Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1926, Side 57
Manntalið 1920
55
Langmest er um stein- og steypuhús í Reykjavík, lli af húsum
þar, en 3/4 eru timburhús. Annars eru timburhúsin mest yfirgnæfandi í
kaupstöðunum, 85°/o af öllum húsum þar. í verslunarstöðunum eru líka
3/4 húsanna timburhús, en þar næst gætir mest iorfbæjanna. í sveitum,
en þar með teljast minstu verslunarstaðirnir (með undir 300 íbúum), eru
rúml. 2/3 íbúðarhúsanna torfbæir, 1/4 timburhús, en aðeins 6°/o steinhús
eða steinsteypuhús.
Torfbæjum hefur verið skift eftir því, hvort þeir eru með timbur-
stofu eða ekki, en timburstofa er það kallað, þegar eigi aðeins gaflinn
er úr timbri, heldur að minsta kosti önnur hliðin líka. Við manntalið
1920 voru 775 iorfbæir, eða 15.4°/o af öllum torfbæjunum, taldir með
timburstofu. En 1910 voru aðeins 7°/o af torfbæjunum taldir með timb
urstofu.
í töflu XXIX (bls. 154—155) sjest, hve mörg íbúðarhús af hverri
tegund voru í hverjum kaupstað og verslunarstað og hverri sýslu á land-
inu 1920.
A hvert íbúðarhús kom að meðaltali þessi tala heimila og íbúa.
Tala heimila Mannfjöldi
1920 1910 1920 1910
Reykjavílf 2.5 2.2 12.1 10.2
Kaupstaðir 1.9 1.8 8.9 8.9
Verslunarstaðir .... 1.5 6.8 1
Sveitir 1.3 i 13 7.9 i • 8.0
A öllu Iandinu 1.6 1.4 8.4 8.3
í sveitunum er langtíðast ekki nema eitt heimili á sama bænum,
en í kaupstöðunum er það alltítt, að fleiri en ein fjölskylda búi í sama
húsinu og mest er um slíkt fleirbýli í Reykjavík. Frá 1910 til 1920 hafa
húsin í kaupstöðunum stækkað, einkum í Reykjavík. Koma fleiri heimili
og meiri mannfjöldi á hvert hús að meðaltali.
2. íbúðir í bæjunum.
Appartemcnts dans les villes.
Eins og getið er um á bls. 7* fylgdi með manntalsskýrslueyðublöð-
unum sjerstakt eyðublað um húsnæði í bæjum með yfir 300 íbúa. Á
Flateyri var húsnæðisskýrslum ekki safnað, enda þótt íbúatalan við mann-
talið kæmist rjett upp fyrir 300, því að ekki hafði verið gert ráð fyrir
því fyrirfram. Á Siglufirði var húsnæðisskýrslum aðeins safnað í sjálfu
kauptúninu, en ekki á jörðum þeim, sem tilheyra kaupstaðnum, en liggja
utan kauptúnsins. Sjerstakt yfirlit yfir skýrslur þessar fyrir Reykjavík var
birt í Hagfíðindum 7. árg. nr. 2 (mars 1922).