Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Qupperneq 46
Helgarblað 7.–10. nóvember 201446 Menning Úr vegabréfi Sigmundar Ernis Drengirnir í Dupont-hverfi Í afgreiðslunni á litla hótelinu okkar við Dupont-torgið í Wash- ington hafði okkur verið bent á áhugaverða matreiðslustaði í grenndinni; flesta þeirra væri að finna í hliðargötum þess mikla breiðstrætis sem kennt er við Massachusetts – og einmitt þangað lá leiðin þetta værðar- lega sumarkvöld á vinstribakka Potomac-árinnar. Báðir vorum við næsta glorsoltnir eftir langan dag við heimildamyndagerð um viðskipti Íslendinga í vest- urvegi – og það var ekki laust við að okkur fyndist við hafa unnið okkur inn fyrir girnilegri steik með kartöflu og smjöri. Og þarna gengum við, tveir íslensk- ir strákar á öndverðum fertugs- aldri, inn á þennan líka forláta veitingastað í höfuðborg hins stælta ríkis Ameríkana þar sem fagurskapaður karlmaður með skjannahvítar strípur í hárinu vísaði okkur til sætis úti á fallega skreyttum tjaldpalli í gróðursæl- um bakgarði. Allur var staður- inn svo vel til hafður að báðum fannst okkur illa straujaðar sum- arskyrturnar sem við klæddumst þetta kvöldið stinga svolítið í stúf við stemninguna allt í kring. Og förunautur minn hafði reyndar á orði að við hefðum betur mætt í síðbuxum og almennilega burst- uðum skóm því allir gestirnir á næstu borðum væru eins og klipptir út úr tískublöðum, svo nýmóðins sem þeir væru í öllum fatnaði sínum og fótabúnaði. Og þarna rann reyndar upp fyrir okkur báðum, fréttamann- inum mér og myndatökumann- inum á móti mér, að enginn ein- asti gestur á svæðinu í kringum okkur var af öndverðu kyni við okkur strákana á staðnum. Við horfðum nokkuð staðfastlega hvor á annan þegar við áttuðum okkur á því að við höfðum valið þessum kvöldverði okkar stað á einum rómaðasta og hugguleg- asta hommastaðnum sem fyrir- finnst í hjarta hinsegin hverfisins í Washingtonborg. Þjónninn okkar var raunar slík staðfesting á því að við vær- um staddir á hreinræktuðum karlmannsstað að það hálfa hefði verið nóg. Hann minnti mig á dásamlega fallega skóla- systur mína úr Gagnfræðaskóla Akureyrar í öllu sínu göngulagi sem fór að langmestu leyti fram í mjöðmunum og straukst svo að segja meðfram öllum borðunum í munaðarlegum hnykkjum sín- um á leiðinni yfir til okkar. Skemmst er frá því að segja að sjaldan ef nokkurn tíma höfð- um við félagarnir ofan af Íslandi smakkað á litríkari, bragðbetri og jafn fallega framreiddum mat og þarna á strákastaðnum í Dupont-hverfinu í Washington. Og enda þótt kostnaðurinn tæki af okkur arm og fótlegg fannst okkur ekki annað hæfa en að þiggja eftirréttinn inni við arin- stæðið í myntugræna kristals- herberginu. Þarna sátum við nokkra stund eftir matinn, hvor í sín- um lekkera leðurstólnum og supum á eðalsætum Dubonnet í boði hússins, allt þar til okkar meðfædda, litlausa og lúðalega gagnkynhneigð rak okkur báða af stað. Því allt á sér stund og stað, jafnvel tilfinningu líka – og í þessu tilviki var eins og það væri horft á okkur úr öllum hornum og skotum staðarins með næsta augljósan misskilning í huga. J ón Borgar, yfirlæknir á tauga- deild Landakotsspítala, situr sveittur við að undir- búa Hippókratesarfyrirlestur- inn, hinn allra mikilvæg- asta fyrirlestur sem oft hefur reynst lyftistöng til æðstu metorða innan sjúkrahússins. Páll Óskar, yfirlæknir sjúkrahússins, hefur gert Jóni Borg- ari það fullljóst að hann hafi enga velþóknun á honum í hið vanda- sama verk og að afleiðingarnar verði slæmar ef hann standi sig ekki vel. Og loksins þegar útlit er fyrir að Jón Borgar nái að klára að búa sig und- ir fyrirlesturinn, með aðeins hálftíma til stefnu, ryðst kona úr fortíðinni inn til hans með tíðindi sem setja allt úr skorðum. Það sem gerist á eftir er farsi eins og þeir verða bestir. Rýnir viðurkennir það fúslega að hann sé ekki alveg í markhópn- um fyrir farsa. Hann hefur séð þá fleiri slæma en góða og gáskafullt auglýsingaspjaldið vakti væntingar í minna lagi, væntingar um að ef til vill yrði verkið meira við hæfi mestu aðdáenda Spaugstofunnar og hljóm- platna Halla og Ladda (að sjálf- sögðu að þeim ólöstuðum) fremur en kýnískra súrmúla sem sjálfs mín. Reyndin varð önnur. Ég hef ekki séð fyndnara leikrit held ég síðan Sjeik- spír eins og hann leggur sig á 97 mín- útum var sýnt í Iðnó árið 2000, og nú vill reyndar svo til að Halldór Gylfa- son og Halldóra Geirharðsdóttir léku bæði í þeirri