Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Side 46

Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Side 46
44 vel að ferli og sérstöðu ákveðinna tegunda fatlana. Hays (1987) kannaði notkun rafknú- inna hjálpartækja með ungum fötluðum börnum. Hann skipti þeim í fjóra klíníska hópa og hafði annars vegar notagildið eitt og hagkvæmnisjónarmið að leiðarljósi og hins vegar þroskasjónarmið. 1. Börn sem munu aldrei fara um sjálf. í þessum flokki eru börn með heilalömun með vítækri hreyfihömlun og tauga- og vöðvasjúkdóma, s.s. SMA gerð I og II. Þessi böm hafa enga möguleika á því að komast um sjálf nema með aðstoð hjálpar- tækja og oft er rafmagnshjólastóll eini kosturinn. 2. Börn sem fara að hluta til um sjálf, en skortir bæði á hraða, sem og þol og út- hald. Hér höfum við aftur börn með heila- lömun, en vægari hreyfihömlun og böm með klofinn hrygg þar sem skaðinn liggur ofarlega, þannig að auk lömunar í neðri útlimum skortir á styrk og stöðugleika í bol og handleggjum. Hér getur rafmagns- hjólastóll boðið upp á meiri hraða og fjöl- breytni við að fara um. 3. Börn sem hafa misst niður hæfni til að komast um sjálf, t.d. í kjölfar slysa. Einnig börn með hrörnunarsjúkdóma, t.d. vöðva- og taugasjúkdóma. Þroskasjónar- miðið er ekki eins afgerandi hjá þessum hópi og hinum tveimur fyrrnefndu, en mörgum veitist hins vegar erfitt að sætta sig við ástand sitt og að taka við nýjum hjálpartækjum eftir því sem færni dvínar. 4. Börn sem tímabundið þurfa á ferlihjálpar- tækjum að halda og oft ná með tímanum þokkalegri færni við að komast um sjálf. í þessum hópi eru mörg börn með Osteogenesis Imperfecta og Arthrog- ryposis. Hér eru bæði hagkvæmnis- og þroskasjónarmið ríkjandi. Það er ljóst að ekki geta öll börn náð fullu sjálfstæði í því að komast um sjálf, en mörg þeirra geta nýtt ferlihjálpartæki til að læra og tileinka sér reynslu, kanna umhverfið og upplifa að þau geta sitt af hverju. Auk þess veitir notkun ferlihjálpartækja oft aukna lífsfyllingu í annars stundum tilbreytingars- nautt líf. Tilgangur með notkun hjálpar- tækja Að lokum langar mig að skírskota til þess sem á sér stað í vinnu með óhefðbundnar tjáskiptaleiðir, það sem kallast alternative & augmentative communication á ensku. Oft er byrjað mjög snemma með mark- vissa málörvun og táknanotkun. Öll börn sem fæðast með Down's heilkenni hér á landi fá t.d. örvun á þessu sviði og aðstand- endur fá leiðbeiningar um hvernig nýta

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.