Bændablaðið - 29.01.2015, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
Lesendabás
Heyrt fyrir norðan
Góðir lesendur, gleðilegt nýtt ár og
megi ykkur ganga allt í haginn á
nýju ári. Það viðrar vel til bjartsýni
í mjólkurframleiðslu og aldrei hefur
framleiðsla og sala mjólkurafurða
gengið eins vel og farsællega og á
undangengnu ári 2014.
Sala á feitum mjólkurafurðum
með ólíkindum mikil, já svo mikil að
rætt hefur verið í fullri alvöru hvort
rétt væri og hvort það mundi skila
árangri að hækka greiðsluhlutfall
fitu í grundvallarverði úr 50% og
upp í 75%, en fyrir 3 árum síðan
var fitugreiðsluhlutfall grundvallar
mjólkur 25% og 75% prótein, sem
sé hugað var að algjörum viðsnúningi
greiðsluhlutfalls í verðlagningu
mjólkur frá framleiðendum.
Til allrar hamingju hafa þeir
sem þetta ræddu, að ég held, komið
aftur niður á jörðina og látið nægja
að halda áfram með 50/50 fitu og
prótein enda hefði annað í raun
verið heljarinnar mistök því ræktun
og framfarir í erfðum og mótun
nautgriparæktarinnar á Íslandi hefur
síðustu 15 árin miðast við að ná fram
hækkun á próteini í mjólk, hærri nyt
og betri júgurbyggingu.
Enginn hugsaði um að halda upp
á fituna á þessum árum. Svo voru að
sjálfsögðu „aukafídusar“ þessi gömlu
áhersluatriði svo sem betra skap, betri
júgurfesting og ýmsir áhrifavaldar til
skrokkbyggingar íslensku kýrinnar.
Það er ekki svo að bændur geti
snúið einhverjum handföngum og
stutt á takka á kúnum eins og mixara,
meiri fitu-handfangið er ekki til nema
að menn geri sér að góðu önnur 15–20
ár í ræktun.
Bændur hafa visst svigrúm
til aukningar fitu í mjólk með
fóðrunarformúlum en aðeins upp að
vissu marki og oft með áhættuþáttum
sem geta orsakað vissa fóðrunar- og
eða álagssjúkdóma. En frá þessum
leiðindum í aðra sálma.
Mjaltaþjónum rignir til Íslands
Mjólkurframleiðendur, sem flestir
eru ungir að árum, hafa í tugavís
farið út í miklar fjárfestingar til að
auka vinnuhagræði í fjósum og með
stefnuna á auknar afurðir kúa sinna
með breyttri mjaltatækni.
Mjaltaþjónum hreinlega rignir til
Íslands, fjölda fjósa er verið að breyta
í legubásafjós, nær öll með mjaltaþjón
eða mjaltaþjóna og ný fjós líta dagsins
ljós hvert af öðru.
Ekki eru þó eingöngu þarna að
verki ungir bændur heldur einnig
miðaldra bændur sem standa á
tímamótum, margir um fimmtugt og
eru að létta sér síðustu 15–20 árin og
margir eru í leiðinni að búa í haginn
fyrir áhugsama arftaka sem líta ekki
við básafjósi með rörmjaltakerfi.
Nýju fjósin með allri tækni
og sjálfvirkni sem boðið er upp
á, segjum 1000 m2 fjós með 70
legubása fyrir mjólkandi kýr, einum
mjaltaþjóni, flórþjark, legubása
fyrir geldneyti og stálpaða kálfa auk
sjúkra- og burðarstíu, hálmstíum fyrir
smákálfa og haughúsi undir nær öllu
kostar á bilinu 140–160 milljónir og
meðalbreyting á eldra fjósi, sams
konar tækni, hlaðan tekin undir og
hugsanlega einnig byggt lítillega við
kostar að meðaltali 60–80 milljónir
og sum mun meira.
Þetta eru tölur sem greinarhöfundur
hefur hlerað hjá bændum í
framkvæmdum.
Þetta eru miklar fjárhagslegar
skuldbindingar og trúlega sjá þessir
áhugasömu dugnaðarforkar ekki fram
á skuldleysi í nánustu framtíð.
