Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Page 47

Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Page 47
45 í svæðisráði sitja sjö fulltrúar skipaðir af ráðherra til fjögurra ára í senn. Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið tilnefna sinn full- trúann hvor og svæðisbundin samtök sveitarfélaga þrjá. Jafnframt eiga fræðslustjóri og héraðslæknir sæti í svæðisráði. Samkvæmt gömlu lögunum voru Svæðisstjóramir bæði rekstrar og eftirlitsaðilar stofnana á starfssvæðinu, það þótti ekki nógu heppilegt. Þannig að nú sjá Svæðisráð um eftirlit og Svæðisskrifstofur um rekstur ríkis- stofnana á starfsvæðinu. Verkefni svæðisráða em sem hér segin 1. Að gera tillögur til félagsmálaráðu- neytis og svæðisskrifstofu um þjón- ustu og stuðla að samræmingu hennar á svæðinu. 2. Að hafa eftirlit með að þjónusta, starfsemi og rekstur stofnana sam- kvæmt lögunum séu í samræmingu við markmið laganna. 3. Að veita félagsmálaráðuneyti um- sögn um svæðisáætlanir, um upp- byggingu þjónustu fyrir fatlaða og nýja eða breytta starfsemi. 4. Að annast réttindargæslu fatlaðra. þar á meðal að fatlaðir fái þá þjón- ustu sem þeir eiga rétt á. 5. Að hafa frumkvæði að aukinni ábyrgð sveitarfélaga í málefnum fatlaðra. Framkvæmd þjónustunnar A hverju starfssvæði er starfrækt Svæðisskrifstofa í málefnum fatlaðra sem hafa með höndum eftirfarandi viðfangsefni: 1. Að annast rekstur fyrir fatlaða á vegum ríkisins s.s.: dagvistarstofn- anir fyrir fötluð börn, skammtíma- vistun, leikfangasöfn, meðferðar- heimili, sumarbúðir, dagvistar- stofnanir fatlaðra, verndaða vinnustaði, skóladagheimili o.fl. 2. Að bera ábyrgð á framkvæmdum í málefnum fatlaðra sem veitt er fé til úr Framkvæmdasjóði fatl- aðra, og ekki eru á vegum sveitar- félaga eða sjálfseignastofnana. 3. Að safna upplýsingum um þörf fyrir þjónustu vegna fatlaðra sam- kvæmt lögum um málefni fatl- aðra. 4. Að annast gerð svæðisáætlunar til þriggja ára um uppbyggingu þjón- ustu við fatlaða. 5. Að veita svæðisráðum aðstoð og þjónustu til þess að þau geti sem best sinnt hlutverki sínu. 6. Að hafa umsjón með vistun fatl- aðra á sambýli og ýmsar stofnanir t.d. vistheimili og meðferða- heimili. 7. Að annast ráðgjöf við stofnanir fyrir fatlaða. 8. Að hafa eftirlit með nýfæddum börnum og gera frumathuganir þegar grunur vaknar um fötlun af einhverju tagi. 9. Að aðstoða við atvinnuleit fyrir fatlaða og vinna að því að hæfing og endurhæfing tengist sem best atvinnu. 10. Að eiga samstarf við sveitarfélög vegna félagsþjónustu og ferlimála fatlaðra. 11. Að annast mat á umönnunarþörf fatlaðra barna samkvæmt lögum um almannatryggingar og taka við umsóknum þar að lútandi.

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.