Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Blaðsíða 19
Helgarblað 7.–10. nóvember 2014 Fréttir 19 „Ekki vera hræsnarar“ n Mannréttindafrömuður biðlar til íslenskra stjórnvalda um að senda fólk ekki í pyntingarklefana n Pyntingar stundaðar í miklum mæli í Nígeríu 25 Nígeríumenn sóttu um hæli á Íslandi á árunum 2012–2013 Í ársskýrslu Útlendingastofnun­ ar fyrir árið 2012 kemur fram að af þeim 118 sem sóttu um hæli á Íslandi voru nítján frá Nígeríu. Ekki kemur fram hversu margir þeirra fengu hæli. Alls fimm manneskjur fengu viður­ kennda stöðu flóttamanns það ár og enginn dvalarleyfi af mann­ úðarástæðum. Þannig hafði 113 manneskjum verið synjað um dvalarleyfi, meðal annars á grund­ velli Dyflinnarreglugerðarinnar, eða mál þeirra enn í vinnslu hjá stofnuninni í lok árs 2012. Í ársskýrslu Útlendingastofn­ unar fyrir árið 2013 kemur fram að af þeim 172 sem sóttu um hæli á Íslandi voru sex frá Nígeríu. Ekki kemur fram hversu margir þeirra fengu hæli en DV hefur vitneskju um að minnsta kosti tvo níger­ íska einstaklinga sem vísað var úr landi árið 2013 á grundvelli Dyfl­ innarreglugerðarinnar. Alls ellefu manneskjur fengu viðurkennda stöðu flóttamanns það ár og einn dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Þannig hafði 160 manneskjum verið synjað um dvalarleyfi, með­ al annars á grundvelli Dyflinnar­ reglugerðarinnar, eða mál þeirra voru enn í vinnslu hjá stofnuninni, í lok árs 2013. Með hliðsjón af ársskýrslum Útlendingastofnunar fyrir árin 2012 og 2013 má ljóst vera að alls sóttu 25 einstaklingar frá Nígeríu um hæli á þessu tímabili. Á sama tíma fengu alls sautján manneskj­ ur viðurkennda stöðu flóttamanns eða dvalarleyfi af mannúðar­ ástæðum. Álykta má að meirihluti þeirra hafi verið frá öðrum lönd­ um en Nígeríu. Í ljósi þessa má leiða líkur að því að íslenska rík­ ið hafi sent á annan eða þriðja tug Nígeríumanna úr landi á síðustu tveimur árum. Líklegt verður að teljast að einhver þeirra hafi þegar verið sendur aftur til Nígeríu. Þar sem erfitt getur verið að komast beinustu leið frá Níger­ íu til Íslands má gera ráð fyrir því að vel flestir hælisleitenda frá Ní­ geríu hafi haft viðkomu í öðru Evrópuríki áður en þeir komu hingað til lands. Ísland er aðili að hinni svokölluðu Dyflinnarreglu­ gerð en samkvæmt henni má að­ ildarríki vísa hælisleitanda aftur til þess Schengen­ríkis þar sem hann steig fyrst niður fæti. Engar upp­ lýsingar eru til um afdrif þeirra sem vísað er til annars aðildarríkis Schengen á grundvelli Dyflinnar­ reglugerðarinnar. Oft og tíðum er þar um að ræða einstaklinga sem hafa þegar fengið synjun um hæli í viðkomandi ríki. Þannig má leiða líkur að því að margir þeirra Níger­ íumanna sem vísað var úr landi á árunum 2012 og 2013 hafi þegar verið sendir aftur til Nígeríu. Sú gæti verið raunin um Osahon Okoro, ungan heilsu­ veilan mann frá Nígeríu. DV greindi frá því í lok síðasta árs að hann yrði sendur til Ítalíu á grund­ velli Dyflinnarreglugerðarinnar eftir að innanríkisráðuneytið stað­ festi úrskurð Útlendingastofnunar þess efnis að vísa ætti honum úr landi. Á Ítalíu hafði Okoro þegar verið synjað um hæli og því óttað­ ist hann að verða sendur aftur til Nígeríu en þar höfðu yfirvöld elt hann uppi vegna tengsla hans við pólitísku samtökin M.E.N.D., sem berjast gegn arðráni, spillingu og mannréttindabrotum yfirvalda og alþjóðlegra stórfyrirtækja á sviði olíuleitar gegn smærri samfélög­ um í Nígeríu. DV hefur undan­ farna daga reynt að hafa uppi á Okoro, meðal annars í gegnum töluvpóst, en ekki haft erindi sem erfiði. Vísað til pyntingarlands Þvert á alþjóðasamninga Ísland hefur fullgilt alþjóðasamninginn gegn pyntingum Ísland hefur fullgilt alþjóðasamninginn gegn pyntingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Samkvæmt 3. grein samningsins er aðildarríkjum bannað að vísa úr landi, endursenda eða framselja mann til annars ríkis, ef veruleg ástæða er til að ætla að hann eigi þar á hættu að sæta pyntingum. „Þegar ákveðið er hvort slíkar ástæður eru fyrir hendi skulu þar til bær yfirvöld hafa hliðsjón af öllum at- riðum sem máli skipta, þar á meðal, eftir því sem við á, hvort í ríki því sem um ræðir viðgangist áberandi, gróf eða stórfelld mannréttindabrot,“ segir í samningnum. Samkvæmt fyrstu almennu athugasemd Alþjóðanefndarinnar gegn pyntingum felst í 3. grein einnig bann við því að senda flóttamann til lands sem líklegt er til að endursenda hann til ríkis sem kann að beita hann pyntingum. Réttarkerfi Nígeríu er í skötulíki. Í október í fyrra tilkynntu mannréttindasamtökin Amnesty International að tæplega þúsund fangar hefðu dáið í nígerískum fangelsum á fyrri helmingi ársins 2013. Margir þeirra hefðu verið teknir af lífi en aðrir dáið vegna hörmulegra aðstæðna, hungurs og skorts á heilbrigðisþjónustu. Það eitt að vera grunaður um glæp getur haft í för með sér áralanga fangelsisvist í Nígeríu. Meira en helmingur fanga þar í landi hefur aldrei verið leiddur fyrir dóm- stóla að því er fram kemur í gögnum á vef Amnesty International. Þá eru pyntingar daglegt brauð og notaðar til að knýja fram játningar sem þykja gild sönnunar- gögn fyrir rétti. Fólk fangelsað án dóms og laga Amnesty segir pyntingar algengar í Nígeríu Í slensk yfirvöld telja að þeim hafi verið heimilt að senda níger íska hælisleitandann Tony Omos til Sviss á grund­ velli Dyflinnarreglugerðarinn­ ar, þar sem ákvörðun þess efn­ is var tekin áður en ljóst var að hann ætti mikil tengsl við fólk á Ís­ landi. Þetta kom fram í máli Fann­ eyjar Þorsteinsdóttur, lögmanns Útlendingastofnunar, við aðalmeð­ ferð máls Tonys gegn Útlendinga­ stofnun í Héraðsdómi Reykjavík­ ur á þriðjudag. Þar var tekist á um kröfur hans um að brottvísun hans verði ógilt og mál hans tekið til efn­ islegrar meðferðar. Stefán Karl Kristjánsson, verj­ andi Tonys, sagði að yfirvöld hefðu ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni í máli Tonys og benti á að hann hefði mikil tengsl við Ísland, hér ætti hann kærustu, son, móðurbróður og systur. Fanney sagði Tony ekki hafa greint frá þessu þegar mál hans var tekið fyrir og því hafi ákvörðun um brottvísun verið lögum sam­ kvæm. „Hvernig áttu stjórnvöld að rannsaka þetta, upplýsingar sem þau vissu ekki um?“ Þess ber að geta að ekki höfðu verið tekin DNA­sýni til staðfestingar á tengsl­ um Tonys við systur sína og frænda þegar hann sótti um hæli haustið 2011. Þá fæddist sonur þeirra ekki fyrr en búið var að senda Tony úr landi, í febrúar síðastliðinn. Stefán sagði Tony nú allslausan og umkomulausan á Ítalíu, en hann fór þangað þegar honum varð ljóst að svissnesk yfirvöld vildu lítið með hann hafa. Innanríkisráðuneytið úrskurðaði að senda ætti Tony til Sviss á grundvelli Dyflinnarreglu­ gerðarinnar í desember í fyrra. Stuttu áður hafði minnisblaði um hann, sem innihélt meðal annars ærumeiðandi aðdróttanir, verið lekið úr innanríkisráðuneytinu á valda fjölmiðla. Stefán Karl benti