Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Síða 29
27
Útgangspunktur iðjuþjálfunar en
Sjúkdómur/sjúkdómshætta:
- orsök
- einkenni
- athafnavandamál
- íhlutun iðjuþjálfa
í þessu sambandi tölum við um "pati-
entens nærmeste udviklingszone", eða
NUZO. Þetta er skilgreint sem: "Það
bil sem er á milli núverandi getu
einstaklingsins til að framkvæma e-ð,
og þess sviðs sem felur í sér mögulega
þróun hjá honum, undir leiðsögn eða
í samvinnu við aðra". (Tilraunaþýðing
undirritaðrar).
"Lærdómur og þróun getur því aðeins
átt sér stað í NUZO"
Iðjuþjálfun snýst því um að finna
NUZO sjúklingsins/skjólstæðingsins!
Það sem á eftir að mikla þýðingu fyrir
okkar fræðigrein er "klínisk resoner-
ing" (samræming) og sú "þögla" vitn-
eskja sem fagið býr yfir.
Einnig verðum við að hafa í huga það
sem liggur til grundvallar og er undir-
staða iðjuþjálfunar:
- Einstaklingurinn þroskast og lærir
við vinnu (iðju) og athafnir.
- Færni eykst og þróast við vinnu og
leik.
- Almennum félagslegum, andlegum
og líkamlegum þörfum er fullnægt
við vinnu, framleiðni og skapandi
athafnir.
SKILGREINING STARFSSVIÐS
AJcveðið vandamál, á vinnustað eða í
vinnu getur verið útgangspunktur fyrir
gæðaþróun. Þá er mikilvægt að spyrja
sig: í hverju felst starf mitt?
I þessu sambandi er hugað að starfs-
fysingu (stillingsbeskrivelse), vinnu-
lýsingu (funktionsbeskrivelse) og verk-
lýsingu (jobbeskrivelse).
Starfslýsing:
Yfirskipuð (overordnet) lýsing á
stöðugildi, t.d.:
- almennir launa- og ráðningarskil-
málar
- ráðningarstaður
- ábyrgð og ákvarðanavald
- skyldur varðandi samvinnu o.þ.h.
Vinnulýsing.
Almenn lýsing á innihaldi vinnunnar
t.d.:
- fagleg sérhæfing
- raunveruleg tegund starfs, hér er átt
við staðsetningu m.t.t. ábyrgðar á
starfshlutfalli og ákvarðanavaldi t.d.
ábyrgð gagnvart stjórn.
Verklýsing:
Lýsing á vinnuframlagi iðjuþjálfans,
hvaða hlutar af vinnulýsingunni eru
uppfylltir, þ.e.a.s. að hvaða marki og
hvernig.
HVERS VEGNA GÆÐAÞRÓUN?
Hvers vegna er nauðsynlegt að stuðla
að gæðaþróun í iðjuþjálfun og heil-
brigðiskerfinu almennt? Lítum á tvær
tegundir svars við þessu:
Svar í vörn:
- heilbrigði okkar er í hættu
- félags- og heilbrigðiskerfið er í
hættu
- fag okkar er í hættu
Svar í sókn:
- fagleg þróun
- kerfisbundin reynslusöfnun
- handleiðsla samstarfsfélaga