Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Page 36
Helgarblað 7.–10. nóvember 201436 Skrýtið Fór á kennderí með BandaríkjaForseta n Jón Ólafsson ritstjóri datt í það með Ulysses S. Grant n Lánaði forsetanum peninga J ón Ólafsson, ritstjóri og skáld, var litríkur ævintýramaður sem gustaði af, eins og sagt var. Hann var fæddur 1850 og lést 1916. Hann hóf blaðamannaferil sinn 18 ára og varð einn sögufræg­ asti blaðamaður Íslandssögunnar. Einn fjörlegasti tími Jóns var þegar hann dvaldi í Ameríku upp úr 1870. Hann fékk hugmynd sem átti eftir að eiga hug hans allan næstu miss­ erin. Bandaríkjamenn höfðu keypt Alaska af Rússum árið 1867. Þó að kaupin ættu síðar eftir að sanna sig sem sannkölluð reyfarakaup sættu bandarískir ráðamenn gagnrýni fyrstu áratugina í kjölfarið fyrir að kaupa þetta hrjóstruga land sem mörgum sýndist óbyggilegt. Íslendinganýlenda í Alaska Jón Ólafsson sá sér þar leik á borði. Vesturferðir Íslendinga voru á þess­ um tíma að komast á fullan skrið og Bandaríkjamenn þurftu að finna einhver not fyrir Alaska. Hví ekki að nota skikann sem Íslendinga­ nýlendu? Nýja­Ísland gæti risið í Alaska og með tímanum orðið blómlegt samfélag. Jón kynnti þess­ ar hugmyndir fyrir stjórnvöldum í Bandaríkjunum sem tóku vel í þær. Úr varð að Jón sigldi til Alaska og skoðaði landkosti þar. Vel tekið af forsetanum Jón hitti Ulysses S. Grant Banda­ ríkjaforseta að máli í Washington árið 1875. Jón hafði skrifað skýrslu um Alaskaáætlanir sínar og afhenti forsetanum. Forsetinn studdi hug­ myndir Jóns og virðist hafa tekið honum fagnandi. Grant var á þess­ um tíma í áfengisbindindi en hann hafði lagt slæma drykkjusiði á hill­ una eftir að hann komst í hið valda­ mikla embætti. Voru ráðgjafar for­ setans mjög á tánum við að halda honum frá áfengi. En ekkert virðist hafa ráðið við Grant þegar Jón bar að garði. Fyllerí með Grant Eftirfarandi saga er sögð af fundi þessum í bók Hjartar Pálssonar um Alaskaför Jóns: „Vel fór með [Jóni og Ulysses S. Grant], og kom þar brátt, að þeim þótti fullþröngt um sig í Hvíta húsinu og lögðu leið sína á helstu knæpur Washington­ borgar. Þegar þeim tók að leið­ ast, héldu þeir aftur heimleiðis, og fylgdi Jón forsetanum að dyrum Hvíta hússins. Grant vildi þá halda áfram, en Jón kvaðst vera orðinn syfjaður og slæptur og hafnaði boðinu.“ Forsetinn blankur „Grant sagðist þá mundu blóta Bakkus einn, en hafði orð á því, að sér væri fjár vant. Jóni Ólafs­ syni fannst hægur vandi að bæta úr því og sagði Bandaríkjaforseta, að hann skyldi lána honum hálfan silfurdal, sem hann væri með á sér. Því tók Grant fegins hendi. Við það kvöddust þeir, og er óvíst með öllu, að þeir hafi sést eft­ ir það. Auðvitað var um það talað, að hinn íslenski lánardrottinn vitj­ aði fjárins, við hentugleika, en það fórst fyrir, svo að þaðan í frá gat Jón Ólafsson spaugað með það, þegar honum sýndist, að hann teldi til skuldar hjá Bandaríkjaforseta!“ Ævintýralegar hugmyndir Jón Ólafsson hafði háleitar hug­ myndir um framtíð íslensku þjóðarinnar á nýju heimili í Alaska. Í riti sínu Alaska gerir hann grein fyrir þessu á fjörlegan hátt. Hann fullyrðir að í Alaska geti íslensk þjóð fjölgað sér gífurlega og talið 100 milljónir manna innan fárra alda. „Það hlæja ugglaust mörg fífl að þessu,“ skrifar hann, en það geri ekki til því alltaf hafi verið hlegið að góðum hugmyndum. Það sýni mannkynssagan. Hann skrifar til dæmis: „Ef Ís­ lendingar næmu nú land í Alaska – segjum 10 þúsundir á 15 árum, og fjöldi þeirra tvöfaldaðist þar t.d. á hverjum 25 árum, sem vel mætti verða og ugglaust yrði í svo hag­ feldu landi, þá væru þeir eftir 3 til 4 aldir orðnir 100 milj­ ónir, og mundu þá þekja alt meginlandið frá Hudson­flóa til Kyrra­Hafs. Þeir gætu geymt tungu sína, aukið hana og auðg­ að af hennar eigin óþrjótandi rótum, og, hver veit, ef til vill sem erfingjar ins mikla lands fyrir sunnan sig, smátt og smátt út­ breitt hana með sér yfir þessa álfu, og endrfætt ina afskræmdu ensku tungu.“ Braut blað í blaðamennsku Ekkert varð úr Alaskaáformum Jóns en hann lét ekki deigan síga og lét mikið að sér kveða eins og áður. Hann ritstýrði dagblöðum hér heima og í Vesturheimi og sat á Alþingi. Starf Jóns Ólafssonar markaði tímamót í blaðamennsku á Íslandi. Hann þótti einstaklega þrautseigur og snjall í útgáfu og skrifum. n Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is Þúsundþjalasmiður Jón Ólafsson gerði margt um ævina, en var lengst af blaðamaður. Hann sat einnig á Alþingi. Forsetinn Ulysses S. Grant Bandaríkjaforseti 1869–1877. „Grant vildi þá halda áfram, en Jón kvaðst vera orðinn syfjaður og slæptur og hafnaði boðinu. Milljónasamfélag Jón Ólafsson vildi stofna Íslendinganýlendu í Alaska sem síðar teldi milljónir manna. Ævintýramaður Jón Ólafsson framan á stórskemmtilegri bók Gils Guðmundssonar um kappann. Einnig er mælt með bók Hjartar Pálssonar, Alaskaför Jóns Ólafssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.