Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 16
16 Fréttir Erlent Vikublað 14.–16. október 2014 Þ egar Henry Kissinger flutti fyrirmæli Richards Nixon um „stórkostlegar“ sprengjuárásir á Kambó­ díu árið 1969, sagði hann: „Allt sem flýgur á allt sem hreyfist.“ Nú, þegar Barack Obama hefur sitt sjöunda stríð gegn heimi múslima síðan hann veitti friðarverðlaun­ um Nóbels viðtöku, fær skipulögð móðursýki og lygar mann nánast til að sakna banvænnar hreinskilni Kissingers. Sem vitni að afleiðingum grimmdarlegra loftárása á fólk – þar með talin höfuðlaus fórnar­ lömb, líkamshlutar hangandi í trjám og sem hráviði á ökrum – er ég ekki undrandi á að hvort tveggja minningin og sagan séu hundsuð, enn og aftur. Talandi dæmi er uppgangur og hnignun Pols Pot og Rauðu kmeranna hans, sem áttu margt sameiginlegt með Íslamska ríkinu (ISIS) í Írak og Sýr­ landi nú á dögum. Einnig þeir voru vægðarlausir fylgismenn miðalda­ kenninga sem spruttu upp úr litl­ um söfnuði. Einnig þeir voru afurð dómsdagsaðgerða Bandaríkja­ manna, þá í Asíu. Að sögn Pols Pot taldi hreyfing hans „innan við 5.000 skæruliða, illa vopnum búna, sem voru óviss­ ir um hernaðarfræði, taktík, tryggð og leiðtoga.“ Eftir að B52­sprengju­ vélar Nixons og Kissingers höfðu hafist handa sem hluti af „Oper­ ation Menu“ trúði djöfull Vestur­ landa vart hve heppinn hann var. Bandaríkjamenn vörpuðu jafn­ gildi fimm Hiroshima­sprengja á dreifbýli í Kambódíu árin 1969– 1973. Þeir jöfnuðu við jörðu hvert þorpið á fætur öðru og sneru aftur til að varpa sprengjum á rústirnar og náina. Sprengjugígarnir mynd­ uðu blóðuga festi, sem sást úr lofti. Hryllingurinn var ótrúlegur. Fyrr­ verandi embættismaður Rauðu kmeranna lýsti því hvernig eft­ irlifendur „frusu og gengu um, mállausir í þrjá eða fjóra daga. Dauðskelft og hálftryllt var fólkið reiðubúið til að trúa því sem því var sagt … Það var það sem gerði Rauðu kmerunum svo ­ auðvelt fyrir að fá fólkið á sitt band.“ Opinber finnsk rann­ sóknarnefnd mat að mannfall í þeirri borgarastyrjöld sem fylgdi í kjölfarið hafi verið um 600.000 manns og lýsti sprengjuárásunum sem „fyrsta stigi í áratugarlöngu þjóðarmorði.“ Það sem Nixon og Kissinger hófu kláraði Pol Pot, sem naut góðs af aðgerðum þeirra. Undir sprengjuregni þeirra komu Rauðu kmerarnir á legg þokkaleg­ um 200.000 manna her. ISIS býr að svipaðri fortíð og nútíð. Samkvæmt mælilkvörðum flestra fræðimanna kostaði inn­ rás Bush og Blairs í Írak 2003 um 700.000 mannslíf – í ríki sem átti ekki sögu um heilagt stríð. Kúrd­ ar höfðu gert samkomulag hvað varðaði landsvæði og stjórn­ mál; það var stéttar­ og trúarleg­ ur munur á súnní­múslimum og sjía­múslimum, en þeir lifðu í sátt og samlyndi; blönduð hjónabönd voru algeng. Þremur árum fyrir innrásina keyrði ég óhræddur um Írak þvert og endilangt. Á ferða­ laginu hitti ég fyrir stolt fólk, fyrst og fremst stolt af að vera Írakar, af­ komendur siðmenningar sem virt­ ist, í þeirra huga, enn til staðar. Þetta sprengdu Bush og Blair allt í tætlur. Nú um stundir er Írak hreiður heilags stríðs. Al­Kaída – eins og „heilagir stríðsmenn“ Pols Pot – gripu tækifærið sem „Shock and Awe“­aðgerðin og borgara­ styrjöldin sem fylgdi í kjölfar­ ið veitti. „Uppreisnar“­Sýrland var jafnvel enn gjöfulla með leið­ ir leyniþjónustu Bandaríkjanna og Flóa­ríkja fyrir vopnaflutn­ ing, ­ skipulagningu og fjármagn sem streymdi ­ í gegnum Tyrk­ land. Koma erlendra nýliða var óumflýjanleg. Breskur fyrrverandi sendiherra, Oliver Miles, skrifaði nýlega: „Ríkisstjórn [Camerons] virðist fylgja fordæmi Tonys Blair, sem hundsaði ítrekaða ráðgjöf utan ríkisráðuneytisins, MI5 og MI6 um að stefna okkar í málefn­ um Mið­Austurlanda – einkum og sér í lagi stríðin í Mið­Austurlönd­ um – hefði verið aðaldriffjöðrin í nýliðun breskra múslima til að standa að hryðjuverkum hér.