Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Side 42
Helgarblað 7.–10. nóvember 201442 Fólk
Að vera intersex er
ekkert tiltökumál
n Berjast gegn aðgerðum á ungbörnum n Vilja auka skilning fólks á intersex
K
itty Anderson er formaður
Intersex samtaka Íslands og
hefur nú undanfarnar vikur
farið á hinar ýmsu intersex-
ráðstefnur í Evrópu. Hún
fór meðal annars til Riga í Lettlandi
á fund þar sem intersex-samtök
víðsvegar að úr Evrópu hittust til að
ræða málin, en laugardaginn 8. nóv-
ember er minningadagur intersex-
fólks. Hún settist niður með blaða-
manni DV og sagði aðeins frá því
hverju intersex-samtök víða um
heiminn eru að berjast fyrir.
Intersex-fólk eins og annað fólk
„Intersex er reglhlífarhugtak yfir þá
einstaklinga sem búa yfir kynein-
kennum sem falla utan þess sem
við köllum kvenkyn eða karlkyn,“
segir Kitty. „Intersex-einstaklingar
geta samt sem áður verið konur eða
karlar, sumir upplifa sig ekki jafn
„binary“, það er, þau skilgreina sig
einhvers staðar á milli en það er al-
veg jafn algengt hjá intersex-einstak-
linum eins og öðru fólki.“
Stórar aðgerðir
Það alvarlegasta sem intersex-
einstaklingar lenda í er að þeir hafa
flestir sætt einhvers skonar læknis-
aðgerðum. „Það geta verið skurð-
aðgerðir þar sem hluti ytri eða innri
kynfæra er fjarlægður og þar sem
notaðar eru hormónameðferðir í
framhaldinu til að staðfesta ákveðið
kyn. Intersex-samtökin eru mikið á
móti slíkum aðgerðum. Ástæðurnar
sem gefnar eru fyrir skurðaðgerð-
um eru þrjár; að létta á áhyggjum
foreldra, koma í veg fyrir stríðni og
tryggja samsvörun við rétt kyn.“
Byggir á ósönnuðum tilraunum
Aðgerðirnar sem gerðar eru til að
tryggja samsvörun við rétt kyn eru
í grunninn byggðar á kenningum
læknisins Johns Money, sem upp
úr 1950 var sannfærður um að kyn
ákvarðaðist út frá uppeldis- og sam-
félagsþáttum og hefði ekkert með
líffræðilega þætti að gera. „Hann
prófaði þessa kenningu sína þegar
tveir karlkyns tvíburar fæddust og
umskurður annars þeirra mistókst.
Þá var honum hreinlega breytt í
stelpu. Tvíburarnir voru svo ald-
ir upp sem strákur og stelpa. Ann-
ar tvíburinn fór svo að leika og haga
sér eins og strákur en hinn eins og
stelpa. Dr. Money taldi þetta sönnun
þess að tilraun hans hafði tekist.
Þegar David Reimer, einstaklingur-
inn sem um fjallar, varð eldri og
komst að því hvað hafði gerst, kom í
ljós að hann hafði aldrei upplifað sig
sem stelpu. Upp frá því fór hann að
lifa sem karlmaður, sem hann auð-
vitað var allan tímann.“
Aðgerðir á ungum börnum
David Reimer sneri þá bakinu við dr.
