Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Page 46

Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Page 46
Rögnvaldur Símonarson iðjuþjálfi 44 I STARF MITT HJÁ SVÆÐISSKRIFSTOFU MÁLEFNA FATLAÐRA Á NORÐURLANDI EYSTRA Til þess að lýsa starfi mínu hjá Svæð- isskrifstofu fatlaðra tel ég nauðsynlegt að gera fyrst grein fyrir lögum um málefni fatlaðra og framkvæmd þeirra. LÖG UM MÁLEFNI FATLAÐRA Ný lög Ný lög um málefni fatlaðra tóku gildi 1. september 1992 og leysa af hólmi eldri lög um málefni fatlaðra frá 1983. í nýju lögunum er kveðið skýrar á um rétt fatlaðra til þjónustu samkvæmt almennum lögum svo og allri al- mennri þjónustu á vegum ríkis og sveitarfélaga. Einnig er kveðið skýrar á um með hvaða hætti verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga er háttað og hvernig sveitarfélögin svæðis- og samningsbundið geta yfirtekið þjón- ustu við fatlaða frá ríkinu. Markmið og skilgreining I fyrstu grein laganna stendur orðrétt: Markmið þessara laga er að tryggja fötl- uðum jafnrétti og sambærileg lífskjör viö aðra þjóðfélagsþegna og skapa þeim skilyrði til að lifa eðlilegu lífi. I annarri grein stendur: Sá á rétt á þjónustu samkvæmt lögum þessum sem er andlega eða líkamlega fatlaður og þarfnast sérstakrar þjónustu og stuönings af þeim sökum. Hér er átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfi- hörnlun, sjón- og heyrnarskerðingu. Enn fremur getur fötlun verið afleið- ing langvarandi veikindum, svo og slysum. Stjórnun og skipulag Félagsmálaráðherra fer með yfirstjórn málefna fatlaðra og félagsmálaráðu- neyti annast stefnumótun, gerð heild- aráætlana og eftirlit með framkvæmd laganna. Stjórnarnefnd skal vera félagsmála- ráðuneyti til ráðgjafar um málefni fatlaðra. Nefndin er skipuð af ráð- herra til Fjögurra ára. I nefndinni eiga sæti fimm menn. Öryrkjabanda- lag íslands, Landssamtökin Þroska- hjálp og Samband íslenskra sveitar- félaga tilnefna einn fulltrúa hver. Ráðherra skipar tvo fulltrúa án til- nefningar, þar af annan formann. Stjórnarnefnd annast stjórn Fram- kvæmdasjóð fatlaðra sem ætlað er að standa undir stofnkostnaði við fram- kvæmdir vegna þjónustu við fatlaða. Landinu er skipt í 8 starfssvæði, sem eru þau sömu og kjördæmin og fræðsluumdæmin. Á hverju starfssvæði starfa svæðisráð í málefnum fatlaðra.

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.