Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Page 19

Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Page 19
17 varð því að byrja á því að þróa mat sem hlaut nafnið Árnadóttir OT- ADL (occupa- tional therapy- activities og daily living). Neurobehavioral Evaluation sem gengur undir skammstöfuninni A-ONE og fram- kvæma nauðsynlegar rannsóknir að staðla matið og kanna gildi þess og áreiðanleik. A- ONE byggir á athafnagreiningu og metur framkvæmdafærni við daglegar athafnir og greinir samtímis hvaða einkenni skertrar heilastarfsemi hindra færni. - Varþetta ekki óvenju stórt verkefni oggerð- ir þú þér grein fyrir hversu langt það myndi teygja sig? Jú, þetta var mun umfangsmeiri ritgerð og rannsóknir en ætlast var til. Mér var sagt frá byrjun að þetta væri allt of viðamikið og óframkvæmanlegt, svo ég yrði að skera nið- ur og takmarka mig meira. Mig langaði bara að vita þetta allt (hlær) og þar við stóð. Það var aldrei ætlunin í upphafi að þetta mat yrði notað til annars en að safna þeim upp- lýsingum sem ég þurfti í samanburðarrann- sóknina, hvorki af mér, þeim sem ég hafði þjálfað til gagnasöfnunar með mér né öðr- um. Prófessorar mínir töldu hins vegar að matið ætti erindi til annarra iðjuþjálfa og hvöttu mig til að koma því á framfæri. Þeir komu mér á framfæri við bókaforlög og í framhaldi af því gaf Mosby forlagið út bók mína „The Brain and Behavior: Assessing Cortical Dysfunction Through Activities of Daily Living", sem þýða má á íslensku sem „Heili og hegðun: Að meta heilaskaða út frá daglegu atferli sjúklings." Bókin kom út árið 1990 og byggir á mastersritgerðinni og þró- unar á kenningum þeim er liggja að baki matinu og frekari rannsóknum til að staðla matið og kanna gildi þess og áreiðanleik. - Gerðir þú þér á þessum tíma greinfyrir því að A-ONE myndi ná svo mikilli útbreiðslu sem orðiðhefur? Nei, ég hafði aldrei velt því fyrir mér, enda útbreiðsla ekki markmiðið. Ég ætlaði bara að slaka á þegar þetta væri búið. Reyndin varð önnur og ég hef ferðast og haldið námskeið, auk þess sem ég hef haldið fyrirlestra á ráðstefnum fyrir iðjuþjálfa og á þverfaglegum ráðstefnum. Námskeiðin fjalla um þekkingargrundvöll kenninganna, framsetningu matsins, stigagjöf og rann- sóknir tengdarþví. - Hvar hefur þú haldið fyrirlestra? Námskeiðin hafa verið haldin á öllum Norðurlöndunum, í Ástralíu, Bandaríkjun- um, Hollandi, Kanada og Sviss. Auk þess hef ég flutt fyrirlestra og styttri námskeið í Þýskalandi, Bretlandi, Belgíu og Portúgal. Ég hef einnig starfað sem gestakennari við hákóla í Svíþjóð um nokkurra vikna skeið, þar sem ég kenndi öllum árgöngum í grunn- námi iðjuþjálfunarbrautar. Ég kenndi þar einnig iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum og hjúkrunarfræðingum í framhaldsnámi. - Er ekki hætta á að þú tnissir tökin á nám- skeiðunum og aðrir iðjuþjálfar fari að kenna án frekari réttinda? Það er vissulega möguleiki en ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Flestir þeir iðjuþjálf- ar sem sótt hafa námskeiðin hafa virt nauð- syn þess að viðhalda ákveðnum staðli. Þeir hafa einnig gert sér grein fyrir því að þessi námskeið eru nauðsynleg til að ná æskileg- um áreiðanleika. Þeir hafa því frekar reynt að stuðla að því að sem flestir hafi mögu- leika á að sækja námskeiðin og beitt sér fyrir því að fá fleiri námskeið. Iðjuþjálfar virðast tryggja að þeir sem nota A-ONE hafi til þess tilskilin réttindi og þjálfun. í sumum lönd- um, þar sem nóg framboð er af iðjuþjálfum hafa sjúkrahús sett A-ONE námskeið sem skilyrði fyrir ráðningu iðjuþjálfa sem ráðnir eru til að vinna með sjúklinga, sem hafa sál- ræn einkenni af vefrænum toga. í öðrum til-

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.