sýningu, en Halldór fer með hlutverk Páls Óskars í þessari sýningu og Halldóra leikstýrir. Eins og gjarnan í försum er geng- ið langt í kjánalegum bröndurum og áhorfandi veit um leið og hann heyrir nöfnin Páll Óskar, Jón Borgar og Grettir Sig að grínið verður mis- kunnarlaust. Eins fyrirsjáanlegir og allir þeir brandarar í boði þýðand- ans Gísla Rúnars Jónssonar eru þá er þeim dreift nægilega jafnt um verkið til að þeir fari aldrei (alveg) yfir strik- ið. Bestu brandararnir felast aftur á móti ekki í hinu ritaða orði heldur í viðbrögðum leikaranna hvers við öðrum; ef reaksjónin hittir ekki tím- anlega þá fellur brandarinn kylli- flatur. Þetta gerist aldrei í verkinu. Leikarahópurinn er afar vel sam- stilltur og hraði verksins og gæði eft- ir því. Mig langar að nefna alla leikarana en það er ekki hægt hér. Rýni leið lík- amlega illa (á góðan hátt) að fylgjast með Hilmi Snæ í hlutverki hins ör- vilnaða Jóns Borgars og Sigurður Þór Óskarsson var ógnvekjandi í hlut- verki hins leitandi Frímanns; samspil þeirra tveggja var þrungið spennu og á köflum erfitt að fylgjast með (aftur, á góðan hátt). Nú held ég að helst sé við höfund að sakast, en mér fund- ust leikkonurnar ekki fá nóg að gera í sýningunni. Díana Thors (Maríanna Clara Lúthersdóttir), Súsanna (Jó- hanna Vigdís Arnardóttir), Jórunn (Þórunn Arna Kristjánsdóttir) og Gróa (Sigrún Edda Björnsdóttir) voru allar frábærar persónur og mjög vel túlkaðar, en tilfinning rýnis var sú að Beint í æð væri meira karladrama sem snerist um að halda konunum utan við karlaplottið, og það endur- speglaðist sömuleðis í kynbundnu sviðsrými sýningarinnar. Á meðan Gróa var drepfyndin en lítil viðbót við söguna var allt of lítið gert úr hlutverki Díönu sérstaklega og sam- spili þeirra Súsönnu. Tilfinningin var sem sagt sú að karlarnir þyrftu að standa saman svo konurnar þyrftu ekki að vita hverslags endemis skít- hælar þeir (eða reyndar helst einn þeirra) væru. Þetta er auðvitað hluti af húmor sýningarinnar en undir- strikar samt sem áður að höfund- ur verksins er ekki beint nýmóð- ins, kannski meira út í Lemmon- og Matthauhúmorinn – karlar um karla, konur til hliðar. Samband Jóns Borg- ars og konu hans Súsönnu reynist hið undarlegasta þegar upp er staðið og mig grunar að þetta muni fara illa ofan í marga áhorfendur. Rýnir vill ljúka þessum dómi á þrem atriðum sem standa algjörlega upp úr: 1) Leikmynd Helgu I. Stefáns- dóttur er æðisleg og sannfærandi. 2) Það er ekki annað hægt en að kenna í brjósti um og láta sér þykja vænt um Örn Árnason í hlutverki hins elliæra Manfreðs. 3) Þótt allir leikarar standi sig frábærlega og samspil þeirra sé almennt til fyrirmyndar stóð einn leikari upp úr að rýni fannst og það var sakir þess hvernig honum tekst að þróa persónuna – hratt en örugg- lega og á sannfærandi hátt – og það var Gói í hlutverki Grettis Sig. Ef ein- hverjir brandarar fóru yfir strikið þá voru það Tourettespörkin hans, en rýnir var engu síður impóneraður. Þeir Gói og Hilmir Snær léku af- bragðsvel hvor af öðrum, en loka- niðurstaðan er að það var synd að kvenpersónur fengu ekki sama rými til þátttöku og þróunar. Það er á köfl- um eins og manni eigi að finnast að mikið væri nú lífið einfaldara ef ekki væri fyrir þessar kellingar – mað- ur eigi nú að fá að troða typpinu þar sem manni sýnist án afleiðinga (alt- ént fyrir mann sjálfan). Framinn er karlanna en konurnar viðföng. Ef það angrar leikhússunnendur ekki of mikið þá er hér verk sem er til þess fallið að fá mann – eða konu – til að hlæja í sig harðsperrur til að endast út helgina. n Karlaframi og kvenviðföng Beint í æð Höfundur og leikstjórn: Ray Cooney Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Guðjón Davíð Karlsson, Halldór Gylfason, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Sigrún Edda, Björnsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Sigurður Þór Óskarsson og Örn Árnason Arngrímur Vídalín ritstjorn@dv.is Dómur Harðsperr ur af hlátri Gagnrýnandi segist ekki hafa séð fyndnara leikrit síðan Sjeikspír eins og hann leggur sig á 97 mínútum var sýnt í Iðnó árið 2000. Mynd GríMur BjArnAson „Ég hef ekki séð fyndnara leikrit held ég síðan Sjeikspír eins og hann leggur sig á 97 mínútum. jón Borgar og súsanna Rýnir segir það synd að kvenpersónurnar í Beint í æð hafi ekki fengið sama rými til þátttöku og þróunar og karlpersónurnar. Mynd GríMur BjArnAson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.