Money en samt hélt læknirinn því
fram að tilraunin hefði tekist. „Til-
raunin er ein ástæða þess að aðgerð-
ir sem slíkar eru enn framkvæmdar í
dag á mjög ungum börnum. Því mið-
ur eru mjög margir sem lenda í því
þegar þeir komast á fullorðinsár að
það er ljót öramyndun. Aðgerðin er
framkvæmd á mjög mjög viðkvæmu
svæði á mjög ungum börnum. Þau
vaxa og örin teygjast, þetta getur svo
valdið ýmiss konar vandamálum. Oft
og tíðum þarf fólk að fara í aðra að-
gerð þegar það kemst á fullorðinsár
til að laga það sem gert var þegar það
var yngra. Einstaklingar hafa mót-
mælt þessum aðgerðum í hartnær
30 ár. Í hvert skipti sem þessu er mót-
mælt er því haldið fram að aðgerð-
irnar hafa verið að þróast og að þær
séu orðnar mikið betri núna en þær
voru. Málið er að það er ekki hægt
að vita hvort aðgerðirnar séu orðn-
ar betri fyrr en einstaklingurinn er
kominn á fullorðinsár. Það eru ekki
bara einstaklingar um fertugt eða
fimmtugt sem eru að koma fram og
segja að þessar aðgerðir hafi valdið
þeim skaða. Það eru einstaklingar
um tvítugt að koma fram núna sem
eru að segja að þær hafi valdið þeim
skaða.“
Þrýstingur frá læknum
Aðgerðirnar og annað verður oft til
þess að intersex-einstaklingar hætta
að leita til lækna, þar sem þeir treysta
þeim ekki. „Læknar sjá þar af leið-
andi sjaldan afleiðingar þess sem
þeir hafa gert því fólk hættir að fara
til þeirra. Læknafóbía er mjög al-
geng innan intersex-hópa. En það
eru margir foreldrar sem ákveða að
fara ekki út í þessa aðgerð þrátt fyr-
ir þrýsting frá læknum. Heilbrigðis-
menntaðir foreldrar eru ólíklegri til
þess að velja aðgerð en það er gott
að halda því til haga að það eru líka
læknar sem hafa verið að mótmæla
aðgerðunum og benda á að þær séu
rangar. Enn sem komið er, er það
minnihluti lækna, því miður, en
hann fer ört stækkandi. Þeir einstak-
lingar sem ekki hafa sætt þessum að-
gerðum, hvort sem það eru aðgerð-
ir á ytri eða innri kynfærum, virðast
ekki eiga í neinum erfiðleikum með
að samsama sig við kyn. Yfirleitt eru
þau mun sáttari einstaklingar þegar
þau komast á fullorðinsár.“
Ein aðgerð á ári
„Það er um það bil ein aðgerð fram-
kvæmd á intersex-ungbörnum hér
á landi á ári. „Það er mjög skiljan-
legt að þær séu framkvæmdar hér. Í
Bandaríkjunum, til dæmis, eru fram-
kvæmdar fimm á dag. Læknar hér
á landi eru ekki að fara að gera eitt-
hvað öðruvísi upp á eigin spýtur en
gert er annars staðar. Það er mjög lík-
legt að sami þrýstingur sé á foreldra
hér og annars staðar. Foreldrum er
sagt að eitthvað sé að og það sé hægt
að laga það.“
Mikil ábyrgð á læknum
The Journal of Sexual Medicine birti
rannsókn þar sem tveimur hópum
sjálboðaliða var sýnt sitthvort kynn-
ingarmyndbandið um hvað intersex
væri. Annar hópurinn fékk mynd-
band þar sem intersex var útskýrt
frá læknisfræðilegu sjónarhorni en
hinn hvernig það er skilgreint sam-
kvæmt sálfræðingum. „Niðurstöð-
urnar voru nokkuð sláandi. 66%
þeirra sem horfðu á læknisfræði-
lega myndbandið völdu aðgerðir fyr-
ir sitt ímyndaða barn en aðeins 23%
þeirra sem horfðu á sálfræðilega
myndbandið völdu aðgerðir fyrir
sitt ímyndaða barn. Það sýnir bara
hversu mikill munur er á viðhorfi
og vali bara eftir að hafa horft á stutt
kynningarmyndband. Ef þú eign-
ast svo barn og inn kemur hópur af
læknum sem segja að eitthvað sé
að barninu þínu og þeir ætli að laga
það, þá getur maður ekki ímyndað
sér að margir foreldrar myndu segja
nei við því. Þess vegna liggur mjög
mikil ábyrgð hjá læknastéttinni að
tækla þetta á þann hátt að foreldrum
sé sagt frá öllu. Til dæmis hætt-
unni sem getur fylgt aðgerðunum,
eins ætti þeim að vera beint til sál-
fræðinga og ráðgjafa sem geta sagt
foreldrunum frá öðru sjónarhorni.“
Vilja að intersex-einstaklingar
fái stuðning
Kitty segir intersex-hreyfingar al-
mennt mæla með því að valið sé
kyn, sem barnið er þá alið upp í sam-
ræmi við. „Við búum í samfélagi þar
sem okkar upplifun af kynjum er
sú að þau eru almennt tvö. En það
á ekki að ákvarða þau með skurð-
aðgerðum. Yfirleitt er valið rétt kyn
en það er alltaf möguleiki á því að
valið sé vitlaust og þá ætti að vera
auðvelt að breyta því á pappírum.
