Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Page 45
Helgarblað 7.–10. nóvember 2014 45
María Lilja, Kristján og Valur fóru yfir allt það sem stóð upp úr í hátíðarbyrjun Iceland Airwaves
É
g ætlaði að byrja hátíðina í ár á
því að sjá drungapönk í Gróf-
inni, en eftir að hafa hlaupið í
gegnum napurt Reykjavíkur-
myrkrið yfir í Hörpu til að ná í
miða, ákvað ég að doka við í hlýjunni
í Kaldalóni þar sem Ambátt lék. Tveir
menn stóðu á sviðinu, annar um-
kringdur tölvum og raftækjum, hinn
með gítar. Bak við þá hökti svarthvítt
myndband af bílalúgu, bílaplani
og götu. Þeir blönduðu saman um-
hverfishljóðum, rafrænum töktum
og sörfuðum gítörum og sköpuðu
þannig dáleiðandi hljóðmynd. Ég
hrökk upp þegar ambient-dáleiðslan
var rofin með kröftugum hip-hop
takti, undarleg skipting, hugsaði ég
og mundi að ég hafði lofað að hitta
vini í opnunardrykk Airwaves.
Börn sem ekki fullorðnast
DJ Flugvél og geimskip var mætt með
eldflaugina sína á Húrra. Flestir sem
þekkja tónlistina annaðhvort hata
hana eða elska. Ég er í seinna liðinu.
Ég upplifi ekki vott af tilgerð í barna-
legri ævintýraþránni og ímyndunar-
veikri leikgleðinni sem birtist bæði í
tónlistinni og framkomu Steinunnar.
Mér fannst eins og hún væri svolítið
lengi í gang en þegar Trommuþræll-
inn ómaði síðast laga var ég sann-
færður: allir bestu listamenn heims-
ins eru börn sem vilja ekki fullorðnast.
Sindri Eldon & The Ways voru
næst á svið. Uppstillingin er einföld en
effektív: trommur, bassi og gítar/söng-
ur, tónsmíðarnar eru einfaldar en gríp-
andi. Hljómsveitin klæðist áhrifavöld-
um sínum á maganum: háskóla- og
indírokk frá tíunda áratugnum og byrj-
un núlláranna. Þeir elskast með hefð-
inni: skítugir gítarar, grípandi meló-
díur, rómantískar klisjur, fyrirsjáanleg
lófadempuð breikdán og gítarsóló. Ég
verð unglingur aftur. Takk Sindri fyrir
að taka popprokk alvarlega.
Grugg og subbur
Um leið og fyrstu ljóshraða-
þungapönk-gítarriffin og öskrin
sem fylgja Muck fóru í gang varð
til illilegur mosh-pittur fyrir fram-
an sviðið. Sveittir fullorðnir karl-
menn ærðust og hlupu hver á annan
í trylltum þungarokkstransi. Strák-
urinn við hliðina á mér stökk inn í
óreiðukenndann danshringinn en
það fyrsta sem tók á móti honum var
olnbogi. Með alblóðugt andlit stökk
hann um og öskraði með grugg-
ugu hávaðarokkinu. Svo kom að því
sem gerist alltaf á Muck-tónleikum:
hljóðkerfið þoldi ekki álagið og dó.
Pink Street Boys voru næstir. Ein-
hvern veginn finnst mér subburokk
vera nafnið sem nær best yfir þá
tónlist sem kemur úr mögnurunum
þeirra. Þeir eru allir svolítið afkára-
legir og subbulegir, með fitugt hár
og passa ekki alveg í skyrturnar sínar
(nema foxmyndarlegi trommuleik-
arinn ef hann hefði ákveðið að klæð-
ast einhverju meiru en nærbuxun-
um). Þeir mummluðu alltaf eitthvað
milli laga en ég skildi aldrei orð. Áran
sem stafar af þeim er ára einlægra
ónytjunga sem hafa þrjóskast við
að gera bílskúrsrokk allt of lengi …
eða kannski bara nákvæmlega nógu
lengi til að gera það fullkomlega.
