Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Síða 25
Helgarblað 7.–10. nóvember 2014 Umræða 25
J
afnvel þótt ég – einsog væntan-
lega allt fólk – eigi það til að hafa
í frammi bölmóð og svartagalls-
raus, tel ég mig sjá það í spilun-
um, að heimurinn muni allavega
skána í framtíðinni. En ég reikna þá
með því, að almenningur taki virkan
þátt í því að reisa samfélag manna
á fögrum gildum, einsog sanngirni,
heiðarleika, jafnrétti og fleiri slíkum.
Auðvitað verður stokkað aftur
og fólk mun sjálft sjá um að skoða
spilin sem því verða fengin. Fólk
mun átta sig á því, að valdið hef-
ur sjö andlit: dómsvald, löggjafar-
vald, framkvæmdavald, fjölmiðla-
vald, auðvald, meirihlutavald og
minnihlutavald. Það sem hingað
til hefur verið sett í þrískiptingu
valds, er aldrei nema hluti af sam-
félaginu og jafnvel þótt til sé það
vald sem falið er á bakvið múra, er
samfélagið reist á þeim sjö stólpum
sem ég nefndi. Lýðvaldið er tvíþætt;
minnihlutavald og meirihlutavald.
Og þó svo að oftar en ekki séum við
látin halda að allt stjórnist af valdi
meirihlutans, þá er minnihluta-
valdið einnig virkt á öllum tímum.
Innan tíðar mun alþýða manna
átta sig á hlutföllunum sem í
valdinu leynast. Og það verður
til þess, að samhengið skýrist. En
þegar samhengið skýrist þá mun
fólk flest sjá, að heimurinn er ekki
einkaeign þeirra sem gera til hans
sérstakt tilkall, heldur sameiginleg
eign okkar allra.
Ef við skoðum þau spil sem við
Íslendingar erum með á hendi,
sjáum við, að hér er vitlaust gefið.
Misvitrir stjórnmálamenn röðuðu
spilunum í bunkann, veittu vinum
sínum óheftan og ókeypis aðgang
að auðlindum. Og þeir gefa okkur
síðan leyfi til að hlusta á grenjið í
þeim heimtufreku og gírugu dekur-
rófum sem ekki vilja taka þátt í sam-
eiginlegum útgjöldum þjóðarinn-
ar. Við megum hlusta á grátkórinn
og það reiknar enginn alvörugef-
inn stjórnmálamaður með því að
við áttum okkur á plottinu. En stað-
reyndin er engu að síður sú, að upp-
lýsingaflæðið mun, fyrr eða síðar, ná
til þeirra sem þurfa á vitneskjunni
að halda; ná til þeirra sem hingað
til hafa ekki séð í hendi sér hvernig
valdið er í raun og veru.
Hið þrískipta ríkisvald er alltaf
háð öllu öðru valdi samfélagsins;
vald peninga og fjölmiðla vegur þar
þungt, þar eð menn geta keypt sér
atkvæði og styrkt veika stöðu með
áróðri í fjölmiðlum.
Um leið og fjöldinn gerir sér
grein fyrir þessum staðreyndum,
getum við hætt að láta smábarn í
jakkafötum segja okkur hvenær við
mótmælum og hvenær við mót-
mælum ekki. Þá dæmum við sjálf
og við ákveðum sjálf hvort tiltekin
gagnrýni er makleg eða ómakleg. n
Með draumsýn finna sanna sátt
sælir menn og góðir.
Já, ástand heimsins batnar brátt,
þá brosa allar þjóðir.
Heimur batnandi fer
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
1 Gjaldþrota á Land Rover Sævar Jónsson, kenndur við
Leonard, ekur nú um á glænýjum hvítum
Jaguar Land Rover og hefur vakið athygli
víða. Bíllinn er leigubifreið og umráða-
maður hans er bílaleigan Armar ehf.
Lesið: 31.088
2 „Hann er bara ein tauga-hrúga“ Kona var í síðustu viku
dæmd fyrir að slá son sinn, sem þá var
nýorðinn níu ára, með stólfæti í bakið,
rassinn, handleggi, hægri mjöðm og í
bringuna. Bróðir drengsins segir að litli
drengurinn hafi ítrekað orðið fyrir ofbeldi
og að hann glími við mikinn kvíða.
Lesið: 24.187
3 Slutty Solla Stirða Fyrrverandi fegurðardrottning,
Manuela Ósk Harðardóttir, tók þátt í
hrekkjavöku um helgina og klæddi sig
upp sem „Slutty Solla stirða“ eins og hún
orðaði það sjálf á Instagram.