Við viljum líka að intersex-einstak-
lingar geti mætt stuðningi, bæði frá
öðrum intersex-einstaklingum, að
þeir upplifi sig ekki eina í heimin-
um. Það er eitthvað sem við leggjum
mikla áherslu á og margir tala um að
það hafi verið vendipunktur þegar
þeir fóru að hitta aðra sem deildu á
einhvern hátt svipaðri reynslu. Við
sem erum fullorðin stígum fram og
búum þannig um hnútana í okkar
samfélagi að þetta sé ekkert tiltöku-
mál, því þetta er ekkert tiltökumál.
Þetta er ekkert sem á að hafa áhrif á
líf eins né neins en til þess að þetta
sé hinn sjálfsagðasti hlutur, þá þurf-
um við sem erum eldri að stíga fram
og gera samfélagið að stað þar sem
þetta er hinn sjálfsagðasti hlutur,“
segir Kitty að lokum. n
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is Kitty Anderson
Intersex-samtök í heim-
inum segja mikilvægt að
læknar hætti að þrýsta
á skurðaðgerðir fyrir
intersex-börn. MynD ÞorMAr
VIgnIr gunnArSSon
Hán ekki tengt intersex
Umræða hefur verið í samfélaginu um að taka ætti upp þriðja fornafnið „hán“. Það
kemur baráttu Intersex-samtakanna ekki við, segir Kitty. „„Non-binary“ fólk eða fólk
sem skilgreinir sig utan kynjatvíhyggjunnar. Þeir sem skilgreina sig non-binary falla
undir trans-regnhlífina en ekki intersex. Auðvitað getur intersex-einstaklingur líka
upplifað sig sem non-binary, en hán er ekki fornafn sem heyrir undir intersex.
Umræður eru oft á þá leið að intersex sé eitthvert þriðja kyn en eins og við upplifum
kyn þá eru þær umræður á villigötum. Intersex-einstaklingar upplifa sig margir sem
annaðhvort konur eða karla, því þeir eru það. En þeir deila einkennum sem við skil-
greinum ekki alveg sem annaðhvort eða, það kemur þeirra kyngervi ekkert við. Þetta
er bara líffræðilegur breytileiki sem hefur verið til staðar frá upphafi mannkyns.“
Intersex-fundir
Félagið fundar fyrsta þriðjudag í
hverjum mánuði klukkan 20.00, í
húsnæði Samtakanna ’78 á Suðurgötu
3. Allir sem hafa greiningu sem getur
flokkast undir intersex eða telja líklegt
að líkamar þeirrar búi á einhvern hátt
yfir intersex formgerð eða breytileika
eru hjartanlega velkomnir, sem og
foreldrar og aðrir aðstandendur.
„ Intersex er reglhlíf-
arhugtak yfir þá
einstaklinga sem búa yfir
kyneinkennum sem falla
utan þess sem við köllum
kvenkyn eða karlkyn.