Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Page 16
14
Skynstöðvar - skynbrautir
Þá þætti í hreyfináminu sem við leggj-
um til grundvallar og vinnum með eru
skynbrautirnar (skynstöðvarnar):
- jafnvægisskyn
- snertiskyn
- vöðva- og liðamótaskyn (stöðuskyn)
- sjónskyn
- heyrnarskyn og
- samspil skynfæra (samhæfing)
Auk þess að ganga út frá skynstöðvun
líkamans við skipulagningu námsins er
leitast við að styrkja gróf- og fínhreyf-
ingar barnsins með tilliti til þroska-
þrepa sbr. skýringarmynd um ferli
hreyfinámsins, (R. Winter 1977), en
það er mikilvægt að átta sig á þeim
þroskaþrepum sem börnin eru að fara
í gegnum á þessum árum. íþróttaskól-
inn hefur verið sniðinn fyrir börn á
aldrinum þriggja til sex ára, en börn
utan þessara aldursmarka eru að sjálf-
sögðu velkomin. Að undanförnu höf-
um við reynt að þróa starfsemina inn
á þá braut að gera vinnubrögðin enn
markvissari og slíkt verður best gert
með greiningu á stöðu hvers barns
fyrir sig. Á liðnum vetri reyndum við
að nýta okkur hreyfiþroskapróf ("Kör-
perkoordinations-test fiir Kinder,
KTK") til að átta okkur á stöðu barn-
anna. Við fengum stúlku sem var að
ljúka námi við íþróttaháskólann í
Köln þar sem sérgrein hennar og
lokaverkefni var rannsókn tengd
hreyfiþroska og hreyfinámi barna.
Prófið gekk vel fyrir sig og komumst
við að vissum niðurstöðum sem okkur
hafði verið farið að gruna um (sjá
síðar, rannsóknir og þróun skólans).
Með þannig vinnubrögðum og aukinni
samvinnu við t.a.m. iðjuþjálfa og
greiningastöðina næðuin við e.t.v. enn
lengra í að þjónusta börnin og for-
eldra þeirra. Sérstaklega á þetta við
um þau börn sem þurfa á sérhæfðu
námi að halda. Ekki má þó gleyma
félagslega þættinum og samspili
þroskaþáttanna sem við minntumst á
hér á undan. Við leggjum einnig ríka
áherslu á að foreldrarnir taki virkan
þátt í reynslu barnsins og leikjum og
að allir geti tekið þátt í vinnu okkar í
sátt og samlyndi. Þessa þætti erum við
markvisst að reyna að styrkja auk þess
sem við bendum foreldrum á ýmislegt
sem þeir geta sjálfir gert heima fyrir.
Samvinna fagfólks
Til þess að markmið skólans náist er
nauðsynlegt að hafa fagfólk sem kann
til verka. Hér er yfirleitt um íþrótta-
kennara að ræða en einnig hafa fóstr-
ur (leikskólakennarar) verið fúsar til
samstarfs. Við höfum sett okkur það
sem markmið að hafa einn leiðbein-
anda á sex til átta börn. Viðkomandi
leiðbeinandi fylgir síðan hópnum eftir
í gegnum hvern tíma og yfir ákveðið
tímabil. íþróttakennarar hafa nú á
síðustu einum til tveimur árum tekið
verulega til hendinni og sýnt ungvið-
inu mikinn áhuga með stofnun
íþróttaskóla og sundskóla. Einnig hafa
fóstrur og sjúkraþjálfarar sýnt íþrótta-
skólanum mikinn áhuga og ekki látið
sig vanta á kynningarfundi eða á
námskeið þar sem hreyfing barna á í
hlut. Iðjuþjálfar er sú fagstétt sem
mikið hefur til málanna að leggja í
tengslum við hreyfinám barna. Það er
því von mín að fá þá til aukinnar
samvinnu varðandi uppbyggingu og
mótun "skynhreyfiskóla barnanna".