Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Síða 8
Helgarblað 7.–10. nóvember 20148 Fréttir
150 kjarasamningar
lausir á næsta ári
n „Stórmál,“ segir ríkissáttasemjari og bendir á að flestir samningar eru lausir
T
æplega 150 kjarasamn-
ingar verða lausir á næsta
ári, þar af 78 í febrúar
næstkomandi og 51 í apríl.
Til samanburðar hefur 51
kjaraviðræða eða sáttastarf kom-
ið til meðferðar hjá ríkissáttasemj-
ara á þessu ári, þar af eru sjö enn
yfirstandandi. „Þetta er náttúr-
lega bara þorri allra samninga í
landinu,“ segir Magnús Pétursson
ríkissáttasemjari um málið í sam-
tali við DV. Hann segir það almennt
umhugsunarvert að svo gott sem
allir landsmenn verði með lausa
samninga á næsta ári. „Það er stór-
mál,“ segir hann. „En nú getur vel
verið að það semjist um þetta allt
saman án þess að því verði vísað
til ríkissáttasemjara. Ég veit ekk-
ert um það. En það verður hópur af
fólki í landinu án samninga og all-
ar samninganefndir hjá stéttarfé-
lögum – innan Alþýðusambands-
ins, BSRB og BHM – verða önnum
kafnar.“
Aðfarasamningar að renna út
Í byrjun árs undirrituðu Samtök
atvinnulífsins og Alþýðusamband
Íslands bráðabirgðakjarasamn-
ing, svokallaðan aðfarasamning,
til eins árs. Þessir samningar verða
lausir í febrúar næstkomandi,
sem skýrir að hluta fjölda lausra
samninga á næsta ári. „Menn ætl-
uðu að nota árið til þess að undir-
búa samninga til lengri tíma,“ seg-
ir Magnús um málið. Markmiðið
með aðfarasamningnum var nýr
þjóðarsáttarsamningur í líkingu
við þann sem var gerður árið 1990
þegar launþegar voru hvattir til að
láta af kröfum sínum um umtals-
verðar launahækkanir til að stuðla
að minni verðbólgu, stöðugleika og
þar með auknum kaupmætti. Már
Guðmundsson seðlabankastjóri
lagði sömuleiðis áherslu á hófsam-
ar launahækkanir í fréttum á RÚV
í vikunni þegar stýrivextir voru
lækkaðir. Sagði hann meðal annars
stýrivexti geta lækkað enn meira ef
launahækkanir í vetur verða ekki
meiri en 2,5 prósent. Drífa Snædal,
framkvæmdastjóri Starfsgreina-
sambandsins, sagði hins vegar ljóst
að ekki verði samið um 2,5 prósent
og að verkafólk á Íslandi verði ekki
eitt látið bera ábyrgð á að viðhalda
stöðugleika í landinu. Því má gera
ráð fyrir að átökin um kjör verka-
fólks muni halda áfram að vera
harkaleg á næsta ári.
Margar viðræður gengið illa
Í ítarlegri úttekt DV um kjaramálin
í ágúst síðastliðnum kom fram að
óvenju mikið hafi verið um verk-
föll á Íslandi undanfarin ár og tíðni
verkfalla hér á landi sé umtalsvert
hærri en á hinum Norðurlöndun-
um. Í ár hafa íslensk stjórnvöld
hins vegar nokkrum sinnum sleg-
ið þetta vopn úr höndum launþega
með því að setja, eða hóta að setja,
lögbann á verkföll. Yfirstandandi
kjaraviðræður hjá ríkissáttasemj-
ara eru hjá Félagi tónlistarskóla-
kennara, Skurðlæknafélagi Íslands,
Læknafélagi Íslands, Starfsmanna-
félagi Kópavogs, Félagi tækni-
manna, Flugvirkjafélagi Íslands
og Félagi íslenskra leikara. Fjögur
þessara félaga hafa boðað verkföll,
eða eru komin í verkföll. Þá lýkur
atkvæðagreiðslu Félags prófessora
við ríkisháskóla um hvort boða eigi
til verkfalls, í byrjun desember, á
mánudag. Óformleg könnun inn-
an háskólans sýnir að 83 prósent
prófessora séu hlynnt verkfallsað-
gerðum og því eru taldar miklar lík-
ur á verkfalli náist ekki samningar.
Að auki má benda á að félagsmenn
aðildarfélaga Kennarasambands
Íslands munu greiða atkvæði um
tiltekna þætti kjarasamninga í febr-
úar og því óljóst hvort samningarn-
ir haldi áfram eða losni. n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Nánast allir
samningar
lausir Tæplega
150 kjarasamningar
verða lausir á
næsta ári.
Ríkissáttasemjari Magnús Pétursson
ríkissáttasemjari segir ástandið umhugs-
unarvert.
Lausir samningar
á árinu 2015
„Þetta er náttúr-
lega bara þorri
allra samninga í landinu.
78
í febrúar
51
í apríl
18
maí-des
Alls verða 147
kjarasamningar
lausir á næsta
ári, langflestir í
lok febrúar.
Segist hafa
snúið við
blaðinu
Í þriðjudagsblaði DV var fjallað
um nýstofnað tölvuviðgerðar-
félag Jóhannesar Gísla Eggerts-
sonar, dæmds fjársvikara. Hann
hafði auglýst tölvuyfirferð á af-
sláttarsíðunni Hópkaupum en
tilboð hans var fjarlægt eftir að
DV hafði samband við forsvars-
menn Hópkaupa. Í kjölfar frétt-
arinnar hafði Jóhannes Gísli
samband við DV og vildi hann
koma því á framfæri að hann
væri búinn að snúa við blaðinu.
„Ég er búinn
að snúa lífi
mínu við
og er að
breyta öllu
og reyna
að koma
mér sjálfur
í vinnu með
því að stofna
mitt eigið fyrirtæki þar sem ég
fæ enga vinnu út af sakaskrá.
Það eru allir mjög ánægðir með
okkur, við vinnum mjög hratt
og skilum af okkur strax. Þetta
er eitthvað sem við viljum að
endi ekki eins og allt annað. Ég
var í neyslu þegar hitt gerðist og
er búinn að vera edrú í góðan
tíma,“ segir Jóhannes Gísli.
Spurður um einkennilegustu
atriði félagsins svo sem ranga
kennitölu eða 17 ára „Windows
sérfræðing“ segir Jóhannes það
ýmist vera mistök eða grín. „Allt
er hérna skráð á mína eigin
kennitölu, ég veit ekki hvernig
þetta gerðist. Ég sendi tölvu-
póst á ja.is og ég veit ekki hvern-
ig þessi kennitala kemur okkur
við,“ svarar Jóhannes spurður
um hvernig kennitala fyrrver-
andi rekstrarfélags Móður konu
meyju var skráð sem kennitala
Tölvuheims.
Í auglýsingu Tölvuheims
var sagt að félagið væri tveggja
ára gamalt, sem er bersýnilega
rangt. Jóhannes segir ástæð-
una vera að hann hafi stundað
vefhönnun frá 2012. Hann seg-
ir sömuleiðis að það hafi verið
grín að titla 17 ára starfsmann-
inn „Windows sérfræðingur“.