Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 25
Neytendur 25
Bestu kaupin í Galaxy s4 Mini
n Þetta eru bestu snjallsímarnir undir 60 þúsundum í gæðaprófi ICRT n Sparaðu og kauptu eldri týpur n Fá ekki síðri einkunn en nýju og dýru símarnir
Helstu tækniupplýsingar um símana:
1 Símtæki (20%) Hversu auðvelt er að ferðast með símann
og hvaða skemmdir verða á honum við
óhöpp og ýmsar erfiðar aðstæður, eins og
t.d. við að detta í gólfið eða lenda í bleytu.
Auk þess var líftími rafhlöðu kannaður við
mismunandi aðstæður.
2 Þægindi í notkun (16%)Hversu þægilegur síminn er í notkun,
hversu þægilegt er að ýta á takka eða nota
skjáinn.
3 Hringingar og SMS (15%) Hversu vel heyrist í sím-
anum þegar hringt er í einhvern og hversu
auðvelt er að skilja viðmælandann meðan
á símtali stendur.
4 Myndavél (10%) Myndgæði myndavéla voru athuguð og einnig
hversu vel þær virka við mismunandi að-
stæður. Einnig var kannað hversu auðvelt er
að vinna með myndir sem teknar eru.
5 Myndbandsupptaka (5%) Mynd- og hljóðgæði mynd-
banda voru prófuð á þeim símum sem hafa
þann möguleika að taka upp myndbönd.
6 Tónlist (10%) Hvers konar tónlistarskrár síminn getur spilað.
Einnig var athugað hvort hægt sé að spila,
pása, hoppa yfir lag og leita að lögum,
og hvort hægt sé að stilla hljóðstyrk.
Hljóðgæði voru prófuð og skoðað hvort
möguleiki sé á að heyrn skaðist ef stillt er
of hátt.
7 Internet og tölvupóstur (15%) Prófað var hversu hratt
vafrinn virkar, hversu þægilegt er að vafra á
internetinu og hvernig vefsíðusniðið virkar.
Einnig athugað hversu vel tölvupóstur
virkar í símanum.
8 Staðsetningarbúnaður (5%) Prófað var hversu nákvæm-
ur GPS-búnaður er og hvers konar
eiginleikar eru til staðar fyrir
notendur.
9 Samstilling (4%)
Athugað hversu vel síminn
tengist við tölvu og hvaða
tengimöguleika hann er
með.
Heimild: Neytenda-
blaðið 3. tbl. 60.
árg – september 2014.
(www.ns.is)
Þetta var athugað í gæðaprófi ICRT
Ítarlegar prófanir við hin ýmsu skilyrði
Samsung Galaxy
S4 mini
Skjár: 4.3" Super Amoled,
540x960, 256 ppi Stýri-
kerfi : Android OS, v4.2.2
(Jelly Bean) Örgjörvi: 1.7
GHz Dual-Core örgjörvi
Minni: 8GB, rauf fyrir micro
SD minniskort (allt að
64GB), 1,5GB vinnsluminni
Myndavél: 8 Megapixla,
2 Megapixla að framan,
LED flass, Auto focus, Full
HD myndbandsupptaka
á 30 fps Rafhlaða: 1900
mAh Stærð: 124.6 x 61.3 x
8.9 mm Þyngd: 107 grömm
Verð: 54.900 kr.
á emobi.is
Samsung Galaxy
Grand Duos
Skjár: 5" TFT WVGA fjölsnertiskjár,
480x800, 187 ppi Stýrikerfi: Android
4.1.2 (Jelly Bean) Örgjörvi: 1,2 GHz Du-
al-Core A9 Minni: 8GB, rauf fyrir micro
SD minniskort (allt að 64GB), 1 GB
vinnsluminni Myndavél: 8 Megapixla,
1080-30 fps HD myndbandsupptaka,
2 megapixla að framan Rafhlaða:
2100 mAh Stærð: 143.5 x 76.9 x 9.6
mm Þyngd: 162 grömm
Verð 49.900 kr. á emobi.is
Samsung
Galaxy SIII 4G
Skjár: 4,8" HD Super
Amoled, 720x1280, 306
ppi Stýrikerfi: Android
4.0.4 Ice Cream Sand-
wich Örgjörvi: Quad
Core, 1,4GHz Cortex A9
Minni: 16Gb, rauf fyrir
micro SD (allt að 64
GB), 1 GB vinnsluminni
Myndavél: 8 megapixla,
720p myndbands-
upptaka á 30fps, 1.3
megapixla að framan
Rafhlaða: 2100 mAh
Stærð: 136.6 x 70.6 x 8.6
mm Þyngd: 133 grömm
Verð: 54.900 kr. í Símanum
Nokia Lumia 925
Skjár: 4.5" Amoled, 768 x 1280,
332 ppi Stýrikerfi : Microsoft
Windows Phone 8 Örgjörvi:
Dual-core 1.5 GHz Minni: 16GB,
1 GB vinnsluminni Myndavél: 8
MP, 3264 x 2448 pixel, 1,3 MP að
framan, myndbandsupptaka
1080p á 30fps Rafhlaða: 2000
mAh Stærð: 129 x 70.6 x 8.5 mm
Þyngd: 138 grömm
Verð: 59.900 á emobi.is
