Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1926, Page 37
Manntalið 1920
35
hálfvitar. Þeir voru taldir 101 við manntalið 1920, 62 karlar og 39
konur. Einungis 3 þeirra fengust við atvinnustörf (2 karlar og 1 kona).
Gedveikir eða vitfirringar voru taldir 183 manns, 70 karlar og 113
konur. Komu 1.5 á hvert þús. karla, en 2.3 á hvert þús. kvenna. Geð-
veiki er þannig nokkru tíðari meðal kvenna en karla. Innan við tvítugt
verður mjög lítið vart við geðveikt fólk, en geðveikin virðist fara vaxandi
með aldrinum. Einungis 8 fengust við atvinnustörf (5 karlar og 3 konur),
þar af 7 við landbúnað. Rúmlega þriðjungur geðveikra var á geðveikra-
hælinu.
H. Skifting þjóðarinnar eftir atvinnu.
Population par profession.
1. Framfærendur og framfærðir.
Soutiens et nourris.
Skifting þjóðarinnar eftir framfærslu sjest í XX,—XXIV. töflu (bls.
69—143), þar sem hún er synd í ýmsum samböndum og vísast til þeirra
að því er einstök atriði snertir. Hafa allir verið taldir framfærendur,
sem algjörlega sjá fyrir sjálfum sjer, að svo miklu leyfi sem það var
sýnilegt á manntalsskránum, eða að minsta kosti ekki hafa að neinu
leyti getað talist framfærðir af öðrum einstaklingum. Þeir sem njóta
styrks af almannafje eða lifa á eftirlaunum, hafa því verið taldir fram-
færendur, ef styrkurinn eða eftirlaunin eru veitt þeim sjálfum, en skyldu-
lið þeirra, konur og börn, talið framfært af þeim. Framfærðir hafa verið
taldir giftar konur, börn og annað skyldulið, sem ekki hefur tilgreint
neina atvinnu. Börn innan 16 ára hafa alment verið talin sem framfærð,
nema sjerstök ástæða hafi verið til að ætla, að þau ynnu alveg fyrir sjer.
Mannfjöldanum var skift þannig eftir framfærslu við manntalið 1920.
Karlar Konur Samtals
Framfærendur.......... 29 187 13 180 42 367
Framfærðir ........... 16 985 35 338 52 323
Samtals 46 172 48 518 94 690
Tæpur helmingur landsmanna (eða 45°/o) eru þannig taldir fram-
færendur, 63°/o af körlum, en 27°/o af konum. Að framfærendur meðal
kvenna eru svo miklu færri heldur en meðal karla stafar auðvitað fyrst
og fremst af því, að giftar konur eru taldar framfærðar af mönnum
sínum, nema þess hafi verið sjerstaklega getið á manntalsskránum, að
þær stunduða einhverja atvinnu. Tölur þessar eru ekki beinlínis sam-