Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 2
Vikublað 14.–16. október 20142 Fréttir Borgar sig að borga ekki Á dýrustu bílastæðunum í mið­ borg Reykjavíkur er ódýrara að fá sekt en greiða stöðumæla­ gjald sé bílnum lagt þar í sama stæði allan daginn. Klukku­ stund á dýrustu gjaldsvæðun­ um, sem merkt eru P1, kostar 225 krónur. Sé bíl lagt þar í átta klukkustundir, frá klukkan 9 til 17, er stöðumælagjaldið 1.800 krónur. Stöðumælasekt er 2.500 krónur en sé greitt inn­ an þriggja daga lækkar hún í 1.400 krónur. Ætli fólk að hafa bílinn í stæðinu allan daginn er því ódýrara að fá sekt en greiða í stöðumælinn. Á ódýrari bíla­ stæðum sem merkt eru P2, P3 og P4 er gjaldið fyrir daginn þó lægra en stöðumælasekt. Samkvæmt upplýsingum frá Bílastæðastjóði er sett ein sekt á bíl yfir daginn en sé hann færður í annað stæði eftir að sektin er sett á og ekki greitt þar heldur, hlýtur eigandi bílsins aðra sekt. T engdafaðir Bjarna Bene­ diktssonar fjármálaráðherra, Baldvin Jónsson, fær 18 millj­ ónir á ári frá ríkissjóði fyrir verkefnastjórnun á kynningu og markaðssókn íslenskra matvæla í Bandaríkjunum. Í fjárlögum fyrir árið 2014 eru átján milljónum heitið í „markaðssetning og kynning á íslenskum matvælum á erlendri grund“ og er í undirflokk ut­ anríkisráðuneytisins „ýmis verkefni“. Þessi liður var einn mjög fárra liða sem hækkaði í fjárlögum til utanríkis­ ráðuneytis frá árinu 2012, en fyrir var 12 milljónum króna varið í þennan málaflokk. Baldvin hefur samtals fengið rúmlega 400 milljónir króna frá ríkissjóði í þau nærri tuttugu ár sem hann hefur verið í Bandaríkjunum. Baldvin hefur aðstöðu við ís­ lenska sendiráðið í Washington og er þar titlaður sem landbúnaðarfull­ trúi (e. agricultural attaché). Sjálfur segir Baldvin að laun hans séu aðeins helmingur upphæðarinnar, en nefn­ ir þó að útgjaldaliðir telji líka til hús­ næðis síns í Bandaríkjunum sem og flug fram og til baka frá Íslandi. Vinnur sjálfstætt á ríkislaunum Í upphafi sumars sendi DV fyrir­ spurn til utanríkisráðuneytisins og spurði í hvað milljónirnar átján færu. Urður Gunnarsdóttir, upplýsinga­ fulltrúi ráðuneytisins, segir að um sé að ræða markaðsverkefni sem hafi verið rekið frá árinu 1995. „Verkefnið var lengst af undir yfirstjórn land­ búnaðarráðuneytis og síðar í umsjá Bændasamtaka Íslands og naut fjár­ stuðnings frá ríkinu, flest árin í kring­ um 25 mkr. Frá árinu 2006 hefur utanríkisráðuneytið átt óbeina að­ komu að verkefninu með þeim hætti að verkefnisstjóri þess hafði starfs­ aðstöðu við Sendiráð Íslands í Wash­ ington þótt hann ynni að öðru leyti sjálfstætt,“ svarar Urður. 380 milljónir á 16 árum Það má segja að markaðssetningar­ starf Baldvins í Bandaríkjunum hafi hafist með stofnun Áforms árið 1995. Það var nokkrum árum áður en Bjarni Benediktsson, tengdasonur hans settist á þing. Áform var átaks­ verkefnis sem stuðla átti að mark­ aðssetningu landbúnaðarafurða er­ lendis. Árlega var það félag stutt af ríkinu um 25 milljónir og alla tíð var Baldvin eini starfsmaður Átaks. „Þetta lækkaði árið 2009 í átján millj­ ónir, í fyrra í tólf milljónir og þar með lauk ríkið þessum beinu afskipt­ um,“ sagði Baldvin í samtali við DV árið 2011. Samkvæmt þeirri sömu frétt höfðu 380 milljónir runnið til Baldvins frá íslenska ríkinu frá árinu 1995 til ársins 2011. Fjárveitingin „vistuð í utanríkisráðuneytinu“ Í svari Urðar Gunnarsdóttur kemur fram skýring á þessu misræmi milli orða Baldvins þá og þeirri stað­ reynd að hann starfi enn á kostnað skattgreiðenda sé að árið 2012 hafi komið fram tillaga um tímabundna fjárveitingu. „Milli umræða um fjár­ lagafrumvarp ársins 2012 kom fram tillaga sem var samþykkt um að veitt yrði sérstök tímabundin fjár­ veiting eða styrkur til að halda ver­ kefninu áfram í tvö ár. Alþingi ákvað þá að fjárveitingin yrði vistuð í ut­ anríkisráðuneytinu og var hún 12 mkr. fyrir hvort ár. Ráðuneytið fól Íslandsstofu afgreiðslu þessa máls og ráðstafaði Íslandsstofa styrknum með sama hætti og árin á undan. […] Undir meðferð Alþingis á fjárlaga­ frumvarpi þessa árs kom aftur fram tillaga um framlengingu á styrk til markaðsverk efnisins um ný tvö ár, þ.e. 2014 og 2015 um 18 mkr. hvort ár,“ skrifar Urður. DV hafði samband við Urði á ný nú í október og spurði um hver af­ rakstur verkefnisins væri. „Samn­ ingurinn við framkvæmdaaðila var gerður í júní sl. og því of snemmt fyrir ráðuneytið að meta afrakstur­ inn af markaðssetningunni,“ var svar Urðar. Segir