bæjarklaustri er bar yfirskriftina Eldgos í vestanverð-
um Vatnajökli og afleiðingar þeirra og sú þriðja var ár-
leg Vorráðstefna félagsins, án nokkurs ákveðins þema.
Ágrip fyrirlestra og veggspjalda voru gefin út í sér-
stökum heftum fyrir ráðstefnurnar sem haldnar voru
hér í Reykjavík.
Sjö fræðslufundir voru haldnir auk þriggja fyr-
irlestra Steve Sparks á vegum Sigurðarsjóðs. Allir
fræðslufundir voru kynntir í Fréttabréfinu, en auk þess
voru sendar út auglýsingar á stofnanir sem jarðvís-
indamenn vinna nokkrum dögum fyrir hvern fund.
Jón Eiríksson var fulltrúi Jarðfræðafélagsins á
formannafundi jarðfræðafélaganna á Norðurlöndum
sem haldinn var í tengslum við Norræna Vetrarmót-
ið í Árósum í janúar síðastliðnum. Það kemur í hlut
okkar að halda mótið árið 2002 en í millitíðinni verð-
ur vetrarmót haldið í Þrándheimi árið 2000. Um 400-
500 manns sóttu síðasta vetrarmót í Árósum og það
er ljóst að það þarf að halda vel á spöðunum til þess
að undirbúa ráðstefnu af þessari stærðargráðu. Helstu
kvörtunarefni ráðstefnugesta á síðasta vetrarmóti sem
hér var haldið árið 1992 var að hún væri dýr. Kostnaði
verður að halda í lágmarki, t.d. með því að sækja um
styrk(i) til ráðstefnuhaldsins.
Heimasíða var opnuð á starfsárinu en einn stjórn-
armanna, Georg Douglas hefur alfarið séð um gerð
hennar. Hún er á tölvu Orkustofnunar og hefur Skúli
Víkingsson á Orkustofnun tekið að sér að uppfæra
hana eftir því sem við á.
RÁÐSTEFNA UM KVIKUHÓLF
Það er komin nokkur hefð á að Jarðfræðafélagið gang-
ist fyrir ráðstefnu í febrúarmánuði um eitthvert ákveð-
ið efni innan jarðvísindanna, sem mönnum finnst
tímabært að ræða frá ýmsum sjónarhornum. Að þessu
sinni var Febrúarráðstefna JFÍ haldinn þriðjudaginn
17. febrúar og helguð kvikuhólfum. Níu erindi voru
haldin þar sem fram komu nýjustu hugmyndir þeirra
sem rannsakað hafa megineldstöðvar og innskot og
eitla á yfirborði. Einnig voru viðhorf bergfræðinnar
til kvikuhólfa rædd svo og hvað hæðar-, þyngdar-,
segul- og skjálftamælingar geta sagt okkur um tilvist
og gerð kvikuhólfa. í lok ráðstefnunnar tók Guðmund-
ur Sigvaldason á Norrænu Eldfjallastöðinni efni henn-
ar saman og stjórnaði almennum umræðum. Ráðstefn-
an þótti takast mjög vel og miklar og líflegar umræður
spunnust um kvikuhólf. Ráðstefnugestir voru um 110.
RÁÐSTEFNA Á
KIRKJUB Æ JARKLAUSTRI
Kirkjubæjarstofa og Jarðfræðafélag íslands stóðu fyr-
ir ráðstefnu á Kirkjubæjarklaustri helgina 21. og 22.
mars sl. þar sem 9 erindi voru flutt um efnið: Eld-
gos í vestanverðum Vatnajökli og afleiðingar þeirra.
Þótti ráðstefnan takast með eindæmum vel og voru
heimamenn sérstaklega ánægðir með fróðleg og al-
þýðleg erindi fyrirlesara. Fyrirlesarar voru þau Bryn-
dís Brandsdóttir, Guðrún Larsen, Haukur Jóhannes-
son, Helgi Björnsson, Magnús Tumi Guðmundsson,
Oddur Sigurðsson, Sigurður Gíslason og Snorri Zóph-
óníasson. Félagið kann fyrirlesurum bestu þakkir fyr-
ir. Milli 50 og 60 manns mættu á ráðstefnuna.
JÖKULLNo. 48 81