Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Síða 29
27
Emma Pétursdóttir iðjuþjálfanemi
Ingibjörg Garðarsdóttir iðjuþjálfanemi
PBL - Ný námstilhögun
við Iðjuþjálfaskólann
í Kaupmannahöfn
1. september 1995 var námsskipu-
lagi breytt við Iðjuþjálfaskólann í
Kaupmannahöfn yfir í svokallaða
PBL-aðferð. Við, sem skrifum
þetta, erum fyrstu íslendingarnir
sem læra undir þessu nýja náms-
skipulagi. Okkur langar að miðla
af reynslu okkar og segja ykkur
heima á íslandi aðeins frá náminu.
Við vonum að þessi pistill verði til
þess að áhugasamir um iðjuþjálfun
fái innsýn í námið eftir hinni nýju
tilhögun. Einnig væri óskandi að
stafandi iðjuþjálfar fái jákvæða
mynd af okkur PBL-nemum sem
verðandi „kollegum".
Hvað er PBL-aðferð?
PBL er skammstöfun fyrir „problem baser-
tet læring" á dönsku. Satt að segja erum við
í stökustu vandræðum með að þýða þetta
yfir á íslensku. Orðið „problem" hefur hér
breiðari merkinu en íslenska orðið vanda-
mál. Það getur líka þýtt viðfangsefni, verk-
efni eða dæmi. „Læring" þýðir hér nám eða
það að læra og nema vitneskju. Að okkar
mati er erfitt að finna tilsvarandi orð á ís-
lensku og höldum okkur því við skamm-
stöfunina BPL. Við látum öðrum eftir að
þýða þetta yfir á ástkæra ylhýra.
Hugtakið PBL vísar til námsaðferðar sem
hefur verið notuð í 25 ár og er grundvölluð á
uppeldisfræðilegum kenningum. Aðferðin
var upphaflega þróuð og notuð við læknis-
fræðideild í bandarískum háskóla. Smám
saman var farið að nota hana í fleiri skólum
og hinum ýmsu fögum, t. d. hjúkrunarfræði,
iðju- og sjúkraþjálfun, félagráðgjöf, jarð-
fræði og verkfræði. Nú er aðferðin notuð í
iðjuþjálfaskólanum í Tromso í Noregi, Ling-
kjoping í Svíþjóð, NewCastle í Ástralíu og
hér í Kaupmannahöfn svo eitthvað sé nefnt.
Þess má geta að skólinn í Kaupmannahöfn