“ ISIS er afsprengi manna í Wash­ ington og Lundúnum sem, með því að eyðileggja Írak sem hvort tveggja ríki og samfélag, lögðu á ráðin um að fremja stórkostlegan glæp gegn mannkyni. Eins og Pol Pot og Rauðu kmerarnir er ISIS stökkbreyting á ógn vestrænna ríkja sem úthlutað er af spilltri heimsvaldasinnaðri elítu sem læt­ ur sig litlu skipta afleiðingar að­ gerða víðsfjarri, bæði í vegalengd­ um og menningu. Saknæmi þeirra er ekki til í samfélögum „okkar“. Liðin eru 23 ár síðan þessi hel­ för hófst í Írak, strax í kjölfar fyrsta Flóastríðsins, þegar Bandarík­ in og Bretland slógu eign sinni á Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og lögðu refsiaðgerðir á írakska borgara og, þótt kaldhæðnislegt sé, styrktu völd Saddams Hussein heima fyrir. Þetta var eins og um­ sátur á miðöldum. Nánast allt sem viðheldur nútímaríki var, í þessu rugli, „stöðvað“ – allt frá klóri til að hreinsa vatnsbirgðir til blýanta fyrir skóla, varahluta í röntgen­ myndavélar, algengra verkjalyfja og lyfja gegn áður óþekktu krabba­ meini sem berst með úraníum­ menguðu ryki frá vígvöllunum í suðri. Rétt fyrir jólin 1999 setti við­ skipta­ og iðnaðarráðuneytið hömlur á útflutning bóluefnis sem átti á verja íröksk börn gegn barna­ veiki og gulu. Kim Howell, lækn­ ir og aðstoðarutanríkisráðherra í ríkisstjórn Blairs, útskýrði ástæð­ una. „Hægt var að nota bóluefnið,“ sagði hann, „ sem gjöreyðingar­ vopn.“ Breska ríkisstjórnin gat komist upp með slíka vitleysu því fjölmiðlar sem sendu fregnir frá Írak – megninu stýrt af utanríkis­ ráðuneytinu – skelltu skuldinni af öllu á Saddam Hussein. Undir uppgerðarformerkj­ um „mannúðaraðstoðar“ Olía fyrir matvæli­prógrammsins var hverjum Íraka úthlutað 100 Bandaríkjadölum til ársfram­ færslu. Þessi upphæð átti að greiða fyrir alla samfélagslega inn­ viði og nauðsynlega þjónustu, svo sem raforku og vatn. „Ímyndaðu þér,“ sagði Hans Von Sponeck, að­ stoðaraðalritari Sameinuðu þjóð­ anna, við mig, "að leggja þessa hungurlús fram gegn vatnsskorti, og þeirri staðreynd að meirihluti veiks fólks hefur ekki efni á með­ ferð, og hinu mikla álagi sem fylgir því að komast af frá degi til dags, og þú sérð brot af martröðinni. Og gerðu þér grein fyrir því, þetta er með ráðum gert. Hingað til hef ég ekki viljað nota orðið þjóðarmorð, en nú verður ekki hjá því komist.“ Fullur ógeðs sagði Von Sponeck starfi sínu sem samhæfingarstjóri mannúðaraðstoðar í Írak lausu. Forveri hans, Denis Halliday, álíka háttsettur embættismaður S.þ., hafði einnig sagt af sér. „Ég fékk fyrirmæli,“ sagði Halliday, „um að koma á stefnu sem uppfyllti skil­ greiningu þjóðarmorðs: úthugs­ aða stefnu sem varð meira en milljón manns, börnum og full­ orðnum, að bana. Rannsókn UNICEF, Barna­ hjálpar Sameinuðu þjóðanna, leiddi í ljós að á árunum 1991 til 1998, á hátindi viðskiptaþving­ ananna, dóu 500.000 íröksk börn undir fimm ára aldri „aukreitis“. Bandarískur fréttamaður bar þetta undir Madelaine Albright, fulltrúa Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, og spurði hana: „Er gjaldið þess virði?“ Albright svar­ aði: „Við teljum gjaldið þess virði.“ Árið 2007 sagði háttsettur breskur embættismaður sem var ábyrgur fyrir refsiaðgerðunum, Carne Ross, þekktur sem „Hr. Írak“, við þingnefnd að „[bandarísk og bresk stjórnvöld] meinuðu skipu­ lega gervallri þjóðinni um það sem þyrfti til að lifa.“ Þegar ég ræddi við Carne Ross þremur árum síð­ ar, var hann heltekinn af iðrun og Frá Pol Pot til ISIS: „Allt sem flýgur á allt sem hreyfist“ John Pilger Bush og Blair Samkvæmt mælikvörðum flestra fræðimanna kostaði innrás Bush og Blairs í Írak 2003 um 700.000 mannslíf – í ríki sem átti ekki sögu um heilagt stríð, segir Pilger. „ISIS er af- sprengi manna í Washington og Lundúnum John Pilger er 75 ára rannsóknarblaðamaður Hann er einhver þekktasti rannsóknarblaðamaður heims, hefur starfað sem stríðs- fréttaritari í Víetnam, Kambódíu, Egyptalandi, Indlandi, Bangladess og Bíafra sem var, og gert meira en fimmtíu heimildamyndir á ferli sínum. Hann hefur áratugum saman haldið uppi harðri gagnrýni á heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og Bretlands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.