Tölvumál - 01.11.2011, Síða 37
T Ö LV U M Á L | 3 7
Mjög mikilvægt er að upplýsingaflæði í neyðarþjónustu gangi hnökralaust
fyrir sig. Þegar einhver hefur samband við neyðarlínuna og óskar eftir
aðstoð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS ) getur þurft að koma miklu
magni af upplýsingum til þeirra sem eiga að sinna útkallinu. Oftast eru
upplýsingar um útkallið að uppfærast á meðan SHS er á leið á útkallsstað
því er mikilvægt að koma þeim jafn óðum til skila.
Fram til þessa hefur mest verið stuðst við talstöðvarsamskipti milli
neyðarvarða og áhafna útkallsbíla. Þetta þýðir að áhafnarmeðlimir þurfa að
leggja upplýsingarnar á minnið og eða skrifa á miða úti í bíl, einnig kallar
þetta á mikil samskipti í talstöðvum og hefur í för með sér mikið áreiti því
allir heyra í öllum sem eru á sömu rás (talhóp).
Ekki er nóg að geta komið upplýsingum til áhafna útkallsbíla heldur þurfa
neyðarverðir að gera sér grein fyrir staðsetningu og stöðu þeirra svo þeir
geti fylgst með stöðu flotans og nýting verði sem best. Með því að vita hvar
útkallstæki eru staðsett og verkefnastöðu þeirra er auðveldara að finna
þann bíl sem næstur er útkallstað og þannig stytta viðbragðstímann.
Síðastliðin 15 ár hefur verið ör þróun á fjarskiptabúnaði útkallstækja og
sérstaklega með tilkomu Tetra fjarskiptakerfisins (e. Terrestial Trunked
Radio). Það hefur gefið fleiri möguleika til flotastýringar og greiningu á
rekstri SHS. Það að geta safnað gögnum gefur skýrari ákvarðanatöku og
hefur leitt til þess að SHS sér hag sinn í því að halda áfram að tæknivæða
starfsemi sína.
Verkefnið
Greinahöfundar unnu lokaverkefni í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík
í samstarfi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. (SHS) vorið 2011.
Markmið verkefnisins var að gera bestun á hvaða útkallstæki sé fljótast á
vettvang þegar útkall verður hjá SHS.
Ferilvöktun og sending
gagna í rauntíma fyrir
slökkvi- og sjúkrabíla
Ólafur Kr. Ragnarsson, forritari hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðsisn bs. (SHS) og nemandi í
kerfisfræði við HR
Ómar Traustason, framleiðslustjóri Nimblegen og
tölvunarfræðingur frá HR
Karl Helgason, hugbúnaðarprófari hjá Sabre Airline
Solutions og nemandi í tölvunarfræði við HR
Verkefnið fólst í að taka á móti skilaboðum frá útkallstækjum SHS um
staðsetningu þeirra og verkefnastöðu og birta þær upplýsingar á korti
í rauntíma. Þegar svo útkall verður á hugbúnaðurinn að geta nýta sér
þekkingu á staðsetningu útkallstækja til þess að finna eftir ákveðnum
skilyrðum hvaða tæki sé næst vettvangi í tíma. Einnig að þróa hugbúnað
fyrir útkallsbíla sem sér um að senda skilaboð með upplýsingum um
staðsetningu og verkefnastöðu. Einnig að taka á móti skilaboðum frá
neyðarlínu með upplýsingum um verkefni og birta á skjá. Notast var
við SDS (e. Short Data Service) samskiptastaðalinn í Tetra kerfinu sem
samskiptaleið fyrir gagnasendingar. SDS samskiptastaðlinum má líkja við
SMS staðalinn í GSM kerfinu.
Útfærsla verkefnisins
Til þess að geta uppfyllt kröfur verkefnisins var því skipt upp í þrjá þætti
með yfirskriftinni Viti.
• Viti bílar sem var hugsaður sem hugbúnaður í bílum SHS þar sem
áhafnarmeðlimir geta skráð verkefnastöðu og forritið sendir sjálfkrafa
ferilvöktunarskeyti og upplýsingar um stöðu ökutækis. Einnig er
hægt að taka á móti skilaboðum með upplýsingum um útkall fyrir
áhafnarmeðlimi. Samskiptin fara fram í gegnum Tetra kerfið.
• Viti þjónn var hugsaður sem hugbúnaður sem miðlar upplýsingum til
og frá Tetra kerfinu yfir á staðarnet (e. local network) SHS svo hægt sé
að vinna með þær.
• Viti ferilvöktun var hugsaður sem hugbúnaður sem heldur utan um
bíla SHS. Viti ferilvöktun birtir staðsetningu, stöðu og stefnu bíla í
rauntíma á korti, sýnir lista af bílum og verkefnastöðu þeirra og hefur
möguleikann á að reikna hvaða bílar eru næst ákveðinni staðsetningu í
tíma og vegalengd.