Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Side 50
Björk Pálsdóttir iðjuþjálfi
hjálpartækjamiðstöð TR
48
BREYTINGAR Á HJÁLPARTÆKJAREGLUM
TRYGGIN GASTOFNUN AR
Reglur Tryggingastofnunar um hjálp-
artæki hafa tekið töluverðum breyt-
ingum frá ársbyrjun 1992. Eg ætla að
kynna þessar breytingar í megindrátt-
um, ástæður þeirra og hvaða árangur
hefur orðið á þessum breytingum.
Skv. 39. grein laga um almannatrygg-
ingar þá setur tryggingaráð reglur um
hjálpartæki. Almennu reglurnar eru
þær að veitt eru hjálpartæki til þeirra
er búa í heimahúsi. Skilyrði fyrir
hjálpartækjum eru minnkuð færni,
sjúkdómar og/eða aldur. Aðallega er
um að ræða hjálpartæki til sjálfsbjarg-
ar, öryggis, þjálfunar og meðferðar.
BREYTINGAR ÁRSBYRJUN 1992
Fjárveiting til hjálpartækja var dregin
saman um 100 millj. kr. eða um 20%
milli ára 1991 og 1992. Kostnaður
Tryggingastofnunar ríkisins vegna
hjálaprtækja 1991 var rúmlega 500
millj.kr., þannig að fjárveiting fyrir
1992 var 400 millj.kr.
Til að ná þessum samdrætti var regl-
um um hjálpartæki breytt. Við þær
breytingar var haft í huga að skera
ekki niður þar sem um frumþarfir
væri að ræða. Breytingarnar fólust í
eftirfarandi:
- Almennt meira aðhald/strangari
reglur, t.d. takmarkanir við fjölda á
ákveðnu tímabili (t.d. ein hulsa fyrir
gervilim á ári, eitt gervibrjóst á ári).
- % hlutfall TR lækkað í tækjum, t.d.
mörg baðhjálpartæki, vinnu- og
hvíldarstólar í 60%, sem áður var
70/100%', smá hjálpartæki t.d. við
matargerð úr 70% í 50%-.
- Fast hámarksverð á tækjum auk
ákveðins %-hlutfalls (viðmiðunar-
verð fundið).
- Greinarmunur gerður milli lífeyris-
þega og annarra, þannig að aðrir en
lífeyrisþegar þurfa að taka meiri þátt
í greiðslum á sumum hjálpartækjum
t.d. sykursýkisbúnaði og stomavör-
um.
- Hætt að styrkja sum hjálpartæki,
t.d. teygjusokka, baðmottur.
Arangurinn eftir árið var samdráttur
um rúmlega 50 millj.kr. Auk sparn-
aðar vegna áðurgreindra aðgerða,
jókst endurnýting hjálpartækja á árinu
1992.
BREYTING 1. JANÚAR 1993
Hjálpartæki fyrir aldraða
á öldrunarstofnunum:
1. janúar 1993 tók í gildi ný reglugerð
frá Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu um greiðslur öldrunar-