Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Síða 10
Helgarblað 7.–10. nóvember 201410 Fréttir Ekki endilega betra að fjarlægja barnið Börn af erlendum uppruna eiga fremur á hættu á að verða fyrir líkamlegu ofbeldi E f við setjum þetta í samhengi við kynferðislegt ofbeldi, þá væri mjög hæpið að við mynd- um setja barn inn á heimili hjá geranda sem er dæmdur fyrir að hafa beitt barnið kynferðis- legu ofbeldi,“ segir María Gunnars- dóttir, forstöðumaður Barnavernd- ar Reykjanesbæjar, í samtali við blaðamann. DV fjallaði í vikunni um mál ungs drengs í Grindavík en móðir hans var í lok október dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir að misþyrma honum bæði andlega og líkamlega í janúar á síð- asta ári. Hálfbróðir drengsins sagði í samtali við DV að tilfellin væru fleiri en það sem nefnt er í dómnum og þá hafi móðirin haldið uppteknum hætti eftir að dómurinn féll. Engu að síður er drengurinn, sem nú er ell- efu ára, enn á heimili móður sinn- ar. María viðurkennir að henni finn- ist sú ákvörðun, að senda drenginn aftur til móður sinnar, skrítin en tek- ur þó fram að hún þekki ekki ástæð- urnar sem liggja að baki ákvörðun- inni og geti því ekki lagt mat á þær. Hildigunnur Árnadóttir, félagsráð- gjafi Grindavíkurbæjar, vildi ekki tjá sig um málið við DV þegar eftir því var leitað. Menningarmunur á uppeldisaðferðum „Þetta eru auðvitað bara matsat- riði í einstöku máli. Þetta snýst alltaf um bestu hagsmuni barns- ins. Þannig að ef það er mat barna- verndarnefndar og allra sem koma að máli barnsins að hagsmunum þess sé best borgið á heimilinu þá gerum við ekki athugasemdir við það,“ segir Steinunn Bergmann, fé- lagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu, í samtali við DV. Hún segir enn frem- ur það ekki vera sjálfgefið að hags- munum barnsins sé best borgið með því að taka það af heimilinu. „Ótti við það að vera tekið af heimilinu verður bara til þess að börn segja ekki frá ofbeldinu. Það er ekki það sem börn vilja. Ég var nýlega á ráðstefnu í Nor- egi þar sem börn innflytjenda sögðu frá sinni reynslu. Þau töluðu sérstak- lega um þetta. Þau vilja að ofbeldið hætti, en þau vilja ekki að þau séu tekin af heimilinu.“ Eins og fram kom í grein DV er móðir drengsins frá Taílandi og talar ekki íslensku. Faðir hans, sem sökum greindarskerðingar er ekki metinn hæfur til að sjá um drenginn, er hins vegar íslenskur. Í rannsókn Barna- verndarstofu frá árinu 2010 kemur fram að 31% tilkynninga árið 2006 vörðuðu börn af erlendum uppruna en heildarhlutfall barna af erlendum uppruna á Íslandi var 8,3% á sama tímabili. Þannig virðast börn af erlendum upp- runa fremur eiga á hættu að verða fyrir líkamlegu ofbeldi en börn sem ekki hafa erlendan bak- grunn. María segir að oft sé ákveðinn menningarmun- ur í þessum efn- um. Hjá sumum þjóðum sé það viðtekin venja að beita líkamleg- um refsingum í uppeldi barna. Hún segir barna- verndaryfirvöld standa frammi fyrir ákveðnu úrræðaleysi í þess- um efnum en til dæmis sé oft erfitt að veita uppeldislega ráðgjöf með notkun túlks. Steinunn tekur und- ir með Maríu: „Þess vegna höfum við lagt áherslu á að benda fagfólki á að kynna sér til dæmis opinberar heimasíður í heimalandinu hjá aðil- um sem eru að vinna á þessu sviði. Það er mjög víða verið að leggja áherslu á jákvæðar uppeldisaðferð- ir og reyna að útrýma þessum líkam- legu refsingum. Í flestum löndum er til eitthvert form af barnavernd.“ Mikið í húfi Hálfbróðir drengsins gagnrýnir úrræðaleysi barnaverndarnefndar í málinu. Steinunn seg- ir barnaverndarnefnd hins vegar alltaf gera áætlun um meðferð máls og úrbætur. „Ef það er opið barnaverndar- mál þarna þá er vænt- anlega slík áætlun í gangi,“ segir hún. „ Svona áætlanir eru gerðar til tiltekins tíma en í lok tímabilsins er farið yfir og metið hvernig hefur gengið. Stundum er mál- um lokað eftir áætlun og stundum er gerð önnur áætlun. Mál geta þannig verið til vinnslu í mörg ár,“ segir Steinunn og bætir því við að ef foreldrar standist ekki áætlan- ir þurfi að vega og meta hvort þurfi að grípa til annarra úrræða. „Það er metið út frá aðstæðum hverrar og einnar fjölskyldu og barns hvaða úrræðum þarf að beita. Það að taka barn af heimili er mjög íþyngjandi aðgerð fyrir barnið og ekki sjálfgef- ið að vel takist til. Þannig að það er mikið í húfi að gera barninu kleift að geta búið hjá sínum foreldrum og það er reynt ef þess er nokkur kostur að börn fái að alast upp hjá sínum kynforeldrum, með sínum systkin- um og í sínu nærumhverfi.