Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Blaðsíða 28
28 Lífsstíll Vikublað 14.–16. október 2014 „Við eigum öll að eiga séns“ n Jóna Palla varð móðir 16 ára n Faðir hennar var tónlistarmaður sem endaði á götunni Þ egar ég var lítil stelpa átti ég erfitt með að skilja af hverju pabbi minn gat ekki verið eins og aðrir pabbar, af hverju hann gat ekki farið eftir lögum og reglum og verið inni í mínu lífi eins og pabbarnir í kringum mig. Fljótlega skildi ég að hann var veikur – það veikur að hann gerði og sagði hluti sem áttu engan rétt í tilveru minni,“ segir Jónheiður Pálmey Hall- dórsdóttir eða Jóna Palla eins og hún er jafnan kölluð, en hún missti föður sinn stuttu eftir að hún var nýorðin móðir aðeins 16 ára gömul. Naut þess góða Faðir Jónu Pöllu, Halldór Fannar, var alkóhólisti og eyddi síðustu árum sín- um á götunni í miðborg Reykjavíkur. „Pabba stóðu svo margar dyr opnar inn í dásamlega framtíð en alkóhól- isminn lokaði þeim jafn óðum og þær opnuðust. Hann var hæfileika- ríkur tónlistarmaður og músíkin er það eina sem ég á eftir að hann lést,“ segir Jóna Palla sem segist lengi hafa liðið fyrir föður sinn og varið hann með kjafti og klóm. „En ég á góða að og mitt veganesti í lífinu var að í stað þess að verða reið og bera vonbrigðin á bakinu tók ég þá afstöð að ég skyldi aðeins njóta þess góða og fallega í fari pabba og berjast fyrir því, að þrátt fyr- ir veikindi hans, þá myndi hann njóta sömu mannréttinda og aðrir í þjóð- félaginu,“ segir Jóna Palla sem hefur beitt sér fyrir bættum aðbúnaði fyrir utangarðsfólk og var til að mynda í hópi þeirra sem sáu til þess að Konu- kot, næturathvarf fyrir heimilislausar konur, var sett á laggirnar. Frekar stóra systir en mamma Jóna Palla á viðburðaríka ævi að baki þrátt fyrir að vera aðeins 35 ára. Hún er fimm barna móðir og amma en elsta barnið kom í heiminn áður en hún var komin í tíunda bekk. „Auð- vitað var mikið sjokk að verða ófrísk. Það er svolítið stór pakki þegar mað- ur er sjálfur svona mikið barn. Það var búið að vera vesen á mér, eins og svo mörgum öðrum úr mínum vina- hópi, og ég hafði farið inn og út af ung- lingaheimilum. Ég var í mikilli upp- reisn,“ segir hún en bætir við að fyrst eftir að dóttirin kom í heiminn hafi þær mæðgur búið hjá mömmu henn- ar. „En ég var bara unglingur og þegar hún var tveggja og hálfs árs hafði ég verið í burtu í nokkuð langan tíma. Ég hafði ekki þroska til að vera með lítið barn á þessum tíma og var miklu frekar eins og stóra systir hennar. Mér fannst þetta litla kríli eiga skilið meiri festu en þá sem ég gat boðið henni og því bað ég mömmu að taka hana í var- anlegt fóstur. Einu og hálfu áru síðar varð ég aftur ófrísk og þá tók ég mig á. Ég vildi gera þetta rétt í þetta skiptið og var staðföst í þeirri ákvörðun minni að bregðast ekki þessu barni.“ Fimm börn og ömmubarn Jóna Palla eignaðist þrjú börn með manninum sínum en þau skildu árið 2007. Fimmta barnið eignaðist hún svo í fyrra með manni frá Króatíu sem hún kynntist á netinu. „Sá minnsti kom alveg óvart. Ég ætlaði að klára barneignirnar ung og njóta svo lífs- ins en varð svo ófrísk. Hann er samt alveg jafn æðislegur og öll hin,“ segir hún og bætir við að það sé tvennt ólíkt að verða ófrísk á unglingsaldri og svo komin yfir þrítugt. „Það á kannski bara við um mig en í dag finnst mér ég hafa meiri tíma fyrir hann. Ég get hangið heima dögum saman og bara haft það gott. Áður fyrr var ég alltaf að bíða eftir að fá pössun til að komast eitthvert út. Núna, ef ég fæ pössun, er ég að drífa mig heim til hans. Svo hef ég meiri þolinmæði. Auðvitað elska ég þau öll jafn mikið en maður fer öðru- vísi að hlutunum og nýtur þeirra bet- ur í dag. Ég held líka að ég sé betri mamma. Enda hef ég lært mikið af hverju barni.