Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Síða 14
Helgarblað 7.–10. nóvember 201414 Fréttir A llar stofnanir [umhverfis] ráðuneytisins gera að um­ talsefni viðbúnað stjórn­ valda við hugsanlegri olíu­ vinnslu á Drekasvæðinu,“ segir í umsögn umhverfisráðu­ neytisins vegna þriggja umsókna um sérleyfi til rannsóknar og vinnslu kol­ vetnis á Drekasvæðinu. Umsögnin er rituð árið 2012 en ráðuneytið lýsir verulegum efasemdum um burði ís­ lenskrar stjórnsýslu til að takast á við olíuvinnslu í íslenskri lögsögu. Þá vitnar ráðuneytið til skýrslu iðnaðarráðuneytisins um olíuleit á Drekasvæðinu máli sínu til stuðn­ ings. „Þótt lagaleg umgjörð hafi ver­ ið sett og ítarlegar leiðbeiningar til að finna í fyrrgreindri skýrslu frá 2007 fer því fjarri að stjórnsýslan og þjóðfé­ lagið sé vel undirbúið fyrir mögulega olíuvinnslu á svæðinu. Slíkur undir­ búningur þarf að vera fullnægjandi þegar rannsóknarboranir hefjast, því rannsóknarholur verða sjálfkrafa vinnsluholur ef þær hitta á olíulind og þarf allur nauðsynlegur viðbún­ aður fyrir slíkt að vera til staðar.“ Flókið eftirlit Olíuvinnsla á Íslandi, verði af henni, mun hafa víðtæk áhrif á íslenskt samfélag. Áhrifa mun gæta í atvinnu­ lífi, samfélagi, lífríki og umhverfi auk stjórnsýslu svo eitthvað sé nefnt. Stjórnkerfið sker sig nokkuð úr enda ætlað að hafa eftirlit, semja lagara­ mma og framfylgja lögum utan um vinnsluna. Væntanlega mun vinnsla reyna hvað mest á efnahags­ og fjár­ málaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið, innanríkisráðuneyti, sjávarútvegs­ ráðuneytið og umhverfisráðuneytið. Eftirlit og ábyrgð á mögulegri vinnslu er í höndum fjölda stofnana en Orkustofnun fer með lykilhlut­ verk. Orkustofnun veitir leyfi til leit­ ar, rannsóknar og vinnslu á kolvetni. Þá skal Orkustofnun starfrækja og leiða starf samráðshóps eftirlitsaðila vegna leitar, rannsókna og vinnslu kolvetnis við Ísland. Í samráðshópn­ um sitja ellefu fulltrúar stofnana sem eiga beinan þátt í eftirliti með vinnsl­ unni, hefjist hún nokkurn tímann. Stofnanirnar, auk Orkustofnunar, eru; Brunamálastofnun, Flugmála­ stjórn Íslands, Geislavarnir ríkisins, Hafrannsóknastofnun, Landhelgis­ gæsla Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Siglingastofnun Íslands, Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun og Vinnueftirlit ríkisins. Vantar upplýsingar um lífríki Náttúrufræðistofnun bendir á að skortur sé á upplýsingum um lífríki á Drekasvæðinu. Það kom meðal annars fram í gögnum sem umsækj­ endur sérleyfa hafi sjálfir lagt fram. Stofnunin telur að skoða þurfi betur ýmsa þætti lífríkis, strauma og sam­ spil umhverfisþátta sérstaklega með hættuna á umhverfisslysi að leiðar­ ljósi. „[M]engunarslys á þessu svæði geta haft mjög alvarleg áhrif m.a. vegna kulda og hversu viðkvæmt líf­ ríki norðurslóða almennt er,“ segir í umsögn Náttúrufræðistofnunar. „Ef nýta á tímann vel á því tímabili sem gefst fram að hugsanlegum til­ raunaborunum, þá getur verið að íslenska rikið þurfi að taka forystu sem nú gefst fram að hugsanlegum tilraunaborunum, þá getur verið að íslenska ríkið þurfi að taka forystu um að ýmsar rannsóknir séu fram­ kvæmdar og bera af því kostnað.“ Drekasvæðið er hafsvæði í Norður­ Íshafi, skammt frá Jan Mayen. Meng­ unarslys á svæðinu gæti haft umtals­ verð áhrif enda afar viðkvæmt lífríki og kuldi mikill sem hægir á niður­ broti olíumengunar. Olíu- og fiskiþjóð Umhverfisráðuneytið deilir þessum áhyggjum Náttúrustofnunar og bæt­ ir við: „Fiskveiðar eru undirstöðu­ atvinnugrein og olíuslys myndi hafa mun meiri hlutfallslega áhrif á þjóðarhag Íslands, en hjá öðrum ríkjum, nema Færeyjum og Græn­ landi.“ Þá kallar ráðuneytið eftir gerð ítarlegs áhættumats áður en rann­ sóknarboranir hefjast. „Það er því ljóst að byggja þarf upp aukna þekk­ ingu og bolmagn hjá stjórnvöldum og sérfræðistofnunum sem koma að mögulegri olíuvinnslu í íslenskri lög­ sögu áður en leit kemst á það stig að farið sé að undirbúa rannsóknarbor­ anir.“ Sérleyfishafar Orkustofnun gaf út tvö sérleyfi fyr­ ir rannsóknir og vinnslu olíu og gass á Drekasvæðinu þann 4. janúar 2013 og þriðja leyfið þann 22. janúar 2014. Umsóknir um leyfin bárust í öðru útboði sérleyfa á Drekasvæð­ inu. Petoro Iceland AS, útibú á Ís­ Stjórnsýslan er fjarri því að vera undirbúin n Ekki tilbúin fyrir olíuvinnslu, segir í umsögn umhverfisráðuneytis n Mikið álag á Landhelgisgæsluna Atli Þór Fanndal atli@thorfanndal.com „Fiskveiðar eru undirstöðu- atvinnugrein og olíu- slys myndi hafa mun meiri hlutfallsleg áhrif á þjóðarhag Íslands, en hjá öðrum ríkjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.