En þarna er líka verið að búa sig
undir sífellt meiri kröfur og strangari
reglugerðir sem framfylgt er af hálfu
MAST.
Þær kröfur, margar bæði gáfulegar
og sjálfsagðar en einnig nokkrar
lakari og jafnvel vanhugsaðar að mati
greinarhöfundar og móta stefnuna
gangvart núverandi og komandi
kynslóð bænda.
Allt er svo gott sem samið er í ES,
eða hvað?
Því miður eru margar ES-reglur
þannig gerðar og einnig túlkaðar
hér að halda mætti að hluti
reglugerðarsmiða ES hefðu aldrei í
fjós komið, sk. bókstafstrúarmenn þ.e.
„Þetta stendur hér skrifað og þá hlýtur
það að vera rétt.“
Og oftar en ekki eru þessir
bókstafstrúarmenn lögfræðingar en
ekki dýralæknar. Nefni hér nokkrar
góðar en aðrar slæmar málsgreinar
i nýju aðbúnaðarreglugerðinni, tek
fram að þetta er persónulegt mat
greinarhöfundar. Nefni gott innlegg:
„Allir nautgripir, að undan skildum
graðnautum, skulu komast á beit á
grónu landi í átta vikur hið minnsta, á
tímabilinu frá 15. maí til 15. október ár
hvert. Aðgangur að útigerði uppfyllir
ekki kröfu um útivist á grónu landi.“
Fínt mál nema fyrir graða bola
blessaðan, hann má húka í stíunni
sinni alla ævi [Athugasemd KG.]
„Gripir skulu vera hreinir og ekki
klepróttir.“
- Ef gripir eru hreinir, þá eru
þeir örugglega ekki klepraðir?
[Athugasemd KG.]
„Klaufir skulu vera vel hirtar og
gripum haldið hreinum og klipptir
eftir því sem þörf er á.“
Jæja og já, þeir voru búnir
að segja þetta, eru ekki allir vel
hirtir og hreinir gripir klipptir?
[Athugasemd KG.]
„Gripaflutningamenn skulu alla
jafna ekki koma inn í rými þar sem
gripir eru haldnir þegar afhending
gripa fer fram. Í fjósum byggðum
eftir gildistöku reglugerðar
þessarar skulu aðstæður vera
þannig að við afhendingu gripa
þurfi gripaflutningamenn ekki að
koma inn í rými þar sem gripir eru
haldnir.“
-Þetta er algjört klúður og getur
verið lífshættulegt, gripabílstjórinn
verður í flestum tilfellum að geta
stigið fæti inn í afhendingarstíu því
oft er um fullorðin naut að ræða
sem bóndinn einn og jafnvel með
annan með sér ræður ekki við og
þetta er því oftar 3 manna tak en 2
manna. [Athugasemd. KG.]
„Í stíum með sérstöku legusvæði
skal legusvæðið samsvara 1 m2 á
hver 100 kg heildarlífþunga gripa
í stíunni.“
-Ja, hérna fullorðin kýr gæti
þurft 5m2!.... já einmitt 5m2.
þarna kæmist Geirmundur með
alla hljómsveit sína leikandi með
á legusvæðið öllum til skemmtunar.
Sæll Geirmundur! [Athugasemd.
KG.]
Svo kemur þessi:
„Allir gripir skulu komast
samtímis að fóðri!“ - En á öðrum stað
rétt við: „Ef tryggt er að ferskt fóður
sé aðgengilegt allan sólarhringinn
og stærð og hönnun stíunnar er
með þeim hætti að sterkari gripir
geti ekki einokað átplássið, er
nægjanlegt að þriðjungur gripa
geti étið samtímis.“Ansi munar nú
mikið um plássið til áts eða er þetta
uppeldið þ.e. kurteisi eldri kúa?
[Athugasemd KG.]
Síðan þessi:
„Átsvæði skal vera að minnsta
kosti 10 cm hærra en það
gólf sem gripirnir standa á. (Í
lausagöngufjósi) en 5 cm í gömlu
básafjósi.“
-Jamm og jæja, kýrnar í gömlu
fjósunum eru örugglega miklu betri
í hjánum en sparikýrnar í nýju
fjósunum, eða hvað? [Athugasemd
KG.]
