Jökull - 01.06.2000, Qupperneq 87
Vorferð JORFI1998
Magnús Tumi Guðmundsson
Raunvísindastofnun Háskólans, Hofsvallagötu 53, 107 Reykjavík
Vatnajökull er ekki samur og var fyrir gosið í Gjálp
fyrir tæpum tveimur árum. Stór sprungin sigdæld,
þakin ösku er enn á milli Grímsvatna og Bárðar-
bungu. Frá sigdældinni liggur drag niður til Gríms-
vatna og þar er íshellan nú sprungin og varasöm yfir-
ferðar. Meðfram austanverðu Grímsfjalli liggur kröpp
og sprungin rás þar sem farvegur jökulhlaupsins mikla
lá niður undir Skeiðarárjökul. Jökullinn vinnur nú að
því að lækna þessi sár og þau ferli sem eiga sér stað,
ísskrið, jarðhiti, vatnsrennsli og fl. eiga sér ekki hlið-
stæðu á síðari áratugum. Því er það að Jöklarann-
sóknafélagið hefur staðið að mjög umfangsmiklum
vorferðum, bæði í fyrra og nú í ár til að gefa vísinda-
mönnum sem best tækifæri á að rannsaka afleiðingar
goss og hlaups.
Vorferðin stóð í 13 daga og var tvískipt. I fyrri
hópnum voru 24 en 23 í þeim síðari. Nokkrir voru
allan tímann og heildarfjöldi þátttakenda 37. Farar-
stjóri var Magnús Tumi Guðmundsson en Sjöfn Sig-
steinsdóttir og Þóra Karlsdóttir sáu um innkaup og
birgðahald á mat. Farartæki voru snjóbíll Landsvirkj-
unar, jeppar og vélsleðar.
Föstudaginn 5. júní lagði leiðangurinn af stað
úr Reykjavrk. Fyrstu nóttina var gist í Jöklaseli
við Skálafellsjökul. Næsta dag var flutningi, mæli-
tækjum, nesti, farangri og eldsneyti, umstaflað og end-
urpakkað. Eins og oftast var það talsvert stúss og bras.
Að lokum lagði lestin af stað upp jökulinn: Snjóbíll,
fjórir jeppar og sex vélsleðar. Eftir nokkurra klukku-
stunda ferð kom hópurinn á Grímsfjall. Þoka var, en
að öðru leyti sæmilegasta veður. Næsta dag var veður
orðið bjart og hélst svo að mestu ferðina á enda. Urðu
því engar frátafir vegna veðurs sem kom sér vel enda
verkefnin ærin.
1 Gjálp 8. júní. Myndin er tekin í gosgjánni, nokkur
hundruð metrum sunnan við gíginn. Yfirbyggði sleð-
inn hýsir íssjána.
RANNSÓKNIR
Viðamestu verkefnin tengdust umbrotunum í Vatna-
jökli haustið 1996. Þeirra stærst var borun á þremur
holum niður á botn jökulsins við Grímsvötn með
heitavatnsbor. Við það verk unnu jafnan 3-5 manns
og fleiri undir lokin þegar vaktir voru, einkum við
að moka snjó í tunnu þar sem snjórinn var bræddur.
Vatnið var síðan hitað og því dælt ofaní holuna til að
bræða bornum leið niður gegnum ísinn. Var bræðslut-
unnan æði þurftafrek og fékk viðurnefnið Gípa eftir
söguhetjunni í ævintýrinu. Með þessum hætti var
boruð 320 m djúp hola á milli Grímsvatnaskarðs og
Grímsvatna og önnur hola í gegnum 280 m þykka ís-
helluna á borstaðnum. í báðum holum var þrýstiskynj-
urum komið fyrir á botni jökulsins og skrá þeir nú
vatnshæð Grímsvatna og vatnsþrýsting við botninn á
þröskuldinum. Vonast er til að þessar mælingar varpi
nýju ljósi á eðli hlaupa úr Grímsvötnum. Þá voru
JÖKULL No. 48 85