Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1926, Blaðsíða 38
36:
Manntalið 1920
bærilegar við manntalið 1910, því að töluvert fleiri konur voru þá taldar
til framfærenda heldur en 1920.
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve margir framfærendur komu á hvert
100 karla, kvenna og allra íbúa í bæjum og sveitum 1920.
Framfærendur af 100
karla kvenna íbúa alls
Reykjavík 64.1 32.6 47.2
Kaupstaðir 62.2 27.7 44.o
Verslunarstaðir 62.2 23.5 42.1
Sveitir 63.4 26.1 44.7
Alt landið 63.2 27.2 44.7
Samkvæmt þessu eru í Reykjavík tiltölulega fleiri framfærendur
heldur en annarstaðar á landinu, einkanlega meðal kvenna.
Aldursskifting framfærenda og framfærðra eftir atvinnuvegum og
ýmsum atvinnugreinum er í XXIII. og XXIV. töflu (bls. 118—143). Fram-
færðum er skift aðeins í 3 aldursflokka, barnsaldur (innan 16 ára), fram-
leiðslualdur (16 ára til sextugs) og gamalsaldur (yfir sextugt). Á hvert
100 manns á þessum aldursskeiðum kemur þá þessi taia framfærðra.
Karlar Konur
Giftar Aðrar Samtals
Innan 16 ára ........... 95.2 » 96.5 96 5
16—59 ára ............... 1.3 94.8 34.2 61.2
Yfir sextugt............ 11.8 92.7 45.o 60.4
Yfirlitið sýnir, að börn innan 16 ára eru yfirleitt talin framfærð og
ennfremur flestallar giftar konur. Af öðrum konum er rúml. þriðjungurinn
á aldrinum 16—59 ára talinn framfærður og framundir helmingur þeirra,
sem eru yfir sextugt. Af fullorðnum karlmönnum innan við sextugt eru
aftur á móti sárafáir taldir meðal framfærðra, en um Vs af þeim, sem
eru yfir sextugt.
2. Atvinnuskiftingin.
Groupement professionnel.
í töflu XX (bls. 69—103) er sýnd skifting þjóðarinnar eftir atvinnu.
Hefur allri þjóðinni verið skift í 9 atvinnuflokka, en þeim aftur í 130
atvinnugreinar, sem þó eru stundum líka dregnar saman í stærri deildir.
Aðalskifting þjóðarinnar eftir atvinnu sjest á 13. yfirliti. Er þar einnig
tekin til samanburðar atvinnuskifting þjóðarinnar við manntalið 1910, en
ein breyting hefur verið gerð við flokkaskiftinguna í því manntali til
þess að gera hana sambærilegri við síðasta manntal. 1910 voru taldir í
VI. flokki allmargir daglaunamenn, sem að rjettu lagi áttu heima undir