Lesið 21.511
4 „Hún lemur barnið sitt“ Móðir á Suðurnesjum var í síðustu
viku dæmd fyrir ofbeldi gegn syni sínum.
Bróðir drengsins óttast um velferð hans.
Lesið: 20.047
5 Neyddist til að hætta vegna áreitni eftir að
hafa setið fyrir í Playgirl
Bandarískt fyrirtæki sem sérhæfir sig í
mannauðsstjórnun neitar því að hafa
vanrækt skyldur sínar gagnvart einum
af starfsmönnum sínum eftir að sá hafði
setið nakinn fyrir í tímaritinu Playgirl. Sá
varð fyrir einelti og áreiti á vinnustaðn-
um eftir að upp komst um myndirnar.
Lesið: 16.214
6 Bæjarstjóri samdi við sjálfan sig Í nýrri skýrslu Har-
aldar Líndal Haraldssonar hagfræðings
um fjárhagsstöðu
Reykjanesbæjar eru
samningar stjórnenda
bæjarins á undan-
förnum árum við
Eignarhaldsfélagið
Fasteign gagnrýndir harðlega.
Lesið: 16.113
Mest lesið
á DV.is
Myndin Athyglin á AmabAdama Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin stendur nú sem hæst og iðar miðborgin af tónleikagestum úr öllum heimshornum. Mynd dAvíð Þór GuðLAuGsson
Þetta eru
ekki skrímsli
Hjálmar G. sigmarsson er á móti „skrímslavæðingu“ kynferðisbrotamanna. – DV
Ég er skýr í
kollinum
Hilmar Kolbeins vill stunda vinnu. – DV
Það er ákveðin
blessun
Haukur, Herbert og sindri ferðast um landið með myndatökuvél. – DV
L
æknar fara nú fram á tugpró-
senta launahækkun og verk-
fallsaðgerðir farnar í gang.
Útspil fjármálaráðherra er að
benda á keðjuverkun í sam-
félaginu, launaskrið og verðbólgu.
Í sömu andrá lofar hann að hafin
verði bygging nýs Landspítala á kjör-
tímabilinu.
Getum ekki haldið uppi velsæld
Afglöp ráðamanna umliðin ár eru
einna helst að nýta ekki þjóðarauð-
lindir til almennrar velsældar. Þjóð-
in á fiskimiðin, náttúruperlurnar
og orkuna í iðrum jarðar, vatnið og
hreinleikann. Stjórnarskráin inni-
ber samt ekkert auðlindaákvæði sem
tryggir þetta eignarhald og áskil-
ur ráðamönnum að ganga erinda
eigandans en ekki fámennra hags-
munahópa. Arðurinn fer því ekki
í sameiginlegan sjóð landsmanna
eins og hjá frændum okkar í Nor-
egi. Þess vegna getum við ekki haldið
uppi almennri velsæld. Sé þessu ekki
breytt mun ríkja upplausnarástand á
Íslandi á næstu árum og fátækt mun
festa hér rætur.
Gaspur
Með gaspri sínu um nýjan spítala
tjaldar fjármálaráðherra til einnar
nætur. Sífellt er reynt að telja þjóð-
inni trú um að nýr spítali sé henn-
ar brýnasta hagsmunamál en það
er ekki rétt. Heilbrigðiskerfinu mun
ekki verða bjargað með nýju húsi
frekar en RÚV eða Orkuveitunni. Það
er starfsfólkið sjálft sem heldur flek-
anum á floti og það þrátt fyrir ráða-
menn.
Dugi verkfallsaðgerðir lækna ekki
til að hreyfa við ríkisstjórninni er fátt
sem heldur í. Ástæðan er samkeppni
um lækna í alþjóðlegu vinnuum-
hverfi. Fjármálaráðherra situr því
frammi fyrir tveimur valkostum,
annars vegar nýr Landspítali með
viðvarandi læknaskorti eða að semja
með það fyrir augum að halda í
mannskapinn. Þó að læknar séu eins
og þeir eru bendir aðsóknin til þess
að þjóðin vilji síður vera án þeirra og
mun því áreiðanlega fylgja fjármála-
ráðherra sínum að málum. n
Landspítali án lækna„Dugi verkfallsað
gerðir lækna ekki
til að hreyfa við ríkis
stjórninni er fátt sem
heldur í.
Lýður Árnason
læknir
Af blogginu