Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 22
22 Umræða Vikublað 14.–16. október 2014 248 kr. Umsjón: Henry Þór Baldursson Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni Mótvægisaðgerðir við ríkisstjórnina! V erandi nýkomin úr kjör­ dæmaviku er þetta það sem kemur upp í hugann eftir fundi með sveitar­ stjórnarmönnum og heimamönnum í Norðvesturkjör­ dæmi. Kjördæmið er að mörgu leyti ólíkt innbyrðis hvað atvinnu og samgöngur snertir en skila­ boð og áherslur til okkar þing­ manna voru gegnumgangandi þessi: „Leyfið því að standa og þró­ ast áfram sem vel hefur tekist til og byggið áfram á þeim grunni þótt fyrri ríkisstjórn hafi komið því á legg og takið á með okkur íbúun­ um í uppbyggingu innviða samfé­ lagsins.“ Menntun Norðvesturkjördæmi hefur verið skilgreint með lágt menntunar­ stig og átak er í gangi í því að lyfta því upp með auknu sam­ starfi við símenntunarmiðstöðvar og framhaldsskóla á svæðinu um aukna menntun á vinnumarkaði. Dreifnám hefur víða byggst upp sem skipt hefur sköpum fyrir nem­ endur og eflingu byggða. Sá mikli niðurskurður sem beinist að fjar­ námi, starfs­ og verknámi og það að útiloka nemendur eldri en 25 ára frá framhaldsskólunum, geng­ ur þvert gegn því markmiði og einnig þeirri yfirlýstu stefnu að framhaldsskólarnir séu fyrir alla. Einn gamalreyndur sveitarstjórn­ armaður hafði það á orði að ef ekki yrði snúið af þessari niðurrifsbraut þá yrði það héraðsbrestur fyrir svæðið. Það eru orð að sönnu og sú fjár­ hags þumalskrúfa sem Landbún­ aðarháskólinn á Hvanneyri hefur verið settur í er annar brestur í hér­ aði sem við þingmenn kjördæmis­ ins verðum að vinda ofan af ásamt hollvinum skólans og tryggja skól­ anum ásættanlegan rekstrar­ grundvöll. Annað væri eyðilegging á því metnaðarfulla skólastarfi sem þar hefur byggst upp í gegn­ um árin. Samgöngur Mikill niðurskurður er til sam­ göngumála og þeir litlu fjármun­ ir sem ætlaðir voru til nýfram­ kvæmda fara í viðhald vega. Í kjördæminu er hlutfall héraðs­ og tengivega mjög hátt og lélegir vegir standa íbúaþróun og uppbyggingu atvinnulífs víða fyrir þrifum hvort sem við horfum til ferðaþjónustu eða uppbyggingar fiskeldis. Stór­ framkvæmdir eins og Vestfjarða­ vegur 60 og Dýrafjarðargöngin eru í uppnámi þar sem ekki hefur verið tryggt fé til framkvæmd­ anna. Brýnar framkvæmdir eins og endurbætur á Skagastrandarvegi og Þverárfjalli bíða úrlausnar en þar er umferðin orðin mikil og um­ ferðaröryggi í hættu. Niðurskurður til innanlands­ flugs og hafnarframkvæmda kem­ ur hér til viðbótar og orðaði einn sveitarstjórnarmaður það svo snyrtilega að framlag í hafnar­ bótasjóð væri brandari. Innan­ landsflugið er ekkert annað en almenningssamgöngur og niður­ skurður til flugvalla og ríkisstyrktra leiða veldur ótta um mikla þjón­ ustuskerðingu til þeirra staða sem þurfa að reiða sig á öruggar flug­ samgöngur. Sameining heilbrigðisstofnana og sýslumannsembætta Mikillar óánægju gætti vegna lítils samráðs við sveitarstjórnarmenn um sameiningu þessara stofnana og að ekki væri tekið tillit til mál­ efnalegrar gagnrýni og tillagna heimamanna um þessa málaflokka sem skipta svo miklu máli fyrir bú­ setu og þjónustustig. Dregið var til baka það loforð að löglærður aðili yrði til staðar í þeim útibúum þar sem sýslumaður sæti ekki. Ekkert hefur heldur frést af ráð­ gefandi stjórn sem átti að setja á fót vegna sameiningar Heilbrigðis­ stofnana né heldur var haft samráð við heimamenn svo ekkert liggur fyrir um hvernig skipta á fjármagni á milli stofnana eða hvernig þjón­ ustustigið verður á hverjum stað. Fjarskipti og orkumál Algjör samhljómur var á milli sveitarstjórnarmanna um að góð fjarskipti