árangurinn mikinn „Árangurinn er náttúrlega sá að það er búið að móta þarna og hefja þetta starf. Það er búið að búa landbún­ aðinn undir hugsanlegan útflutning á grunvelli gæða, hollustu og hrein­ leika. Það er búið gera reglugerðir, og vinna að sérstökum kjötskurði, og fleira í þeim dúr, sem greinin var einfaldlega ekki tilbúin fyrir á þeim tíma,“ svarar Baldvin í samtali við DV aðspurður um ávinninginn af mark­ aðsstarfi hans undanfarin ár. Hann nefnir í því samhengi stóraukinn útflutning á vörum svo sem skyri, osti, smjöri, og fiski. Hann nefnir sömuleiðis þann árangur sem náðst hefur með því koma íslenskum mat­ vörum í verslunina Whole Foods. „Árangurinn hefur verið að við erum að flytja út fleiri vörutegundir í mat­ vælaiðnaði til Bandaríkjanna en öll Norðurlöndin samanlagt.“ Kostnaður við búsetu og verktakalaun Að sögn Baldvins fara milljónirnar átján ekki eingöngu í hann. „Mað­ ur verður að átta sig á því að þess­ ar átján milljónir voru tólf milljón­ ir í þrjú ár. Það var í raun verið að halda lífi í verk efninu meðan verst gekk. Síðasta ríkisstjórn ákvað að reyna að halda í lífi í þessu. Þar áður voru þetta 25 milljónir á ári,“ segir Baldvin. Hann segir að gengishrun hafi haft talsverð áhrif á verkefnið og því sé það fé sem verkefninu sé nú veitt á við fjórðung þess sem það var. „Nei, nei, þetta eru ekki bara laun mín. Það eru náttúrlega ferða­ lög og kostnaður við búsetu þarna. Síðan hefur talsvert af peningi verið sett í markaðssetningu fyrir vestan, við höfum tekið þátt í gerð auglýs­ ingaefnis og tekið á móti kaupmönn­ um hérna heima,“ segir Baldvin. Hann segir að verktakalaun hans séu fimmtíu prósent af upphæðinni. Gagnrýni í nefnd Árið 2013 var sett á fót nefnd innan utanríkisráðuneytisins sem átti að hafa það markmið að skoða allt fyrir­ komulag markaðsefnis landbúnað­ arvara Íslands erlendis. DV hefur heimildir fyrir því að innan þessar­ ar nefndar hafi verið fjallað á gagn­ rýnin hátt um störf Baldvins í Banda­ ríkjunum. Hafa bændur haft orð á því að árangur af tíu ára starfi sé nær enginn. Nefndarmenn eru fimmtán talsins samtals, flest allir frá hags­ munasamtökum, og má þar meðal annars telja Ágúst Andrésson, for­ stöðumann kjötafurðastöðvar Kaup­ félags Skagfirðinga, og Jón Ásbergs­ son frá Íslandsstofu. Þess má geta að í ágúst árið 2013 skipaði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra nýja stjórn Íslandsstofu eftir ýms­ um tilnefningum, og var þar á meðal Baldvin Jónsson. Var hann tilnefnd­ ur af Illuga Gunnarssyni, mennta­ og menningarmálaráðherra. Engin eftirlitsskylda Jón Ásbergsson segir í samtali við DV ekki hafa heyrt af neikvæðri umræðu um störf Baldvins inn­ an nefndarinnar. Hann segir þó að það gæti hafa farið framhjá sér þar sem hann hefur ekki mætt á fundi síðustu mánuði. „Þessi nefnd hefur engar eftirlitsskyldur en á hins vegar að vega og meta hvort unnt sé að efla þá sókn sem verið hefur í markaðsmálum og móta langtíma­ stefnu í útflutningsþjónustu,“ svar­ ar Jón spurður um tilgang nefndar­ innar. Hvað varðar störf Baldvins segir Jón: „Þessi nefnd er að skoða störf Íslandsstofu, einfaldlega alls staðar þar sem eru settir opinber­ ir fjármunir í markaðssetningu á erlendum vettvangi, þar með talið er þetta sem hét áður Áform. Það sem ég hef heyrt af þessu er að það var verið að tína þetta til sem einn af þessum þáttum sem að um ræð­ ir þegar talað er um fjármuni hins opinbera.“ n Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Nei, nei, þetta eru ekki bara laun mín. Það eru náttúrlega ferða- lög og kostnaður við bú- setu þarna. Baldvin Jónsson Baldvin Jónsson Hann hefur starfað við ýmsa markaðs- setningu í Banda- ríkjunum frá árinu 1995. Samtals hefur ríkissjóður veitt hon- um rúmlega fjögur hundruð milljónir króna frá þeim tíma. Mynd Gunnar GunnarSSon Tengdafaðir Bjarna Ben fær 18 milljónir n Baldvin Jónsson fær átján milljónir á ári frá ríkissjóði Par með fölsuð skilríki Karl og kona voru stöðvuð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar síð­ degis síðastliðinn föstudag vegna gruns um að skilríki sem þau framvísuðu væru ekki í lagi. Bæði höfðu þau framvísað grísk­ um vegabréfum og kennivott­ orðum. Við skoðun kom í ljós að vegabréfin voru breytifölsuð og kennivottorðin grunnfölsuð. Lögreglan á Suðurnesjum hand­ tók því parið og færði það á lög­ reglustöð. Mál fólksins er komið í hefðbundið ferli að sögn lög­ reglunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.