“ Pabbinn flytur inn Barnsfaðir hennar hefur átt í erfiðleik- um með fíkn. Þegar þau skildu ákvað Jóna Palla að gera allt sem hún gæti til að börnin gætu átt kærleiksríkt sam- band við föður sinn þrátt fyrir sjúk- dóm hans. Hún gekk meira að segja svo langt að flytja úr eigin íbúð aðra hvora viku svo hann gæti flutt inn og verið með börnunum. „Þetta var eina lausnin sem við fundum. Þótt okkar samband hafi orðið flókið þegar við skildum þá pössuðum við okkur að börnin yrðu aldrei vopn í okkar bar- áttu. Pabbi þeirra hefur aldrei þráð neitt heitara en að geta búið krökkun- um heimili heima hjá sér en það var ekki hægt svo við fórum þessa leið. Í stað þess að börnin flyttu á milli heim- ila aðra hvora viku þá flutti hann inn á mitt heimili og ég flutti út á meðan. Þetta gekk á meðan við bjuggum fyr- ir sunnan en svo flutti ég norður til að vera nær frumburðinum sem var að eignast sitt fyrsta barn. Eftir það hefur hann keyrt norður og búið hjá okkur þegar hann hefur verið í góðu standi en hann á góðan og langan tíma á milli stuttra falla.“ Hún segir marga ef- laust hafa undrast fyrirkomulagið en segir að þetta hafi hentað þeim best á þeim tíma. „Hvað áttum við að gera? Horfa upp á börnin sakna pabba síns? Við höldum alltaf jólin saman. Börnin vita að mamma og pabbi ætla ekki að vera saman en að þau ætla að gera allt sem þau geti svo þau geti verið jafn lengi með börnunum sínum. Þetta er ekki fullkomin lausn en að okkar mati eina lausnin eins og er,“ segir hún og bætir við: „Ég á vin í fyrrverandi manninum mínum. Við erum mjög góðir félagar og þegar hann er hérna þá er hann bara eins og heima hjá sér. Hann og maðurinn minn eru líka góðir félagar,“ segir hún og neitar því að vandamál vegna afbrýðisemi hafi komið upp. „Enda engin ástæða til.“ „Gerði mitt besta“ Móðir Jónu Pöllu gekk elstu dóttur hennar í móðurstað. Þær búa ásamt yngsta fjölskyldumeðlimnum rétt hjá Jónu Pöllu. „Við erum í góðu sam- bandi og hjálpumst mikið að. Ég veit um foreldra sem úthúða hinu foreldr- inu en ég mun aldrei getað skilið slíkt. Mamma mín hefði getað gefið skít í pabba minn en í staðinn talaði hún alltaf fallega um hann. Hún sagði mér til dæmis að ég mætti ekki gleyma því að þótt hann væri haldinn þess- um sjúkdómi sem hefði oft yfirtökin í hans lífi þá elskaði hann mig ekk- ert minna. Það var mitt veganesti út í lífið. Pabbi barnanna minna er alkó- hólisti en þegar hann er í lagi þá finnst mér ég bera skyldu til að við sem fjöl- skylda búum til fallegar og góðar minningar og eigum góðar stundir rétt eins og þegar fólk veikist af öðr- um sjúkdómum.“ Hún segist eiga gott samband við frumburðinn og neitar því að vera með samviskubit gagnvart henni. „Við áttum alltaf og munum alltaf eiga okkar mæðgnasamband af því að ég hafði alltaf aðgang að henni. En ég vildi óska þess að hlutirnir hefðu farið öðruvísi. Ég veit samt að ég gerði mitt besta og hefði ekki getað fundið betri lausn fyrir hana á þess- um tíma. Henni leið vel og það var vel hugsað um hana. Líf hennar komst í fastar skorður.“ Ramminn hentar ekki öllum Hún segir margt hafa breyst varðandi aðstæður utangarðsfólks. „Það hefur margt breyst síðan pabbi minn gekk göturnar en við erum ekki komin á leiðarenda. Úrræðin eru ekki nægi- lega fjölbreytt þótt gríðarlega mikið hafi breyst þökk sé ótrúlegu hug- sjónafólki sem hefur lagt sál sína og hjarta í þetta. En það má ekki stoppa núna. Það er algjörlega óafsakanlegt að fólki sem á hvergi höfði sínu að halla sé vísað frá neyðarskýlum. Það er einfaldlega hryllilegt. Hvað ef þetta væri barnið þitt? Það er enginn sem getur lofað þér að þótt þú elskir börn- in þín og gerir allt sem í þínu valdi stendur til að gefa þeim gott veganesti út í lífið að þau verði ekki utangarðs. Við eigum öll að eiga séns, líka utan- garðsmenn. Ramminn sem er smíð- aður utan um okkur hentar ekki öll- um, sumir ná ekki að lifa innan hans og þess vegna þurfum við að mæta fólki þar sem það er statt.“ n Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is „Ég vildi gera þetta rétt í þetta skiptið og var staðföst í þeirri ákvörðun minni að bregðast ekki þessu Með pabba Faðir Jónu Pöllu var hæfileikaríkur tón- listarmaður en eyddi síðustu árum ævi sinnar á götunni. Jóna Palla Jóna Palla varð móðir 16 ára. Sama ár missti hún föður sinn. Fimm barna móðir Jóna Palla á fimm börn og eitt barnabarn. Betri móðir í dag Jóna Palla segist hafa lært mikið af öllum börnunum sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.