Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Side 52
Helgarblað 7.–10. nóvember 201452 Fólk n Stela úr verslunum þrátt fyrir að vera ríkar Stal hárkollu og kveikjara Það hefur ekki farið mikið fyrir söngkonunni Britney Spears upp á síðkastið, en það eru þó ekki mörg ár síðan ansi mikið fór fyrir henni. Árið 2007 fékk hún hálfgert taugaáfall og gerði ýmislegt skrýtið sem fjöl- miðlar sögðu frá. Hún var til að mynda staðin að verki við að stela hárkollu og kveikjara. Glímir við stelsýki Söngkonan Beth Ditto hefur viðurkennt opinberlega að hún eigi við vandamál að stríða þegar kemur að því að versla. Hún á nefnilega erfitt með að gera það löglega og greiða fyrir vörurn-ar. Í hennar tilfelli er þó um einhvers konar fíkn að ræða en ekki fjárskort. Stjörnur Staðnar að verki Stal vegna fátæktar Sönkonan Kesha var einu sinni gripin glóðvolg við að stela mat úr verslun, en það var víst áður en hún sló í gegn í bransanum og glímdi við fátækt. Nú hefur hún væntanlega efni á kaupa sér mat. Hefur tekið sig á Sjónvarpsstjarnan Kristin Cavallari, sem er einna þekktust fyrir hlutverk sín í The Hills og The Real Orange County, er í þessum vafasama hópi. Hún var staðin að búðarhnupli árið 2006 en hefur síðan þá tekið sig á og er orðin tveggja barna ábyrg móðir. tvisvar staðin að verki Búðarþjófnaður er ekki bara vandmál hjá ungum stjörnum í seinni tíð heldur virð- ist þetta vandamál hafa hrjáð ýmsa stjörnuna í gegnum árin. Farrah Fawcett var ein þeirra fingralöngu en hún var tvisvar staðin að því að stela fötum úr verslun á áttunda áratugnum. Ákærð fyrir þjófnað Shelley Morrison, sem er einna þekktust fyrir leik sinn í gamanþátt- unum Will & Grace, var staðin að því að stela skartripum árið 2003 og var ákærð fyrir vikið. tók þjófavarnir af Það muna líklega flestir eftir því þegar leikkonan Winona Ryder var handtekin fyrir búðarþjófnað árið 2001. Starfsmaður verslunar Saks Fifth Avenue í Beverly Hills stóð hana að verki þar sem hún setti fatnað og skartgripi að andvirði um hálfrar milljónar króna ofan í poka með vörum sem hún var búin að greiða fyrir. Ryder hafði reynt að fjarlægja þjófavarnir af vörunum sjálf. Stal snyrti- vörum Leikkonan glæsilega Megan Fox stal víst snyrti- vörum úr Wal Mart þegar hún var barn. Hún virðist sem betur fer hafa látið af þeirri iðju þegar hún fullorðnaðist. vandræðagemsi Leikkonan Lindsey Lohan og Amanda Bynes eiga margt sameiginlegt. Báðar voru þær barnastjörnur og hafa átt í erfiðleikum með að höndla frægðina. Þær hafa báðar átt erfitt uppdráttar síðustu árin, bæði vegna fíkniefnanotkunar og geðrænna vandamála. Þá eiga þær það einnig sameiginlegt að hafa verið staðnar að verki við búðarþjófnað. Lohan náðist á myndband þar sem hún yfirgaf verslun með hálsmen að andvirði 260 þúsunda króna, án þess að greiða fyrir það. F yrir nokkrum vikum var lekið mynbandsupptöku úr öryggismyndavél sem sýndi leikkonuna Amöndu Bynes stela úr verslun og að sjálfsögðu gerðu fjölmiðlar sér góðan mat úr því. Því fer þó fjarri að hún sé eina stjarnan sem hef- ur stundað þessa iðju – og verið staðin að verki. Hér eru dæmi um nokkrar fingralangar stjörnur sem ættu líklega ekki að leggja búðar- þjófnað fyrir sig. n Fingralöng Sjónvarpsstjarnarn Stephanie Pratt, sem er einna þekktust fyrir að hafa komið fram í raunveruleikaþáttunum The Hills, er í hópi þessara föngulegu búðarhnuplandi stjarna. Send í betrunarvist Tónlistarkonan og ólátabelgurinn Courtney Love var send í betrunarvist eftir að hafa verið staðin að þjófnaði þegar hún var barn. Ekki er þó hægt að segja að betrunarvistin á þeim tíma hafi leitt hana inn á betri braut.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.