Tölvumál - 01.11.2011, Side 16
1 6 | T Ö LV U M Á L
Bourne sýndu fram á að átta til níu ára börn gátu lært forritun auk þess sem
þau sýndu jákvæða fylgni milli þess að læra reglur og tíma sem varið var í
forritun á viku (Gorman og Bourne, 1983). Einnig sýndi rannsókn Clements
og Gullo fram á getu sex ára barna til að læra forritun. Þau börn sýndu
einnig fram á aukna verkefnalausnargetu, margþættari hugsun, aukna getu
til að þekkja eigin hugsun og aukna rýmisgreind eftir 12 vikna kennslu í
Logo forritun (Clements og Gullo, 1984). Auk þess að bæta fyrrnefnda þætti
fjallaði Wing um að geta til að forrita auki ekki bara rökhugsun og hjálpi til
við verkefnalausn og áætlunargerð heldur getur kennsla í forritun opnað
hug fyrir öðrum sviðum en bara forritun (Wing, 2006).
Börnin eru mikilvægasta fjárfestingin
Ávinningur þess að hefja kennslu í forritun strax á fyrstu stigum grunnskóla
er því samfélagslegur auk þess að hafa verulega jákvæð áhrif á börnin
sjálf, þekkingu þeirra og getu. Höfundar vilja sjá 70% af grunnskólum
Dæmi um forrit eftir 6 ára gamlan dreng sem tók þátt í rannsókninni
Með því að forrita tölvuna til að gera það sem börnin
vilja þá þurfa þau að setja sig í sporin sjálf og hugsa
út í hvernig þau myndu sjálf leysa verkefnið og þá
endurspegla sína eigin hugsun.
Ávinningur þess að hefja kennslu í forritun strax á fyrstu
stigum grunnskóla er samfélagslegur auk þess að hafa
verulega jákvæð áhrif á börnin sjálf, þekkingu þeirra og
getu.
landsins bjóða nemendum sínum upp á forritunarkennslu innan þriggja ára.
Með þessari jákvæðu aðlögun að breyttu umhverfi barnanna munum við ná
þverfaglegri tengingu milli ólíkra greina. Börnin verða betur í stakk búin til
að bæði nota tæknina og hafa skilning á því sem hún hefur upp á að bjóða.
Í framhaldinu munum við sjá aukna sókn í tæknimenntun, stelpur verða
sterkari í geiranum en í dag, almenn tölvukunnátta mun aukast og þar með
framleiðni starfsmanna. Litla Ísland kæmist því á kortið sem frumkvöðull
í menntun. Kennslustarf á Íslandi mun þróast og taka umbótum í takt við
breytingar í þjóðfélaginu og um leið virkja skapandi og virka hugsun barna.
Hagkerfi framtíðarinnar byggir á tækni og þekkingu á henni og þar eru
börnin mikilvægasta fjárfestingin.
Heimildir: Sjá sky.is