og raforkuöryggi væri undirstaða þess að viðhalda og efla búsetu. Þar er verk að vinna og óá­ sættanlegt að bilun í gömlum bún­ aði valdi algjöru sambandsleysi í langan tíma eins og gerðist á Vest­ fjörðum nýlega. Loforð stjórnvalda um að bæta þar úr er létt í vasa ef ekki fylgir nægt fjármagn til fram­ kvæmda. Tryggja verður að all­ ir landsmenn sitji við sama borð hvað varðar öryggi í fjarskiptum og afhendingaröryggi rafmagns og jöfnun orkuverðs. Norðvesturkjör­ dæmi á þar langt í land og þær til­ lögur um jöfnun á dreifingu raf­ magns sem boðaðar eru sleppa stóriðjunni og stórfyrirtækjum al­ farið við að greiða til jöfnunar orkuverðs. Niðurgreiðslur til hús­ hitunar eru alltof lágar og við bæt­ ist hærri virðisaukaskattur á raf­ magn og heitt vatn sem er ekki á bætandi og kaldar kveðjur til svo­ kallaðra kaldra svæða með hátt orkuverð. Ríkið þarf að taka á með landsmönnum. Niðurskurður á Sóknaráætlun landshlutanna og á Framkvæmda­ sjóði ferðamannastaða er ekki til þess fallinn að létta róður þeirra staða sem hafa verið að byggja upp eftir Hrun og treyst á ríkisvaldið að standa við sinn hlut. Hækkun virðisaukaskatts á matvöru bitn­ ar líka enn frekar á íbúum þeirra svæða þar sem flutningskostnaður er mikill og matvara dýrari en þar sem aðgengi er að lágvöruverslun­ um. Það er því ekki að undra að maður spyrji sig: „Hvaða mót­ vægisaðgerðir duga til að opna augu ríkisstjórnarinnar fyrir því að nú þurfi að snúa vörn í sókn með landsmönnum í öflugri upp­ byggingu innviða samfélagsins?“ Árangur erfiðra aðgerða í kjölfar Hrunsins má ekki glatast. Hann á að skila sér í bættum hag allra landsmanna en ekki bara sumra! n „Einn gamalreynd- ur sveitarstjórn- armaður hafði það á orði að ef ekki yrði snúið af þessari niðurrifsbraut þá yrði það héraðsbrestur fyrir svæðið. Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður Norðvesturkjördæmis Kjallari „Ég reikna með því að þetta yrðu viðbrögð þín ef konan þín myndi halda framhjá þér,“ sagði Garðar Örn Hinriksson sem brást við hlátrasköllum annars lesanda undir frétt um að dvergvaxinn strippari hefði barnað tilvonandi brúði í gæsateiti. 21 „Meðan múslimar geta ekki aðlagað sig að siðum þeirra þjóða sem þeir flytja til .Þá eiga þeir að halda sig heima hjá sér. Og annað, ég vil ekki sjá þessa mosku,“ segir Eiríkur Franz Ragnars- son við brot úr viðtali við Sveinbjörgu Birnu Svein- björnsdóttur borgarfulltrúa sem sagði í helgarblaði DV að hún teldi ekki þurfa að reisa mosku hér á landi. 16 „Mikið væri heimurinn smár og ómerkilegur ef allt væri eins og þessari konu finnst það ætti að vera,“ segir Gunnar Jörvi Ásgeirs- son um ummæli Sveinbjargar Birnu. 13 „Fólk hefur sinn rétt til að velja eða hafna inngöngu í ESB og sú niðurstaða fæst eingöngu með kosningum … ég hef ákveðið að segja já ef innganga er í boði. ESB já takk,“ segir Arnar Sigurðsson við grein um ummæli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem er undr- andi á þeim sem segja að ekki sé hægt að taka upplýsta ákvörðun um aðild að ESB nema samningur liggi fyrir. 16 „Það er svolítið fyndið að þegar Egill Helgason, sem ég man ekki eftir að hafi gert neitt merkilegt sjálfur, reynir að tala niður til Geirs Haarde koma þessir „virkur í athugasemdum“ og kinka kolli hver á fætur öðrum. Ef Geir lægi á jörðinni fyrir framan þá myndu þeir sennilega sparka í hann. Og á hvaða forsendum? Þeim einu að þegar Gróa og vinir hennar blása, snúast vindhanarnir,“ segir Tryggvi Þór Tryggvason eldri um frétt um þá skoðun Egils Helgasonar að Geir Haarde hafi ekki efni á að tala niður til annarra stjórnmálamanna. 13

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.