Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1926, Blaðsíða 31
Manntalið 1920
29
Akureyri unnið við flutningana, og heldur meira en Reykjavík, því að á
Akureyri dvöldu 1220/o fleiri en þar voru fæddir, en í Reykjavík 119°/o
fleiri. I Hafnarfirði var vinningurinu umfram tölu fæddra álíka mikill og
fæðingarmannfjöldinn, í Vestmannaeyjum 91 °/o, á Siglufirði 76°/o, á Isa-
firði 49°/o og á Seyðisfirði ekki nema 38°/o. Af sýslunum hefur Suður-Múla-
sýsla mist minst, aðeins 2°/o af fæddum þar, og þar næst Isafjarðarsýsla
og Norður-Múlasýsla 9°/o hvor, en þær sýslur, sem tiltölulega mest hafa
mist við flutninga, eru Rangárvallasýsla (36V2°/o af öllum fæddum þar)
og Vestur-Skaftafellssýsla (32°/o).
Hjer á undan hefur aðeins verið farið út í aðalniðurstöðuna af
flutningunum, en hún er fram komin bæði við innflutning og útflutning
og nokkuð af þessum flutningum hefur jafnast upp og kemur því ekki
fram í endanlegu útkomunni. Af íbúum bæjanna var rúml. helmingurinn
eða 21167 fæddir í sveitum, en aftur á móti dvöldu í sveitum 2 619
manns, sem fæddir voru í bæjum, eða um 5°/o af sveitabúum. Ef aftur
á móti tala þeirra burtförnu er miðuð við tölu þeirra, sem fæddir eru í
sveitum og bæjum, þá verður fólksmissirinn í sveitunum 29°/o, en 12°/o
í bæjunum. A 10. yfirliti sýnir 4. og 5. dálkur, hve mikið hver kaup-
staður og hver sýsla hefur fengið af fólki frá öðrum stöðum á landinu
og hve mikið þau hafa mist burtu til annara staða á landinu. 7. og 8.
dálkurinn sýna jafnframt með hlutfallstölum, hve miklum hluta þeir að-
fluttu nema af íbúum á hverjum stað, sem innanlands eru fæddir, og
hve miklum hluta þeir burtförnu nema af þeim, sem fæddir eru á hverj-
um stað. Tölur þessar sýna, að Vestmannaeyjar og Reykjavík hafa mist
tiltölulega færra fólk til annara staða á landinu heldur en hinir kaup-
staðirnir (rúml. !/6 af þeim, sem þar eru fæddir), en mestir hafa burt-
flutningar verið frá Seyðisfirði (næstum helmingur fæddra) og ísafirði
(41°/o). Af sýslunum hefur Gullbringu- og Kjósarsýsla mist mest við
burtflutning, töluvert meira en helming af fæddum (55°/o), en aftur á
móti hefur innflutningur þangað verið meiri heldur en í aðrar sýslur,
svo að útkoman verður tiltölulega miklu minni fólksmissir heldur en í
Rangárvalla- og Skaftafellssýslum, sem að vísu hafa mist tiltölulega færra
fólk í burtu, en fengið hafa fátt af fólki aftur við innflutning.
Töluvert minna er um flutninga milli fjarlægra hjeraða heldur en
nálægra staða. Af öllum þeim, sem fæddir voru innanlands, dvöldu
í sama kaupstað, sem þeir voru fæddir í 10 660
- sömu sýslu, sem þeir voru fæddir í . . . 52 475
- kaupstað innan fæðingarsýslunnar eða
syslu sem liggur að fæðingarkaupstaðnum 6 248 gg 333 74.0 o/„
- nágrannasýslu eða kaupstað ................... 10 568 11.3 —
- fjarlægari hjeruðum .......................... 13 813 14.7 —
Samtals 93 764 100.o%