Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Qupperneq 50
48
starf, og er það ekki síst að þakka góð og
ánægjuleg samskipti og samstarf við nor-
ræna nágranna okkar á sviði hjálpartækja-
mála.
Það er augljóst að ekki er hægt að taka
þátt í öllu starfi á Norðurlöndum og í Evr-
ópu á hjálpartækjasviði, en það hefur verið
reynt að velja/tengjast ákveðnum nefndum
og vinnuhópum sem talið er að veiti okkur
hentugustu upplýsingarnar og þekkinguna.
Ég vil nefna nokkrar nefndir og verkefni í
erlendu samstarfi sem ég hef tekið þátt í, er
þátttakandi í eða tengist að einhverju leyti.
Norræna nefndin um málefni
fatlaðra (NNH) og norræna
menntastofnunin fyrir starfsfólk
sem vinnur með daufblindum
(NUD)
• Stjóm NNH og NUD: Árið 1989 varð ég
tilnefnd af Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu sem varamaður í stjórn
NNH og NUD og aðalmaður frá 1994.
Tveir fulltrúar eru frá hverju landi í stjórn
NNH og NUD. Hinn fulltrúinn er Ásta B.
þorsteinsdóttir, fulltrúi Landssamtaka
þroskahjálpar, en hún er tilnefnd af Fé-
lagsmálaráðuneytinu. Tilnefning er til
þriggja ára í senn. NNH er samstarfs- og
fagstofnun um málefni fatlaðra og ber
ábyrgð á stefnumótun og samhæfingu í
þeim málefnum og tryggir réttindi fatl-
aðra í samfélaginu. NNH skrifstofan er í
Stokkhólmi og NUD er á Norður-Jótlandi
í Danmörku. NNH hefur m.a. unnið mik-
ið á sviði hjálpartækja, ferli- og aðgengi-
málum, jafnrétti og aðlögun fatlaðra
(samfélag fyrir alla) og smáhópa fatlaðra.
NNH hefur verið frumkvöðull að ýmsum
verkefnum innan hjálpartækjasviðsins, og
ekki síst stuðlað að samstarfi hjálpar-
tækjastofnananna á Norðurlöndunum.
Aukin áhersla er lögð á Evrópu- og al-
þjóðasamstarf vegna aukins samstarfs
innan Evrópu. Tilgangurinn er að tryggja
norrænar viðmiðunarreglur sem náðst
hafa á Noðurlöndum innan þessa mála-
flokks.
• Ráðstefnur. Á hverju ári eru norrænar
ráðstefnur á vegum NNH. þátttaka í und-
irbúningi þessara ráðstefna og tilstuðlan
að þátttöku íslendinga í þeim verkefnum
sem NNH vinnur að gefur gott vegarnesti
og innsýn í þá fjölmörgu þætti sem þetta
svið, málefni fatlaðra, spannar bæði hér
heima og erlendis.
• Vinnunefndir NNH. í dag eru 6 fastar
vinnunefndir á vegum NNH, allar með
þátttöku íslendinga: Vinnunefndirnar og
íslensku fulltrúar nefndanna eru: að-
gengimál (Ólöf Ríkarðsdóttir, Öryrkja-
bandalagi íslands (ÖBÍ)), flokkunarkerfi
hjálpartækja (Björk Pálsdóttir, Hjálpar-
tækjamiðstöð TR), heyrnarhjálpartæki
(Birgir Ás Guðmundsson, Heyrnar- og
talmeinastöð íslands), fjarskiptatækni fyr-
ir fatlaða (Gylfi Már Jónsson, Pósti og
síma), upplýsinga- og tjáskiptatækni fyrir
fatlaða (Katla Kristvinsdóttir, Hjálpar-
tækjamiðstöð TR) og styrkjanefnd til nor-
rænnar samvinnu félaga fatlaðra (Hafdís
Hannesdóttir, ÖBÍ).
• NUH. Dótturstofnun NNH, Nordisk
udviklingscenter for handikapphjælpem-
idler (NUH), sem er í Finnlandi, veitir
styrki til samnorrænna verkefna á sviði
ný þróunar á hjálpartækjum og miðlar
upplýsingum á sviðinu. Frá september
1994 hef ég verið fulltrúi íslands í stjórn
NUH, en í stjórn sitja yfirmenn hjálpar-
tækjastofnana Norðurlanda svo og fram-
kvæmdastjóri NNH og fulltrúi frá nor-