Tölvumál - 01.11.2011, Page 18
1 8 | T Ö LV U M Á L
Tilgangur hennar var að vekja athygli á mikilvægi upplýsingatækninnar
og áhrif hennar á einstaklinga, fyrirtæki og íslenskt samfélag. Markmiðið
með UTmessunni var að sjá marktæka fjölgun nemenda sem velja sér
tæknigreinar sem svið í háskólum landsins. Einnig vildum við tengja
upplýsingatæknina betur við skólastarf og atvinnulíf og vekja áhuga
almennings á upplýsingatækni og mikilvægi hennar á öllum sviðum daglegs
lífs. Að UTmessunni 2011 stóðu Skýrslutæknifélagið (Ský) í samstarfi
við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, Microsoft Íslandi og Samtök
iðnaðarins.
UTmessan skiptist í tvo viðburði; föstudaginn 18. mars var ráðstefna með 5
þemalínum fyrir fagfólk í upplýsinga-tæknigeiranum á Hótel Hilton Reykjavík
Nordica. Þar voru UT verðlaunin afhent í annað sinn. Laugardaginn 19.
mars var sýning opin almenningi í byggingu HR í Öskjuhlíð þar sem fjöldi
fyrirtækja kynnti áhugaverð verkefni og lausnir í upplýsingatækni. Haldin
var keppni fyrir ungt fólk þar sem mátti senda inn stutt myndbönd um hvað
það telur að UT sé og einnig var útbúið myndband og sett á Youtube þar
sem tekin voru viðtöl við ýmsa aðila í UT geiraranum og þeir beðnir að svara
spurningunni „Hvað er UT?“. Ýmsir leikir voru í gangi í sýningarbásunum á
laugardeginum fyrir gesti Utmessunnar og var stemmingin í Sólinni í HR
mjög góð.
Gestir UTmessunnar voru á þriðja þúsund og voru það fleiri en aðstandendur
þorðu að vona. Forseti Íslands heiðraði gesti með nærveru sinni bæði á
föstudag og laugardag og kunni fólk vel að meta hve góðan tíma hann
gaf sér til að spjalla við aðila í sýningarbásum fyrirtækjanna. Einnig eiga
sýningaraðilar og fyrirlesarar sem voru á ráðstefnunni á föstudag og
laugardag hrós skilið fyrir að gera þennan viðburð eins glæsilegan og
raunin var.
Þátttakendur í UTmessunni voru (í stafrósröð) : Auðkenni - Amivox
- Betware - CCP - CLARA - Datamarket - Eimskip - Fancy Pants Global
- Fjármálaráðuneytið - Forsetaembættið - Framvegis - Gagnavarslan
- Gámaþjónustan - Gartner - GreenQloud - Habilis - Hagstofa Íslands -
Háskóli Íslands - Háskólinn í Reykjavík - Hátækni - iSoft - IIIM - Já.is -
Landsbankinn - Leggja.is - Locatify - LSH - Maritech - Medical Algorithms
- Microsoft - MindGames - Nethönnun - NORDATA - Nýherji - Opin kerfi
- Rauði kross Íslands - Reiknistofa bankanna - Reiknistofa í veðurfræði
- Reykjavíkurborg - Samtök iðnaðarins - Scope Communications - Ský
- Skýrr - Strikamerki - Tollstjórinn - Tækniskólinn - Tölvumiðlun - Valka -
Videntifier Technologies - Þjóðskrá Íslands – Össur
Undirbúningur fyrir UTmessuna 2012 er farin af stað og er það von okkar
að enn fleiri taki þátt í henni en þeirri fyrstu og við getum þannig sýnt
Íslendingum hve mikill hugur er í fólki í UT geiranum.
Dagana 18. og 19. mars 2011 var
Upplýsingatæknimessan (UT messan)
haldin í fyrsta sinn.
2011