Þarna er einhver hrá orka og gleði
sem er erfitt að finna hjá sjálfsmeð-
vitaðri og alvarlegri listamönnum.
Endalokin komu með Up
Þegar ég frétti að poppsöngvarinn
Steinar væri að troða upp á Fredrik-
sen Ale House rétt eftir miðnætti fékk
ég óstjórnlega þörf til að mæta. Það
er nefnilega óvenjulegt að maður
heyri skammar- og kaldhæðnislausa
popptónlist á Airwaves sem þykist
stundum vera jaðartónlistarhátíð.
Steinar er snoppufríður 19 ára strák-
ur úr Grafarvoginum með sykursæta
rödd – andsetinn af heilögum trek-
ant John Mayer, Justin Timberlake
og Bieber. Þegar hann hafði spilað
slagarann Up lét ég mig hverfa. n
Kristján Guðjónsson
F
yrir þá sem eru langt komn-
ir með djammskammtinn
er Airwaves „off-venue“ af-
bragðsleið til að njóta tónlist-
ar. Tónleikar um eftirmiðdaginn.
Engar raðir, ekkert fyllerí, engar
nætur sem enda um morgun. En
hvar skal byrja með svo mikið í
boði?
Allir í ástarsorg
Áströlsk vinkona stingur upp á
að við förum í tónlistarrúlettu,
sem samanstendur af því að finna
hljómsveitir með áhugaverð nöfn
og komast að því hvort þær standi
undir nafni.
Þessi viðleitni skilar okkur brátt
í Lucky Records við Hlemm, en
gaman er að sjá hvað alls staðar
er vel sótt. Sumir hafa bjór í hönd,
en allt er settlegt og full athygli á
atriðunum. Hljómsveitin Dream
Wife er að stíga á svið. Þetta reyn-
ast þrjár kornungar stúlkur frá
Íslandi og Bretlandi sem hljóma
eins og nýbylgjuband frá ca. 1980
og gott ef söngkonan hljómar
ekki örlítið eins og Björk á svip-
uðum aldri. Kraftmikið er þetta
að minnsta kosti. Næst er Mov-
ing Houses frá Þýskalandi, sem
er álíka andlaus og nafnið bendir
til. „Eru allir hérna að syngja um
ástarsorg?“ spyr sú ástralska eftir
þó nokkra trúbadora sem syngja
skrækróma um hjarta sitt.
Besta hljómsveitarnafnið
Við hrökklumst yfir á Hlemmbar
til að sjá The Anatomy of Frank frá
Bandaríkjunum, en líffræði Franks
þessa hljómar forvitnilega. Þetta
reynast ungir strákar sem reyna að
fá áhorfendur til að syngja með sér
„la-la-la“. „Þetta er næstum óþægi-
lega saklaust,“ segir sú ástralska.
Ljóst er að strákar þessir eiga sína
fyrstu ástarsorg enn í vændum.
Betri er Eric Vitoff, einnig frá
Bandaríkjunum. Hann er einn
með kassagítar og hljóðgervla, en
kann að koma fram á sviði. Hann
syngur hluta prógrammsins í
magnarann inni í kassagítar sín-
um, sem gerir kannski ekki mikið
tónlistarlega en lúkkar vel.
Eftir „happy hour“ á Hlemm
bar liggur leiðin á Húrra, en nú
eru næturhrafnarnir komnir af
stað og röðin nær langt, langt
út á götu. Kominn er tími fyr-
ir gamalt fólk að halda heim á
leið. Hljómsveitarúllettan heldur
áfram daginn eftir með Electric
Elephant, Lily of the Valley (sem
sú ástralska segir að hljómi eins
og eitthvað úr dömubindaauglýs-
ingu) og DJ Flugvél og geimskip,
sem er vafalaust besta hljóm-
sveitarnafn seinni ára.