Sem sé, ég sem er örugglega með
svona meðalgreind, er ekki alveg að
ná þessu en finnst ýmis atriði samt fín.
Önnur eru lakari eða fikt aðila sem
allir vilja setja nafn sitt á listaverkið,
líklega ekki alltaf skiljandi tilganginn
eða boðskapinn. Svipað og þegar sá
mikli húmoristi og snillingur, Stefán
Þengilsson, sem flestir Norðlendingar
þekkja, var að selja málverk eftir
sjálfan sig og einn kaupenda sagði:
„Heyrðu Stefán, ég ætla að
kaupa þessa mynd en það vantar
nafnið þitt á hana, viltu merkja hana
fyrir mig?“ - Og vinur okkar, Stefán
Þengilsson, leit á listaverkið, hallaði
ögn undir flatt og svaraði eftir smá
vangaveltur: - „Ekkert mál, hvernig
ætlarðu að snúa henni?“
Það skal skýrt tekið
fram að ES-reglurnar sem
aðbúnaðarreglugerðin byggist
á eru ekki yfirdýralækni,
héraðsdýralæknum eða eftir-
litsdýralæknum hérlendis um að
kenna eða þakka, og fá þessir aðilar
í fangið það vandasama verk að
reyna að gera gott brauð úr misjöfnu
hráefni. Það er ekki fyrir hvern sem
er að landa því verkefni án árekstra
við bændur.
Þá vil ég biðja þá sem eru
viðkvæmir fyrir reglugerðar-
breytingum afsökunar hafi ég
móðgað einhvern með léttúðlegu
flandri um nýju reglugerðina, það er
nú einu sinni svo að stundum verður
að taka breytingum með léttu geði,
þá taka menn frekar gleði sína á ný.
Ekki meira að sinni, en í
næsta pistli tek ég tali miðaldra
harðdugleg hjón sem eru að
gjörbreyta búskaparháttum sínum úr
venjulegu fjósi og mjöltum í nýjustu
tækni, auðvitað með tilheyrandi
skuldaaukningu. – Hvað kemur
til ákvörðunar svo viðamikilli
ákvörðun? Eru þau að spila rassinn
úr buxunum eða hvað? Þau tóku
meðal annars 500 m2 hlöðu og
breyttu henni í tæknifjós með
bestu fáanlegu tækni sem til er. Af
hverju? Við spyrjum þau og fáum
hreinskilin svör.
Kristján Gunnarsson
ráðgjafi hjá Bústólpa ehf.
Kristján Gunnarsson.
EFTIRGJÖF
FUGL
STÓ
KNÖTT
NOTA
STÖÐVUN GÖSLA RISI
HRING-
SÓLA
MÁLMUR
SUBBI
GÓL
PÍLA
FISKUR
ÓGER-
LEGUR
ÓNN
SAMS-
KONAR
FJALLS-
NÖF
ÞANGAÐ TIL
SAMTÖK MERGÐ
FLOTI
SVENGJA
DUGLEGUR
DUGA
ÚÐI
DÆLD
POTTUR
FÁGA DVELJA Í RÖÐDÚKUR
ROTNUN
VEFENGJA
ÓLMUR
ÁTT
STAKUR
STARF
SYRPA
FRÍÐUR
HÁÐS-
GLÓSUR
VERKFÆRI
ÍLÁT
ERTA
HRÚGA
ÓLJÓS
STINGAÞEI
ORGA
BORÐANDI
SEFA
TVEIR EINS
GANGÞÓFI
TÓNLISTAR-
STÍLL
STEFNA
TÁL
KK NAFN
SIGAÐ
SETIS
ÓVILD
ÁTT
KLAFI
EKKI
STEYPI-
BAÐ
ÖRÐU
DRUNUR
STAUR
VIÐAR-
TEGUND
URGUR
SKEPNA
6
KROSSGÁTA Bændablaðsins − lausnina er að finna á næstöftustu síðu