Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Qupperneq 10
Áslaug Jónsdóttir sjúkraþjálfari
8
NÁMSFERÐ TIL BÚDAPEST
HAUSTIÐ 1992
í október 1992 fór ég til Ungverja-
lands á fjögurra vikna námskeið í
leiðandi þjálfun. Námskeiðið fór fram
á Petö stofnuninni í Búdapest og
þetta voru bæði fyrirlestrar og við
fylgdumst líka með þegar unnið var á
stofnuninni. Fyrirlestrarnir fóru fram
á ungversku og voru þýddir jafnóðum
yfir á ensku. Þar var m.a. fjallað um
þessa aðferð, hugmyndir sem liggja að
baki henni, rætt um markmið og
leiðir, stofnunina og starfsemin þar
var kynnt svo eitthvað sé nefnt.
Það var mjög ánægjulegt að fá tæki-
færi til að heimsækja Petö stofnunina.
Innan hennar fer fram kennsla/þjálfun
hreyfihamlaðra barna. Flest eru þau
spastísk en einnig eru hópar barna
með atethoid og ataxíu einkenni og
börn með klofinn hrygg. Reyndar eru
nokkrir hópar fyrir fúllorðna en börn
eru í miklum meirihluta. Andrúmsloft-
ið þarna inni er mjög jákvætt og
hlýlegt og greinilegt að börnunum
líður vel þarna. Leikir og söngur eru
mikið notuð við kennsluna. Stjórnend-
ur fá ágætis tíma til að undirbúa
tímana og þarna var mikið um
skemmtilega leiki og verkefni. Áber-
andi er líka hversu jákvæð börnin eru
og áköf í að gera það sem lagt er fyrir
þau. Auðvitað sjást mótmæli en það
er ekki oft.
Þessi stofnun er mjög stór og margs
konar starfsemi fer þarna fram. Þarna
er t.d. skóli fyrir þá sem læra að
verða stjórnendur. Námið er fjögur ár,
bæði bóklegt og verklegt. Lögð er
áhersla á að nemendur fái víðtæka
þekkingu á hreyfihömluðum börnum
og að þeir geti sinnt öllum þörfum
barnanna, t.d. hreyfiþjálfun og skóla-
námi. Verklega námið er á stofnun-
inni og þar eru nemendur m.a. þjálf-
aðir í að búa til prógröm og að
stjórna þeim.
Við stofnunina starfar einnig erlend
deild. Það hefur aukist mikið að út-
lensk börn komi þangað og nefnt var
að á síðustu þrem árum komu um
2000 börn. Erlendu börnin eru ýmist
í sérhópum eða fara inn í hópa með
ungverskum börnum. Þarna eru t.d.
enskumælandi þýskumælandi og rúss-
neskumælandi hópar. Þau sem fara
inn í ungverska hópa fá túlk með sér
ef hægt er. Þarna voru börn alls stað-
ar að úr heiminum m.a. frá Ástralíu,
ísrael, Brasilíu, Nýja Sjálandi, Svíþjóð,
Noregi og Islandi. Undanfarin sumur
hafa stjórnendur frá Petö stofnuninni
tekið þátt í sumarbúðum fyrir hreyfi-
hömluð börn þar sem börnin eru í
leiðandi þjálfun. Þetta hefur t.d. verið
á Englandi, Irlandi og nú Austurríki.
Þar hafa starfað saman ungverskir
stjórnendur og fólk frá viðkomandi