á að þar sem stjórnvald hefði beitt ólögmætum aðferðum, með því að leka viðkvæmum trúnaðarupplýs­ ingum úr innanríkisráðuneytinu, hefði ekki verið gætt að hlutlægn­ isskyldu. Því bæri dómstólum að ógilda úrskurð innanríkisráðuneyt­ isins. Ráðuneytið gæti vart talist hlutlaus áliti í málinu eftir það sem á undan er gengið, en Gísli Freyr Valdórsson, aðstoðarmaður innan­ ríkisráðherra, hefur verið ákærður fyrir verknaðinn. Evelyn Glory Joseph, barns­ móðir Tonys, og Queen Osemweg­ ie, systir hans, báru vitni fyrir dómnum. Á meðal þess sem fram kom í máli þeirra, var að Evelyn féll í yfirlið á þeim tíma sem lög­ reglan leitaði Tonys hvað mest. Þá sagði Queen að hún hefði átt í nánu og góðu sambandi við bróð­ ur sinn áður en honum var vísað úr landi. Við lok skýrslutöku yfir Tony, spurði hann hvort hann mætti bæta örlitlu við framburð sinn. Eft­ ir að dómari hafði heimilað það sagði hann: „Ég bið dóminn um að átta sig á því að ég verð að fá að sjá son minn. Mér líður mjög illa að sjá hann ekki. Ég bið íslensk stjórnvöld af einlægni að gefa mér tækifæri til að hitta son minn.“ Sonurinn kom of seint Mátti vísa Tony úr landi þar sem sonur hans var ekki fæddur Samkvæmt nýrri skýrslu Amne­ sty International sem ber heitið Welcome to hell fire: Torture and other ill­treatment in Nig­ eria, pynta lögregla og her í Ní­ geríu kerfisbundið konur, menn og börn allt niður í 12 ára aldur Í þeim tilgangi er margvíslegum aðferðum beitt samanber bar­ smíðar, nauðganir og skotárás­ ir. Í skýrslunni kemur fram að fjöldi fólks er oft settur í varð­ hald í framhaldi af yfirgripsmiklu áhlaupi lögreglu, það pyntað í refsingarskyni, til að fá fram játn­ ingu eða til að hafa af því peninga. „Þetta nær mun lengra en til ógeðfelldra pyndinga og morða á vegum meðlima í Boko Haram. Konur, börn og karlmenn víðs vegar um landið sæta grimmileg­ um og kerfisbundnum pynding­ um af hendi yfirvalda, hinum sömu sem eiga að vernda þau. Grimmdin er slík og umfangið að jafnvel hörðustu rannsakend­ um mannréttindabrota er brugð­ ið,“ segir Netsanet Belay, fram­ kvæmdastjóri rannsóknarteymis Amnesty International. Í skýrsl­ unni koma fyrir hundruð vitnis­ burða og sönnunargögn sem Am­ nesty International hefur safnað saman á tíu ára tímabili og vitna um stofnanabundna beitingu pyntinga af hálfu lögreglu og hers í landinu. Skýrslan greinir jafn­ framt frá því að flestir sem sæta fangelsisvist sitja í einangrun og er með öllu meinaður aðgang­ ur að umheiminum, þar með talið lögfræðingum, fjölskyldu og dómstólum. Pyntingar eru orðnar svo órjúfanlegur þáttur í löggæslu í Nígeríu að margar lögreglustöðv­ ar hafa skipað fulltrúa í embætti sem bera ábyrgð á pyntingum. Yfirmenn slíkra pyntingadeilda beita ískyggilegum pyntingaað­ ferðum, meðal annars kæfingu, rafstuði, kynferðisofbeldi og út­ drætti nagla á tám og fingrum. Eitt sláandi dæmi um grófar og sjúklegar pyntingaaðferðir lög­ reglu sem getið er um í skýrslunni felst í frásögn Abosede, 24 ára ní­ gerískrar stúlku, en ofbeldið olli henni varanlegum skaða. „Lög­ reglukona fór með mig í lítið her­ bergi og skipaði mér að klæða mig úr hverri spjör. Hann sagði mér að glenna út fæturna og skaut síðan táragasi upp í leggöngin … mér var síðan skipað að játa á mig vopnað rán … mér blæddi … enn í dag finn í fyrir sársauka í móð­ urlífinu.“ Yfirvöld beita barsmíðum, nauðgunum og skotárásum 12 ára börn pyntuð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.