Jökull - 01.06.2000, Blaðsíða 84
Arný E. Sveinbjömsdóttir
VORRÁÐSTEFNA 1998
Vorráðstefna félagsins var haldin þriðjudaginn 21.
apríl í Borgartúni 6 og stóð frá kl. 09:00 til 17:20.
Ráðstefnan var með svipuðu sniði og undanfarin ár,
ekkert ákveðið þema heldur erindi og veggspjöld um
viðfangsefni á sviði jarðfræða. A dagskrá þessu sinni
voru 16 erindi og 14 veggspjöld. Höfundar þess efn-
is sem kynnt var á ráðstefnunni voru um 60 talsins
eða um þriðjungur skráðra meðlima Jarðfræðafélags-
ins. Um 80 manns mættu á ráðstefnuna. Að lokinni
dagskrá bauð Jarðfræðafélagið upp á léttar veigar.
FRÆÐSLUFUNDIR
Haldnir voru sjö fræðslufundir á liðnu starfsári auk
þriggja fyrirlestra á vegum Sigurðarsjóðs. Fundirnir
voru misvel sóttir, en á þá mættu allt frá 15 og upp í
50 manns. Fundirnir voru flestir haldnir í í Odda en
nokkrir í Lögbergi.
Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, jarðefnafræðing-
ur við háskólann í Bristol, Englandi, flutti fyrirlest-
ur mánudaginn 23. júní. Fyrirlestur hennar byggði á
rannsóknum sem hafa verið unnar með rófgreiningu
og fyrirlesturinn fjallaði um Aðsog fjölliða og þung-
málma á yfirborð steinda.
Dr. Lars Harald Blikra flutti erindi mánudaginn
30. júní um: Avalanche hazard and extreme weather
events. Studies of avalanche deposits (colluvium) in
western Norway. Dr. Lars Harald Blikra starfar við
Jarðfræðistofnun Noregs (NGU) og hefur starfað þar
frá 1986 og var hér í stuttri heimsókn til að vinna með
sérfræðingum sjóflóðavarna Veðurstofunnar.
Vetrarstarf félagsins hófst í október með þremur
gestafyrirlestrum prófessors R.S.J. Sparks, eldfjalla-
fræðings sem kom hingað til lands í boði Sigurðar-
sjóðs. Er hann fjórði fyrirlesarinn sem boðinn er hing-
að til lands í 10 ára sögu sjóðsins. Tveir af fyrirlestrum
Sparks fjölluðu um gosið í Soufriere eldfjallinu á eyj-
unni Montserrat í Karíbahafinu, en þar hófst eldgos í
júlí 1995. Það var fyrst og fremst vegna þessa goss
sem heimsókn Steve Sparks hingað til lands drógst
á langinn, en hann er vísindalegur ráðgjafi breskra
stjórnvalda á eyjunni og var kallaður þangað þegar gos
hófst. Þriðji fyrirlestur Sparks fjallaði um eldfjalla-
fræði og þróun Lascar eldfjallsins í Chile. Mjög góður
rómur var gerður að fyrirlestrunum en á hvern þeirra
hlýddu um 50 manns.
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur, sem
starfar nú í Perth í Astralíu hélt fyrirlestur á vegum
félagsins þriðjudaginn 28. október og fjallaði um gos-
in í Ruapehu 1995-1996 og þann lærdóm sem af þeim
má draga. Ruapehu eldkeilan, sem er stærsta og virk-
asta eldfjall Nýja Sjálands, vaknaði til lífs á ný eftir
rösklega 18 ára goshlé í september 1995. I máli Þor-
valdar kom m.a. fram að eldvirknin einkenndist af
tveimur goshrinum og þrátt fyrir að gosin hafi verið
smá og rúmmál gosefna lítið (<0.1 km3) þá var tjón af
völdum þeirra metið á meira en 100 milljónir dollara.
Um 35 manns hlýddu á fyrirlestur Þorvaldar.
Þorsteinn Þorsteinsson jarðeðlisfræðingur við Al-
fred Wegener stofnunina í Bremerhaven, hélt fyr-
irlestur miðvikudaginn 19. nóvember um kristal-
gerð og lagskiptingu í GRIP-ískjarnanum og Eem-
vandamálið. Þorsteinn rakti þær rannsóknir sem gerð-
ar hafa verið á kjarnanum, sérstaklega með tilliti til
fornveðurfars. Mjög góður rómur var gerður að máli
Þorsteins, en 20 manns voru mættir á fundinn.
Á jólafundinum, sem haldinn var í Lögbergi þann
10. desember sagði Steinar Guðlaugsson, jarðeðlis-
fræðingur á OS, frá gígnum Mjölni í erindi sem hann
nefndi: Hvað gerist þegar smástirni fellur í hafið? Fyr-
irlesturinn var bæði fróðlegur og skemmtilegur og
gáfu menn sér góðan tíma til að spjalla á eftir yfir
kaffi, konfekti og piparkökum í boði félagsins. Um 40
manns mættu á fundinn.
Janúarerindið flutti Leó Kristjánsson, jarðeðlis-
fræðingur við Raunvísindastofnun Háskólans, en það
var um rannsóknir á segulstefnu í íslenskum jarðlög-
um. Leó gaf yfirlit yfir rannsóknir á varanlegri seg-
ulmögnun í íslenskum jarðlögum frá upphafi. Síð-
an sagði hann frá nokkrum nýlegum og yfirstandandi
verkefnum Raunvísindastofnunar Háskólans og sam-
starfsaðila í bergsegulmælingum; sem tengjast flest
stratigrafískri kortlagningu í tertiera staflanum. Einnig
kynnti hann ýmsar niðurstöður og hugmyndir erlendis
frá varðandi uppruna og sögu jarðsegulsviðsins.
í framhaldi af kvikuhólfsráðstefnunni í febrúar
var boðað til fræðslufundar fimmtudaginn 26. fe-
brúar, þar sem Dr. Emilie Hooft jarðeðlisfræðingur
við Carnegie stofnunina í Washington DC hélt erindi
82 JÖKULL No. 48