Jökull - 01.06.2000, Side 89
Vorferð JORFI1998
Eiríkur Kolbeinsson og Þóra Karlsdóttir í Grímsvötn-
um 7. júní.
Og ekki er allt upp talið. Fyrri vikuna mældi
leiðangurinn jarðleiðni á sniðum milli Köldukvíslar-
jökuls og Skálafellsjökuls, en með þeim mælingum
verður hægt að Ijúka gerð korts af jarðleiðni á íslandi.
Að því verki hefur verið unnið við Háskóla Islands
undanfarin ár. Veðurstöðvar Raunvísindastofnunar og
Landsvirkjunar á Köldukvíslarjökli, Dyngjujökli og
Brúarjökli fengu heimsókn og nauðsynlegt viðhald.
Eftir góðviðrisdaga marga á Vatnajökli lagði leið-
angurinn af stað til byggða þann 17. júní. Til Reykja-
víkur komum við svo daginn eftir. Fátt var um stórat-
burði í ferðinni en árangur þess meiri. Reyndar gekk
væg magapest og fengu hana flestir áður en yfir lauk.
Voru settar fram margar kenningar um uppruna pestar-
innar en sú sem flesta átti fylgismenn gerði ráð fyrir að
miður hollur snjór hefði borist í bræðslupottinn Bis-
mark og mengað þannig drykkjarvatnið. Þarf að huga
að úrbótum í þessu efni.
LOKAORÐ
Vorferð þessi gekk vel og fumlaust fyrir sig. Sá kjarni
jöklamanna sem nú stundar vorferðir er orðinn mjög
reyndur og inniheldur sérfræðinga og hina færustu
handverksmenn sem sjaldan verður ráðafátt þegar
gera þarf við biluð tæki og halda mælingum gang-
andi. Þessi reynsla jöklamanna er einn dýrasti fjár-
sjóður Jöklarannsóknafélagsins. í þessari vorferð og
Fiona Darbyshire, Þórdís Högnadóttir, Þorsteinn
Jónsson, Jósef Hólmjárn og Halldór Gíslason yngri
á veröndinni sunnan við skála II á Grímsfjalli þann
13. júní.
þeirri síðustu hefur verið safnað miklum gögnum um
umbrotin haustið 1996 og afleiðingar þeirra. Sérstök
fjárveiting frá Alþingi til Raunvísindastofnunar vegna
rannsóknanna hefur greitt útlagðan kostnað að miklu
leyti. Landsvirkjun lagði til snjóbíl og ökumann og
Vegagerðin styrkti félagið til eldsneytiskaupa.
ÞÁTTTAKENDUR:
Allan tímann voru:
Finnur Pálsson, Fiona Darbyshire, Freyr Jónsson,
Halldór Gíslason, Hannes Haraldsson, Jósef Hólm-
járn, Magnús Tumi Guðmundsson, Sjöfn Sigsteins-
dóttir, Þórdís Högnadóttir og Þorsteinn Jónsson
Fyrri hluta leiðangursins voru:
Árni Páll Árnason, Eiríkur Kolbeinsson, Elín Pálma-
dóttir, Grímur Sigurjónsson, Guðfinna Aðalgeirs-
dóttir, Inga Árnadóttir, Jóhanna Margrét Einarsdóttir,
Jóna Bryndís Guðbrandsdóttir, Snævarr Guðmunds-
son, Sæmundur Óskarsson, Þóra Karlsdóttir, Val-
gerður Jóhannsdóttir og Wes LeMasurier
Seinni hluta leiðangursins voru:
Anna Líndal, Ástvaldur Guðmundsson, Bergur Bergs-
son, Elín Jónsdóttir, Guðrún Thorarensen, Gunnar
Páll Eydal, Jón Sveinsson, Jórunn Garðarsdóttir,
Leifur Jónsson, Magnús Þór Karlsson, Matthildur B.
Stefánsdóttir, Rob Staples, Steinunn Jakobsdóttir og
Þórdís Guðmundsdóttir
JÖKULL No. 48 87