Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Page 40
38
Elsa S. Þorvaldsdóttir iðjuþjálfí
Iðjuþjálfun í Hafnarfirði
Vorið 1995
skrifaði ég
bæjarráði
Hafnarfjarðar
bréf, þar sem
ég benti á
vöntun á iðju-
þjálfum hjá
bænum, og
sóttist eftir því
að fá stöðu
sem iðjuþjálfi.
Hugmyndin var að vinna einungis
með börn og tengjast leikskólum
og skólum. Vinna þá við ráðgjöf
eða þjálfun. Ég hafði þá hugsað
mér þjálfunarstöðu annað hvort í
leikskólanum, sem er minnst rösk-
un fyrir barnið, eða leigja aðstöðu
hjá Sjúkraþjálfanum hf. í Hafnar-
firði, þar sem mikið af börnum er í
meðferð.
Ég fékk jákvæðar undirterktir en þau svör
að peningar væru ekki fyrir hendi til þess að
fjármagna þessa stöðu. Síðla sumars sé ég
auglýsingu frá leikskólanum Víðivöllum
þar sem óskað er eftir þroskaþjálfa eða öðru
uppeldismenntuðu starfsfólki til að vinna
sem „stuðningur" við börn sem þess þurfa
með. Ég hugsaði með mér að þarna væri
tækifæri til þess að kynna sig í kerfinu og
eiga þá léttara með að pressa á að staða fyrir
iðjuþjálfa fengist. Ég byrjaði síðan að vinna
sem „stuðningur" á Víðvöllum um haustið.
Því miður fékk ég ekki fagheiti mitt viður-
kennt og er þarna á þroskaþjálfalaunum.
Á deildinni minni er 24 börn, þrjú með
stuðning og einn „ógreindur" sem ég vonast
til að fái stuðning sem fyrst. Við erum tvær
sem vinnum sem „stuðningur" á þessari
deild. Hin er þroskaþjálfi að mennt og vinn-
ur á móti mér eftir hádegi. Ég hef ábyrgð á
tveimur börnum og hún á tveimur. Starfið
er feikilega skemmtilegt og gaman að sjá
hversu börnin eru misjöfn.
Þegar ég byrjaði að vinna tók ég fín-
hreyfimat á fjórum börnum (hef gert það við
fleiri ef okkur sem þarna vinnum, hefur
fundist þörf á), og gerði klíniskar athuganir.
Gerði svo smá greinargerð um hvert og eitt
og út frá því minnispunkta um það, sem
þurfti að vinna með næstu mánuði. í for-
eldraviðtölum voru foreldrarnir upplýstir
um það sem var verið að vinna með og
fengu eintak af „plagginu" með áherslu-
punktum.
Ég fylgi börnunum í dagskipulagi leik-
skólans og tek þau svo út úr í einkatíma eða
í litla hópa (tveir í hóp), allt háð því hvað
verið er að vinna með hverju sinni. Eins
stjórna ég leikfimihóp tvisvar sinnum í viku.
Börn sem eru með stuðning fá leikfimi 2 til 3
sinnum í viku. Eins reyni ég að nota úti-
svæðið á markvissan hátt til að örva og