Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Side 40
Helgarblað 7.–10. nóvember 201440 Lífsstíll
Ást gerir
kynlíf betra
Ást og skuldbinding gera kynlíf
meira fullnægjandi fyrir konur
samkvæmt félagsfræðinginum
Beth Montemurro við Penn
State Abington-háskólann í
Bandaríkjunum.
Með viðtölum við gagnkyn-
hneigðar konur á aldrinum 20
til 68 ára komst Montemurro
að því að flestar kvennanna
töldu ást nauðsynlega til að ná
hámarks ánægju af bæði kyn-
ferðislegu sambandi og hjóna-
bandi. Konurnar sögðu ávinning
af ást ekki aðeins tilfinninga-
legan heldur sögðust þær einnig
njóta kynlífs betur ef þær væru
ástfangnar og að ástin hefði
áhrif á hömlur þeirra.
É
g hugsa að ef ég hefði gert
límmiðabók þá hefði hún
selst jafn vel,“ segir Theodóra
Mjöll Skúladóttir Jack, höf-
undur bókanna Frozen Hair-
styles og Princess Hairstyles sem
koma út í Bandaríkjunum síðar í
þessum mánuði. Fyrrnefnda bók-
in kemur einnig út á íslensku um
miðjan mánuðinn, en þó aðeins
minni í sniðum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Eddu útgáfu sem gef-
ur bókina út undir merkjum Dis-
ney, hafa á milli 50 og 60 þúsund
bækur selst í forsölu, sem þykir
mjög góður árangur.
Theodóra er vissulega að grín-
ast með límmiðabókina, enda há-
greiðslubók aðeins meira verk-
efni. En Frozen-æðið er vissulega
mjög ríkjandi og varningur tengd-
ur teiknimyndinni er vinsæll með-
al barna, þá sérstaklega ungra
stúlkna, sem vilja allar líkjast Önnu
og Elsu, aðalsöguhetjunum.
Mikill heiður
Theodóra er hárgreiðslukona að
mennt og gaf út sína fyrstu bók,
Hárið, út árið 2012 og sló hún ræki-
leg í gegn, í kjölfarið fylgdi svo bók-
in Lokkar, sem ætluð er yngri stúlk-
um. Því er hún orðin vel sjóuð í því
að gera hárgreiðslubækur.
Það voru aðstandendur Eddu
útgáfu sem settu sig í samband við
Theodóru og fengu hana í þetta
verkefni, að gera hágreiðslubækur
í anda Frozen og Disney-prinsessa.
En fyrirtækið hefur rétt til að gefa út
bækur undir nafni Disney. Auðvit-
að sló Theodóra til. „Það er algjör
heiður að fá að vinna fyrir svona
ótrúlega stórt fyrirtæki,“ segir hún.
Fylltu Smáralind af
hármódelum
Bókin Princess Hairstyles er að
miklu leyti byggð á bókinni Lokk-
ar og er það ein helsta ástæða þess
að hún kemur ekki út á íslensku.
Frozen-bókina vann Theodóra
hins vegar frá grunni.
„Ég held að bókin sé mjög vel
heppnuð. Það voru gríðarlega
margar stelpur sem vildu fá að vera
með. Smáralindin fylltist af stelpum
og það var bara frábært.“ Theodóra
á þar við þegar prufur fóru fram á
hármódelum fyrir bókina í sumar,
en á sjötta þúsund manns mættu
í Smáralindina og langar biðraðir
mynduðust.
„Það var alveg hræðilega erfitt
að velja börn og mér leið eins og
Simon Cowell í American Idol, að
vera svona vond,“ segir Theodóra
hlæjandi, en er engu að síður hálf
miður sín yfir því. Hún segir þó
hafa verið mjög gaman í tökunum
sjálfum þegar loksins var búið að
velja stúlkur sem hármódel. Þær
hafi til að mynda mikið spurt hvort
þær væru Anna eða Elsa. „Ég sagði
bara að þær væru bara báðar. Svo
vorum við með myndina í gangi
á meðan og þær voru allar í
karakter að syngja. Þetta var
mjög krúttlegt og fyndið.“
Lá yfir Frozen
Theodóra þurfti að leggj-
ast vel yfir Frozen-bíó-
myndina til að töfra fram
réttu greiðslurnar. „Ég er
búin að horfa á myndina
ansi oft. Að lokum tók
ég svo „screen shot“
af helstu atriðunum
svo ég þyrfti ekki að
horfa á myndina oftar.
Svo stúderaði ég það
og allt sem tengist
Frozen, fléttur, hvað
er í gangi í dag og
hvað stelpur vilja.
Þetta er aðeins nú-
tímamiðað.“ Að-
spurð segir Theo-
dóra greiðslurnar þó
alls ekki vera flókn-
ar fyrir venjulegt fólk.
„Þetta er mjög auðvelt
og allt sýnt skref fyrir
skref.“
Theodóra segist
varla gera sér grein fyr-
ir því hvað hún sé komin
út í og vinsældir bókanna
hafa farið fram úr henn-
ar björtustu vonum. „Ég kann
ekkert á þetta.
