Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1926, Page 45
ManntaliÖ 1920
43
í skýrslunum, og margar vinnukonur starfa þar bæði að innanhússtörfum
og atvinnurekstrinum, svo að það verður oft að fara eftir ágiskun um
það, hvort þær skuli teljast innanhúshjú eða atvinnuhjú. I töflu XXVII
og XXVIII (bls. 151 —153) hefur öllum ráðskonum og innanhúshjúum
verið skift eftir atvinnu húsbóndans. Ef menn vilja gera sjer grein fyrir,
í hvaða atvinnuvegum er mest um innanhúshjú, virðist rjettast ag bera
tölu þeirra saman við tölu framfærenda í hverjum atvinnuvegi, sem eru
fjölskyldumenn. Á hvert 100 fjölskyldumanna komu árið 1920 að meðal-
tali 34 innanhúshjú (að meðtöldum ráðskonum). Þau skiftast þannig á
atvinnuvegina eftir atvinnu húsbóndans.
Atvinnu- AðstoDar- Verka-
rekendur fólk fólk Samtals
I. Ólíkamleg atvinna .... — — — 75
11. Landbúnnður 45 20 3 41
III. Fiskveiðar o. fl 41 26 12 20
IV. Handverk og iðnaður 30 28 14 21
V. Verslun og samgöngur 92 57 14 44
VI — IX. Annað og ótilgreint .. — — — 17
Af þessu sjest, að tiltölulega flest innanhúshjú eru hjá atvinnu-
rekendum við verslun og samgöngur, en þar næst hjá þeim, sem stunda
»ólíkamlega atvinnu*.
Eftirlauna- og eignamenn. í þeim flokki töldust 1 866 manns eða
2°/o af landsbúum árið 1920. Árið 1910 töldust í honum aðeins 900
manns. Fjölgunin er þó að miklu leyti óvirkileg, stafar af mismunandi
úrvinslu. Styrkþegar frá einstökum mönnum voru þannig ekki taldir í
þessum flokki 1910. Mannfjöldinn í þessum flokki skiftist þannig 1920.
Fram- Fram-
færendur færðir Samtals
Eftirlaunafólk 73 65 138
Eignamenn 893 485 1 378
Styrkþegar frá einstökum mönnum 285 65 350
Samtals 1 251 615 1 866
Menn, sem lifa á styrk af almannafje töldust 1 482 eða 1V20/0 af
landsbúum 1920. Þar af voru 120 kostaðir á opinberum stofnunum (geð-
veikrahæli, holdsveikraspítala, daufdumbraskóla), 1 109 lifðu á sveitar-
styrk, en 253 á ellistyrk. Tala sveitarómaga er bersýnilega of lág og
stafar það einkum af því, að margir, sem sveitarstyrks njóta, hafa ekki
látið þess getið, heldur tilgreint einhverja atvinnu. Tala þeirra, sem lifa
á ellistyrk mun aftur á móti vera of há, því að ellistyrkurinn er svo
lágur, að fáir munu geta lifað á honum aðallega.