iPhone 4S 8GB
Skjár: 3.5", 640 x 960 pixla,
330ppi Stýrikerfi: iOS 7 Örgjörvi:
Dual-core 1 GHz Cortex-A9
Minni: 8Gb, 512 MB vinnsluminni
Myndavél: 8 megapixla, 1080p
myndbandsupptaka á 30fps,
VGA að framan Rafhlaða: 1432
mAh Stærð: 115.2 x 58.6 x 9.3
mm Þyngd: 112 grömm Verð:
49.990 kr. í Símanum
Íslendingar sjúkir í sófaborð Söstrene Grene
n Seljast upp á örskotsstund n Lá við handalögmálum í þvögunni síðast en nú eru þau væntanleg aftur
V
ið réðum bara ekki við þetta,
æsingurinn var svo mikill,“
segir Brynja Scheving, eig-
andi Söstrene Grene í
Kringlunni og Smáralind, um
áganginn og eftirspurnina eftir ódýr-
um sófaborðum sem eru svo eft-
irsótt að örtröð myndaðist á sölu-
stöðum í byrjun september þegar
þau komu í hús. Hundruð viðskipta-
vina biðu fyrir utan verslanirnar og í
Kringlunni myndaðist þvaga af fólki
sem æst var í að eignast hin eftir-
sóttu borð. Nú eru þau væntanleg
aftur til landsins þann 24. október
og er mikill viðbúnaður vegna þess
hjá Söstrene Grene.
En af hverju eru þessi tilteknu
borð svona vinsæl hjá íslenskum
húsmæðrum? Svarið liggur í því
að þeim svipar mjög til danskra
hönnunarborða sem eru í mikilli
tísku og kosta tugi ef ekki hundruð
þúsunda króna. Borðin hjá Söstrene
Grene koma í tveimur stærðum og
kosta aðeins rúmar 4.600 krónur og
rúmlega 8.800 krónur. Brynja seg-
ir að þau séu þó fullkomlega lögleg
og ekki ólöglegar eftirlíkingar. Sö-
strene Grene hanni borðin og láti
framleiða fyrir sig, að hún hafi fengið
borðin tvisvar í kringum jólin og svo
nú í byrjun september. Í síðarnefnda
skiptið hafi borðin verið „hype-uð“
upp sem hluti af haustherferð búð-
anna í Evrópu.
„Þau eru bara mjög falleg og vin-
sæl og framleiðandinn hefur ekki
undan því Söstrene Grene hann-
ar þau og lætur framleiða þau og
er með sínar 50–60 búðir í Evrópu
þannig að við höfum ekki feng-
ið þetta í miklu upplagi. Og svo eru
þau á mjög góðu verði fyrir fólk sem
er að sjá sambærileg borð á ein-
hverja hundrað þúsund kalla.“ Slík
var örtröðin í september að það lá
við handalögmálum á sölustað þar
sem barist var um stöðu. Brynja seg-
ir að í Smáralind hafi verið búið að
mynda snyrtilega röð þegar starfs-
menn opnuðu og náði hún fram eft-
ir ganginum og langt fram fyrir horn.
„En í Kringlunni var bara þvaga
og ég var að reyna að opna en fékk
ekki konurnar til að fara í röð. Þannig
að það varð bara kaótískt. Eigin-
lega múgæsing, og þessi 200–300
borð sem ég var með voru farin af
brettinu á korteri. Svo var ég klukku-
tíma að afgreiða röðina sem náði í
gegnum alla búðina og við urðum
að setja takmörk, tvö borð á mann
og þvíumlíkt svo allir fengju. En svo
er ég að fá einhvern slatta af þessum
borðum aftur núna 24. október en
það verður örugglega ekki nóg.“
Söstrene Grene setti sérstaka til-
kynningu vegna komu borðanna á
Facebook-síðu sína í síðustu viku
þar sem tilkynnt var um reglur
sem myndu gilda á sölustöðum í
þetta skipti. Verslanir verða opnað-
ar klukkan 10, starfsfólki er bannað
að taka frá borð fyrir fólk og þá verð-
ur hleypt inn í hollum ef eftirspurn-
in verður jafnmikil og síðast. Tveir
starfsmenn í hvorri búð muni svo
annast símasölu fyrir landsbyggð-
ina.
Þá verði komið fyrir skiltum
kvöldið áður þar sem fólk sem mætir
snemma verður vinsamlegast beðið
um að fara í röð. n mikael@dv.is
Borð í tísku Barnshafandi konur og fólk
með barnavagna átti fótum sínum fjör að
launa í æsingnum sem myndaðist við versl-
un Söstrene Grene í Kringlunni síðast þegar
þessi borð voru til sölu. MyND SöStreNe GreNe
Vikublað 14.–16. október 2014