Ég hef kom-
ið einu sinni
til Banda-
ríkjanna og
veit ekk-
ert hvern-
ig mark-
aðurinn
virkar,“
segir hún
hrein-
skilin.
„Þetta er
svo ótrú-
lega fjar-
lægt,“
bætir
hún við
að lok-
um. n
„Þetta er svo
ótrúlega fjarlægt“
Theodóra Mjöll er búin að selja um 60 þúsund Frozen-hárgreiðslubækur í Ameríku
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is „Ég kann ekkert á þetta. Ég hef
komið einu sinni til
Bandaríkjanna.
Stolt af bókunum
Theodóra er að vonum
stolt af bókunum
sínum, en Frozen
Hairstyles mun einnig
koma út á íslensku von
bráðar.
Þ
að skiptir engu máli hvort þú
ert í stífu æfingaprógrammi
marga daga í viku eða ferð
bara reglulega út að ganga
eða hlaupa, það er alltaf nauðsyn-
legt að passa vel upp á að drekka
nógu mikið vatn. Annars getur lík-
aminn ofþornað og þá fer þér að
líða illa. Það þarf hins vegar ekki að
vera að þú áttir þig á einkennunum
strax, enda gætu þau átt við ýmis-
legt fleira.
Fyrsta og algengasta merkið um
að líkaminn sé að þorna upp er höf-
uðverkur. Líkaminn er stanslaust að
losa sig við vökva með ýmsum leið-
um og þannig tapast mikilvæg sölt.
Skortur á söltum breytir efnafræði-
legri samsetningu blóðs og heil-
inn er mjög viðkvæmur fyrir slíkum
breytingum. Þegar vatnsskorturinn
verður mikill þá eykst höfuverk-
urinn gjarnan og verður nán-
ast óbærilegur, enda dregur þetta
ástand úr súrefnisflæði til heilans.
Ef þú æfir mikið og ert með viðvar-
andi höfuðverk þá ættir þú að reyna
að koma reglu á vatnsdrykkjuna.
Það er þó ekki hollt að drekka of
mikið af vatni og best að gæta hófs
í vatnsdrykkju sem og öðru.
Þegar þvagið er dökkgult þá get-
ur það verið merki um ofþornun.
Ástæðan fyrir því er sú að þegar lík-
amann skortir vökva þá á hann erf-
iðara með að losa sig við úrgangsefni
á fjölbreyttan hátt. Öll úrgangsefn-
in fara því út með þvaginu og þess
vegna verður það dekkra á litinn.
Ofþornun getur einnig valdð
hægðatregðu og er ástæðan af svip-
uðum toga. Þegar líkamann fær
nóg af vatni er losun úrgangs eðli-
leg. Þegar vökvinn er hins vegar
ekki nægur þá á úrgangurinn erf-
iðara með að ferðast um meltingar-
veginn og skila sér út. n
ritstjorn@dv.is
Þekktu einkenni ofþornunar
Takmörkuð vatnsdrykkja getur valdið mikilli vanlíðan
Flestir deila
kynlífs-
fantasíum
Í nýrri rannsókn, sem birtist
í Journal of Sexual Medicine,
kemur fram að flestir deila al-
gengustu kynlífsfantasíunum.
Hópur vísindamanna, með
kanadíska sálfræðinginn Christ-
ian Joyal í fararbroddi, fékk þátt-
takendur til að gefa 55 fantasí-
um einkunn auk þess að skrifa
niður uppáhaldsfantasíuna ef
hana vantaði á listann.
Fantasíur tengdar róman-
tík voru algengastar hjá báðum
kynjum auk þess sem fantasíur
um undirgefni og drottnun skor-
uðu hátt. Vísindamenn segja að
þótt niðurstaðan skýri að vissu
leyti vinsældir Fifty Shades of
Grey ættu menn alls ekki að
byrja á því að rasskella bólfélaga
sína að þeim óspurðum þar sem
mikill munur væri á fantasíum
og því sem fólk hefði áhuga á að
upplifa í raun og veru.
Tölvuleikir
auka ekki
ofbeldi
Nýlega var birt rannsókn sem
gerð var á vegum Villanova-há-
skólands og Rutgers-háskól-
ans sem sýndi að ofbeldisfullir
tölvuleikir auka ekki ofbeldisfulla
hegðun þeirra sem spila. Stuttu
eftir birtingu þessarar rannsókn-
ar birti Stetson-háskóli niður-
stöður svipaðrar rannsóknar og
var komist að sömu niðurstöðu.
Öfugt við það sem margir
halda, þá var niðurstaðan sú að
með auknum vinsældum ofbeld-
isfullra leikja, þá hefur ofbeldi
minnkað hjá ungu fólki. Rann-
sakendur sögðu hins vegar að
það ætti ekki að líta á niðurstöð-
urnar þannig að með því að spila
fleiri leiki yrði heimurinn ör-
uggari staður.