Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Qupperneq 7
5
Stjórn Iðjuþ jálfafélags íslands. Talið frá vinstri. Anna Sveinbjörnsdóttir, Elsa Ingimarsdóttir, Hope Knútsson,
Lillý Sverrisdóttir, Lovísa Ólafsdóttir og Auður Axelsdóttir. Á myndina vantar Elsu Þorvaldsdóttur.
Kynningarátak
I tengslum við 20 ára afmælið og „Repetiti-
ve strain injury" námskeiðin hefur félagið
ráðið fyrirtækið Kynning og markaður hf.
(KOM) til að aðstoða okkur við kynningu.
Sérstakur tengihópur hefur verið stofnaður
innan félagsins í kringum þetta verkefni.
KOM hefur nú í samvinnu við tengihópinn,
gert ítarlega kynningaráætlun.
Áætlunin er að kynna iðjuþjálfun á
þrennan hátt: 1. Starfsgreinin. Hvað er iðju-
þjálfun? Hvað gera iðjuþjálfar? 2. Álagsein-
kenni, af hverju stafa þau, hvernig má losna
við þau eða draga úr þeim og hvernig má
koma í veg fyrir þau. og 3. Iðjuþjálfafélag ís-
lands og ýmis baráttumál þess, einkum ís-
lensk menntun. Kynningunni er beint að al-
menningi, stjórnvöldum, atvinnulífinu og
öðrum heilbrigðisstéttum. Aðaláherslan
verður þó lögð á að uppfræða almenning.
Áætlunin felur aðallega í sér samskipti
við fjölmiðla með greinaskrifum, viðtölum
við iðjuþjálfa og sjúklinga, fréttatilkynning-
um, og sviðssetningum/uppákomum sem
vekur athygli á iðjuþjálfun. Skólanefnd hef-
ur síðastliðið ár stundað „lobbyisma" á
mjög háu stigi, inni á alþingi landsins og
innan veggja háskólans og meiningin er að
þessi almenna kynning á iðjuþjálfun hjálpi
til við stofnun langþráðrar námsbrautar í
iðjuþjálfun. Margir iðjuþjálfar taka nú þátt í
þessu kynningarátaki og íslenska þjóðin
mun verða margs vísari um okkar fag að því
loknu. Félagar íhí hafa lengi haft áhuga á
markvissari kynningu en þá hefur e. t. v.
skort heildarhugmynd, tengsl og hugrekki.
Með aðstoð reyndra fagmanna gerum við
nú það sem okkur hefur lengi langað til.
Þetta er spennandi og krefjandi ár fyrir iðju-
þjálfa á íslandi. Stjórnin óskar félögunum til
hamingju með 20 ára afmælið.