Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.2009, Page 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.2009, Page 41
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 85. árg. 2009 37 senn og getur hjálpað lesandanum að auka læsi á tilfinningar barna sem og fullorðinna. Umfjöllunin um tilfinningar gefur m.a. vísbendingu um hvernig barn getur öðlast stjórn á þeim sér til þroska. Hér er vitnað í rammatexta úr þessum kafla sem ætti að verða lesandanum minnistæður: „Til að barn læri að þekkja tilfinningar sínar þarf það að skynja þær í nærveru manneskju sem þolir þær, getur nafngreint þær og temprað. Þar er lagður grunnur að getu barnsins, og síðar hins fullorðna, til að takast á við tilfinningar á heilbrigðan hátt.“ Í öðrum kafla um „Samhengi barnæsku og fullorðinsára“ er gerð grein fyrir hvernig reynsla frumbernskunnar kemur til með að hafa áhrif alveg fram á fullorðinsár þótt minningar um atvikin geymist ekki í minni svo að hægt sé að rifja þær upp. Langtímahegðun og framkoma mótast einkum meðan heilinn, einkum framheilinn, er að þroskast á fyrstu árum ævinnar og þessi mótun fer einkum fram í gagnkvæmum samskiptum og það á eftir að skapa persónuleika einstaklingsins. Skiptir þar mestu máli að barnið geti á fyrstu árunum reitt sig á aðra manneskju, sérstaklega þegar því líður ekki vel. Þótt foreldrar séu taldir mikilvægasta fullorðna fólkið í lífi ungra barna ætti þriðji kaflinn um „Góðar mömmur og vondar“ að hjálpa mæðrum að átta sig á takmörkunum sínum og að sætta sig við þær. Fjórði kaflinn um „Andstæðar tilfinningar“ tengist fyrri kaflanum um tilfinningar en fjallar af meiri dýpt um blendnar, tvíbentar eða erfiðar tilfinningar og hvernig beri að túlka þær í ljósi þeirra miklu krafna sem ósjálfbjarga barn gerir til foreldra sína. Í fimmta kaflanum um „Heilaleikfimi“ er gerð grein fyrir því hvernig heili barns þroskast í hversdagslegum, gagnkvæmum samskiptum við aðrar manneskjur og umhverfi. Í því sambandi skipta tilfinningar umönnunaraðila barnið mestu máli. Gleði og ánægja næra heila barnsins en depurð og afskiptaleysi standa í vegi fyrir þroska þess. Af því er ljóst að barnið dafnar ekki á næringunni einni saman og umönnun líkamans, heldur jafnframt á gleði og ánægju nánustu uppalenda. Í kaflanum um „Rannsóknir á tengslum“ er gerð grein fyrir þeim fræðum sem liggja að baki kenningunni um geðtengsl. Þar er lögð áhersla á læsi foreldra á óyrt skilaboð barns og ekki síst á hæfni til að hugsa um eigin hugarástand og að geta tengt hugsanir við tilfinningar og sett þær í sambandi við hversdagslega reynslu og atvik. Í þessum efnum geta foreldrar stundum þurft á stuðningi frá öðrum að halda og þeir sem vilja hlúa að foreldrum ungra barna geta hér orðið margs vísari um hvernig þeir geta staðið að því. Í kaflanum um „Áhrif streitu“ er meðal annars fjallað um viðeigandi viðbrögð foreldra við streitu og vanlíðan ungra barna sem þau láta oft í ljós með gráti. Þessi viðbrögð foreldranna geta orðið barninu veganesti út í lífið til að stjórna atburðum sem valda streitu og óróleika. Einnig er fjallað um hvernig draga megi úr skaðlegri streitu barna með fyrirsjáanlegu skipulagi eða fyrirkomulagi í daglegu lífi. Í kaflanum um „Meðgöngu“ er hægt að dýpka þekkingu á því hvernig streituhormónin verðandi móður geta haft áhrif á fóstrið. Ef streita móður er mikil og langvarandi á meðgöngunni getur reynst nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að draga úr skaðlegum áhrifum hennar. Í kaflanum um „Fæðingu“ er meðal annars fjallað um hve mikilvægt er að gefa líðan fæðandi kvenna gaum og hvernig líðan nýorðinnar móður getur haft áhrif á myndun geðtengsla. Í kafla, þar sem er fjallað um „Þörfina fyrir mömmu“, má finna mikilvæg skilaboð til mæðra og hvernig þær geta orðið barni sínu að liði. Þótt þessi lesning höfði sérstaklega til mæðra gildir sumt einnig fyrir feður. Sérstakur hliðstæður kafli fyrir feður hefði verið viðeigandi hér þar sem margir feður taka þátt í umönnun ungra barna og skipa veigameiri sess í lífi barna sinna en tíðkaðist hjá feðrum fyrri kynslóða. Þessu til stuðnings vitna ég í rammatexta þar sem segir: „Eitt af því besta sem hún gerir fyrir barnið er að njóta þess,“ og það á jafnt við mæður sem feður. Þrír kaflar höfða hins vegar til beggja foreldra: „Móðir fæðist“, „Faðir verður til“ og „Hlutskipti foreldra“. Lestur þeirra gerir það ljóst að mikilvægustu samskipti barns eru við tvo umhyggjusama en ólíka foreldra. Báðar foreldrar geta fundið efni sem er óháð kyni foreldra í köflunum „Glænýtt barn“, „Agi“ og „Hver á að passa barnið?“. Í kaflanum „Afstaða samfélagsins til barna og foreldra“ er foreldraábyrgð sett í samhengi við samfélagsábyrgð til að styðja við fjölskyldur ungra barna. Höfundur hikar ekki við að gagnrýna algengt fyrirkomulag í samfélaginu þar sem mjög ung börn eru vistuð á leikskólum í allt að níu klukkustundir samfellt og að auk þess sé ekki alltaf vel mannað. Einnig gagnrýnir hún að svo ung börn séu oft í fleiri en einu mismunandi gæslufyrirkomulagi á degi hverjum. Hún skorar á foreldra að íhuga mikilvægi nærveru þeirra við ungbörn og einnig á samfélagið að veita foreldrum nauðsynlegan stuðning til að sinna hinu tímafreka og krefjandi foreldrahlutverki. Lestur bókarinnar kann á köflum að vera ögrandi fyrir foreldra eða aðra uppalendur þar sem hún kann að vera í andstöðu við ríkjandi hugsun eða hefðir í uppeldi. Jafnframt er umönnunaraðilum sýnt mikið umburðarlyndi og mannskilningur og verðleikar þeirra sem uppalenda upphafnir. Reynsla af foreldrahlutverkinu er sett í stærra samhengi við þroska mannsins á lífsleiðinni. Ég ásamt samstarfsfólki hef fengist við rannsóknir og kennslu í hjúkrunar­ og ljósmóðurfræði á fræðasviði sem nefnist „geðvernd eftir fæðingu“ (perinatal mental health). Viðfangsefni þess er þróun og hagnýting fræðilegrar þekkingar um sálfélagsleg og geðræn vand kvæði á meðgöngu, sængurlega, nýbura­, smábarna­ og ungbarnaskeið. Fyrirliggjandi bók er mikilvægt framlag á því sviði og ætti að vera fróðlegur og gagnlegur lestur fyrir fagfólk sem og almenning. Marga Thome er prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og forstöðumaður fræðasviðs geðverndar eftir fæðingu.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.