Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Blaðsíða 15
Janus Guðlaugsson
13
ÍÞRÓTTASKÓLI FYRIR BÖRN
„ Skynhreyfí skóli“
Hvað er íþróttaskóli bamanna?
Iþróttaskóli barnanna er staður þar
sem börnum er gefínn kostur á fjöl-
breyttu hreyfinámi við hæfi hvers og
eins. Reynt er að gera umhverfið eins
aðlaðandi og kostur er og skapa já-
kvæðan og hlýlegan vinnuanda.
Markmið skólans
Aðalmarkmið skólans er að undirbúa
börnin undir að standa á eigin fótum
í skóla lífsins og skapa hjá þeim áhuga
á hreyfíngu sem varir ævilangt. Önnur
markmið sem skólinn hefur sett sér
eru að koma til móts við óskir og
þarfír hvers og eins, að barninu líði
vel og að það fái verkefni við hæfí.
Hreyfínámið skipar veglegan sess í
námi barnsins og reynum við í íþrótta-
skólanum að tengja hreyfínguna við
hina ýmsu þroskaþætti barnsins eins
og líkams- og hreyfiþroskann, mál- og
vitsmunaþroskann,tilfinningaþroskann
og félags- og siðgæðisþroskann.
Reynslan hefur kennt okkur sem að
þessari uppbyggingu starfa að það er
oft erfitt að ná til eins hæfileika
barnsins sérstaklega, heldur þurfi að
vinna með einn hæfileika í gegnum
annan. Hinir ýmsu hreyfileikir hafa
hjálpað mikið til við að ná markmið-
unum og í raun væri réttast að nefna
skólann skynhreyfiskóla þar sem
hreyfileikir eru þungamiðja námsins
(sjá mynd um hreyfingu og leiki =
Hreyfileiki, úr bókinni "Bewegungs-
spiele fúr Kinder" P. Ehrlich, K. Hei-
mann 1982). Svissneski sálfræðingur-
inn Heinrich Pestalozzi kemst vel að
orði þegar hann segir:
"Frá náttúrunnar hendi er barn ein
óaðskiljanleg heild með margslungn-
um hæfíleikum hjartans, andans og
líkamans. Náttúran vill að enginn
þessara hæfíleika verði eftir á þroska-
brautinni. Þroski eins hæfíleika er
ekki einungis óaðskiljanlega tengdur
þroska annars hæfíleika, heldur
þroskast einn hæfileiki með öðrum
og í gegnum annan."