“ Binda vonir við stækkun Barnahúss María bendir á nauðsyn þess að efla umræðuna um líkamlegt ofbeldi gegn börnum. Umræðan um kynferðislegt ofbeldi og heimilisofbeldi hafi verið mjög hávær á undanförnum árum, en aðilar í barnavernd hafi hins vegar áhyggjur af því að enn telji sumir for- eldrar allt í lagi að slá til barna sinna í refsingarskyni. „Við þurfum að setja líkamlegt ofbeldi gegn börnum upp á sama plan og heimilisofbeldi og kyn- ferðisofbeldi og efla umræðuna um að líkamlegt ofbeldi á börnum sé ekki samþykkt,“ segir hún. María og Steinunn binda enn fremur vonir við að Barnahús muni nú, þegar starfsemin er komin í nýtt og betra húsnæði, geta tekið við börnum sem orðið hafa fyrir líkam- legu ofbeldi. „Hingað til höfum við ekki getað vísað þeim í Barnahús. Það sama á við um heimilisofbeldi. Vonandi, með stækkun Barnahúss, þá getum við það,“ segir María. n Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is María Gunnarsdóttir Forstöðumaður Barnaverndar Reykjanesbæjar. Steinunn Bergmann Félagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu. „Þetta snýst alltaf um bestu hagsmuni barnsins Enn á heimili móður sinnar Drengurinn sem DV fjallaði um í vikunni er enn á heimili móður sinnar þrátt fyrir að hún hafi verið dæmd í héraðsdómi fyrir að misþyrma honum. 3. nóv 2014 Rannsaka áhrif mengunar Sóttvarnalæknir er hefja umfangs- mikla rannsókn á langtímaáhrif- um gosmengunar frá eldgosinu í Holuhrauni á heilsu almennings. Þórólfur Guðnason, yfirlæknir í sóttvörnum hjá Embætti land- læknis, segir ekki mikið hægt að segja um eðli rannsóknarinnar, enda sé hún á frumstigi. Ríkis- stjórnin samþykkti á þriðjudag 687 milljóna króna aukaframlag til ýmissa stofnana vegna eldgossins í Holuhrauni. Verkefni landlæknis fellur þar undir og verður unnið á næsta sex mánaða tímabili. Aðspurður hvort sambæri- legar rannsóknir hafi verið gerðar áður segir Þórólfur þær ekki hafa verið gerðar hér á landi. „En þær hafa verið gerðar erlendis,“ segir hann, „bæði varðandi gos og aðra mengun á borð við iðnaðarmeng- un. Til er dágóður fjöldi af slíkum rannsóknum sem við höfum ver- ið að vitna í þegar við erum að tala um heilsufarsáhrif af völdum SO2 [brennisteinsdíoxíðs],“ segir hann og bendir á að töflur og ráð- leggingar til fólks, sem yfirvöld styðjast við varðandi loftgæði vegna eldgossins, séu byggðar á þessum rannsóknum. „Það er eiginlega ekki hægt að benda á eitthvert eitt gildi sem er vont eða gott fyrir mismunandi aðila því það getur verið mjög breytilegt eftir einstaklingum.“ Varðandi langtímaáhrif segir Þórólfur rannsóknir hafa sýnt fram á auknar líkur á að fólk sem hefur búið í námunda við eld- fjöll, til dæmis í Japan, þar sem er stöðug mengun af SO2, sé til dæmis með nefrennsli og krónísk- an hósta. Hins vegar sé ekki að sjá að það séu neinar alvarlegar heilsufarsafleiðingar. „Bæði hvað varðar bráð áhrif og eins lang- tímaáhrif þá er ekki hægt að segja að þetta sé eitthvað bráðhættu- legt, en vissulega geta þau valdið öndunarfæraeinkennum,“ segir Þórólfur að lokum. „Sóknin“ sett í gang í Reykjanesbæ Bæjarráð Reykjanesbæjar hef- ur samþykkt að hækka útsvar og fasteignaskatt frá og með 1. janúar 2015. Eru þessar aðgerðir hluti af „Sókninni“ – aðgerðum sem miða að því að laga fjár- hagsstöðu bæjarins sem er mjög slæm samkvæmt skýrslu KPMG. DV hefur fjallað um málefni Reykjanesbæjar að undan- förnu og þá skýrslu KPMG sem kom út um málið og var kynnt á íbúafundi á dögunum. Samkvæmt tillögunni sem var samþykkt á fimmtudag af bæjarráði þá mun útsvar hækka úr 14,52 prósentum í 15,05 pró- sent sem er hlutfallshækkun upp á 3,62 prósent og er sú að- gerð sögð bæta fjárhagsstöðu bæjarsjóðs um 200 milljónir króna. Þá mun fasteignaskattur hækka úr 0,3 prósentustigum í 0,5 og er það talið leiða til tekju- aukningar fyrir bæjarsjóð um 255 milljónir króna. „Þessi blandaða leið ætti að auka tekjur bæjarsjóðs Reykjanesbæjar um 455 milj- ónir króna á árinu 2015 mið- að við núgildandi útsvarsstofn og fasteignamat,“ segir í bókun bæjarráðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.