Valur Gunnarsson
M
iðvikudagskvöldið fór hægt af
stað. Ég rölti, ásamt vinkonu,
sem leið lá niður í Hörpu þar
sem ég náði í armbandið mitt
og glænýja dagskrá. Ég verð að viður-
kenna að hin kaotíska kona sem í
mér býr hafði ekki skipulagt kvöldið í
þaula, eins og ég reikna með að flest-
ir geri. Það tala að minnsta kosti all-
ir þannig. Eftir að hafa rennt yfir dag-
skrána féllust mér hendur og ég kældi
mig aðeins við barinn.
Ærandi surg
Fyrsta stopp okkar vinkvenna var í
Kaldalóni þar voru byrjaðir aldar-
félagarnir og listamennirnir Pétur
Eyvindsson og Rúnar Magnússon
í Vindva Mei. Sjálf hef ég alltaf haft
örlítið blæti fyrir tónlist Péturs
sem gengur einnig undir nafn-
inu DJ Musician og sperrti því
eyrun fyrir einhverju hljóð-
fræðilegu gúrmei stöffi. Það fór
þó ekki betur en svo að tón-
leikafélagi minn harðneitaði að
byrja kvöldið á þungriþma og
því sem hún kallaði „ærandi
surg“ við fórum því út eftir stutt
stopp.
Það var ef til vill nokkuð til í því
sem vinkona mín sagði, kannski
var tímasetningin á þeim félögum
óheppileg, allavega fyrir þau sem
ætluðu að stíga varlega til jarðar,
svona í byrjun. Við röltum því upp
þar sem okkar beið samsuða af
krúttum, fólklist og eldri kempum.
Flutningur kvöldsins
Eftir að hafa minglað aðeins á hlýjum
göngum Hörpu (í alvöru hvernig fór-
um við að án hennar) komum við inn
í Silfurbergið þar sem Mr. Silla tók á
móti okkur í myrkri og blámóðu. Tón-
leikarnir byrjuðu rólega með trega-
fullum rafballöðum. Silla stóð ein á
risavöxnu sviðinu í fyrstu en fyllti upp
í tómarúmið með ótrúlegu raddsviði
sínu. Eftir rólegt upphaf fékk hún svo
til liðs við sig ónefndan gítarleikara og
við það varð performansinn léttari og
poppaðri. Krafturinn og útgeislun-
in einkenndu Sillu alla tónleikana og
það er hreint ótrúlegt að sjá hvernig
hún hefur vaxið og dafnað sem tón-
listarkona frá því hún kom fyrst fram
á Airwaves 2005. Bravó!
Óbreytt ástand Leaves
Þegar þarna var komið sögu tók
heldur en ekki að þyngjast umferðin
um Hörpu. Brátt náðu raðir í gegn-
um allt húsið en ekki var ljóst hvort
það var Ásgeir, Sing Fang eða Leaves
sem trekktu harðar að. Inni í Silfur-
bergi hóf Kippi kanínus upp rafraust
sína með alveg hreint ágætu sjóvi. Þá
vöktu geómetrísk myndbönd sem
spiluðu í bakgrunninn ekki síður
athygli fagurkera á svæðinu og skilst
mér að ónefndur hópur listnema
hafi nær fengið standpínu yfir feg-
urðinni, en það er ekki staðfest.
Á leið út heyrði ég kunnuglegt
stef Leaves-liða sem mér virðast
ennþá spila sama settið síðan 2000.
En ég meina af hverju að breyta ein-
hverju sem virkar ágætlega.
María Lilja Þrastardóttir
Fjölbreytt upphaf
Róleg byrjun
Airwaves fyrir miðaldra
Mr. Silla
Mynd dAVíð þÓr
Sindri Eldon
Mynd dAVíð þÓr
Ítarlegri dóma má
finna á dv.is/musik