Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Qupperneq 33

Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Qupperneq 33
31 Meistarinn og nemarnir sjö, talið frá vinstri: Margrét Sigurðardóttir, Valeirie Harris, Gail Maguire, Gunn- hildur Gísladóttir, Sigrún Garðarsdóttir, Ingibjörg Áseirsdóttir, Kristana Fenger og Elín Ebba Ásmundsdóttir. Ekki var sjálfstraustið mikið gagnvart enskuprófi, þannig að um páskana 1994 æfði ég mig í að taka enskupróf með hjálp gagna frá Menningarstofnum Bandaríkj- anna. Það reyndist þó vera lítilræði miðað við GRE prófið, sem einnig verður að gang- ast undir. Ég fékk áfall þegar ég fékk lánuð fyrstu gögnin og hélt ég myndi bara gefast upp, þess fullviss að skammstöfunin stæði fyrir „Glópar Reyna Ensku". Þessi tvö próf reyndu því verulega á hvort ég vildi í raun teggja þetta á mig eður ei. Ég gat á engan hátt einbeitt mér til náms að vinnudegi loknum, heimafyrir með tvo fjöruga drengi, ~ég kvöldsvæf mannneskjan sem sofnar um svipað leyti og börnin. Eina leiðin sem ég sá út úr þessum vanda var að vakna klukkan fimm á morgnana til að fá tveggja tíma frið. Þetta gerði ég svo í þá tvo mánuði sem voru til „Glópa" prófsins. í örvæntingu minni í viðureigninni við undirbúninginn fyrir GRE prófið fullvissaði Guðrún Guðfinnsdóttir, iðjuþjálfi mig um að þetta væri það erfiðasta og svei mér þá ef hún hafði ekki rétt fyrir sér. Þótt ég væri vel undirbúin, hafði ég á til- finningunni að ég væri eiginlega bara að fylla út lottómiða í þessu fjögurra tíma GRE prófi, -en „miði er möguleiki". Fleiri lögðu undir til að geta „spilað með" og hún Mar- grét okkar mætti meira að segja með 40 stiga hita svo að við hinar gátum ekki látið bera á neinni sjálfsvorkunn. Síðar tókum við annað

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.