Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Page 38
Helgarblað 7.–10. nóvember 201438 Sport Galácticos leiddir til Glötunar n Tíu leikmenn sem fóru illa út úr því að leika með Real Madrid n Illa farið með margar hollenskar stjörnur sem fengu síðar uppreisn æru n Aðrir ekki eins heppnir R eal Madrid hefur aldrei vílað fyrir sér að kaupa bestu og dýrustu leikmenn í heimi hverju sinni. Svo virðist sem alla knattspyrnumenn dreymi um að leika í hvíta búningn- um í Madríd. Margir eru kallaðir en ekki allir slá í gegn. Með Galácticos- stefnu sinni hefur Real Madrid frá ár- inu 2000 í fjórgang slegið heimsmet með því að kaupa dýrustu leikmenn sögunnar. Luis Figo, Zinedine Zi- dane, Cristiano Ronaldo og Gareth Bale hafa verið keyptir fyrir sam- tals 250 milljónir punda. Real kaup- ir mikið af dýrum leikmönnum og eins og gefur að skilja þá slá ekki allir í gegn á Bernabéu. Hér er fjallað um tíu leikmenn, í engri sérstakri röð, sem höfðu ekki erindi sem erfiði og fóru margir lang- leiðina með að eyði- leggja feril sinn hjá Real Madrid. n  Rafael Van Der Vaart n Hollenski miðjumaðurinn sló ungur í gegn hjá Ajax í heimalandinu og átti að verða hinn næsti Johan Cruyff. Margir furðuðu sig á því þegar hann gekk til liðs við þýska liðið Hamburger SV í ljósi þess að hann var eftirsóttur af mörgum stórliðum. Hann sló hins vegar í gegn þar og var meira að segja tilnefndur til Ballon d'Or-verðlaunanna í október 2008. En þá var Real Madrid komið inn í myndina og nappaði Rafael á kostakjörum, rúmar 13 milljónir evra, þrátt fyrir að önnur lið hafi boðið betur. Hann byrjaði vel, skoraði í sínum fyrsta leik og skoraði sína fyrstu þrennu innan nokkurra vikna. Þjálfarinn, Juande Ramos, fann honum hins vegar sjaldnast pláss í byrjunarliðinu. Þegar Manuel Pellegrini tók við árið eftir féll Rafael enn aftar í goggunarröðina og fékk ekki einu sinni úthlutað treyjunúmeri fyrir tímabilið. Hann reyndi að vinna sér sæti á ný en var seldur til Tottenham í ágúst 2010 þar sem hann varð lykilmaður í uppreisn Spurs undir stjórn Harrys Redknapp. Síðan fjaraði undan dvöl hans þar og sneri hann aftur til Hamburger 2012 þar sem hann leikur enn.  Royston Drenthe n Hollendingurinn þótti einn efnilegasti leikmaður Evrópu og sló í gegn í sigurliði Hollands á Evrópumóti U-21 árs leikmanna árið 2007. Real keypti þennan eftirsótta vinstri bakvörð/vinstri kantmann frá Feyenoord á 14 milljónir evra eftir þá frammistöðu. Þrátt fyrir að hafa fengið draumabyrjun á ferlinum hjá Real þar sem hann skoraði ótrúlegt mark af 36 metra færi þá lenti hann upp á kant við stjórann, Bernd Schuster, og fékk fá tækifæri. Stuðningsmenn Real bauluðu á hann á öðru tímabili hans og síðar bar hann fyrir sig kvíðaröskun sem leiddi til þess að hann óskaði eftir því að spila ekki. Tímabilið 2010/2011 var hann lánaður til Hércules á Spáni og tímabilið eftir það til Everton þar sem hann sýndi á köflum ágæta takta. Ferill hans er nær algjörlega farinn í vaskinn og leikur þessi 27 ára leikmaður nú með Sheffield Wednesday í ensku Championship-deildinni.  Kaká n Florentino Pérez hafði lýst því yfir að Brasilíumaðurinn Kaká væri fæddur til að leika fyrir Real og hafði margoft reynt að kaupa þennan fyrrverandi besta leikmann veraldar. Það tókst ekki fyrr en árið 2009 þegar Real Madrid greiddi AC Milan 65 milljónir evra. Nokkrum dögum síðar var tilkynnt um kaup Real á Cristiano Ronaldo og Kaká féll í skuggann af honum og náði sér aldrei á strik. Þrátt fyrir nokkra góða leiki þá gerðu meiðsli og fjöldi heimsklassaleikmanna í hans stöðu það að verkum að hann varð aldrei samur. Árið 2013 sneri hann aftur til Milan þar sem hann lék ágætlega en þeir gátu ekki haldið honum. Kaká samdi við bandaríska liðið Orlando City sem enn er verið að koma á laggirnar og leikur á meðan með sínu gamla félagi, Sao Paulo í Brasilíu.  Arjen Robben n Robben hefur óneitanlega orðið betri með árunum og margir furða sig enn á því að honum hafi verið bolað burt frá Real Madrid. Þangað var hann keyptur fyrir 24 milljónir punda árið 2007 eftir frábæra frammistöðu með Chelsea. Hann varð lykilmaður hjá Real á fyrstu tveimur leiktíðum sínum og hjálpaði liðinu að vinna deildina á sínu fyrsta ári. En það þurfti að fjármagna og búa til pláss fyrir Ronaldo og Kaká árið 2009 og komust forráðamenn Real að þeirri niðurstöðu að Robben mætti missa sín. Hann fór til Bayern München og söguna síðan þekkja flestir. Robben er því einn af fáum sem ekki hefur upplifað algjört hrun á ferlinum eftir dvöl sína hjá Real. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is  Jonathan Woodgate n Enski miðvörðurinn þurfti kannski enga hjálp frá Real við að spilla ferlinum þar sem þrálát meiðsli sáu að mestu um það. Hann þótti hins vegar einn besti miðvörður heims á sín- um besta degi og sló í gegn hjá Leeds. Fjárhagserfiðleikar neyddu Leeds til að selja hann til Newcastle 2003 en ári síðar var hann keyptur til Real á rúmar 13 milljónir punda. Hin þrálátu meiðsli gerðu það að verkum að hann missti af öllu fyrsta tímabili sínu í Madríd og lék ekki sinn fyrsta leik fyrr en í lok september 2005. Margir muna eftir þeim leik sem þykir einn versti fyrsti leikur knattspyrnumanns í sögunni. Woodgate skoraði sjálfsmark, fékk beint rautt spjald og var rekinn af velli. Woodgate lék aðeins níu leiki fyrir Real á þremur árum og var á endanum látinn fara til Middlesbrough árið 2007. Spænskir lesendur dagblaðsins Diario Marca kusu hann verstu kaup 21. aldarinnar í netkönnun þar sem hann hlaut 37% atkvæða!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.